NefndirEigna-, skipulags- og umhverfisnefnd
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 183
25. ágúst 2017, kl. 16:00 til 18:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Marinó Stefánsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Jón Björn Hákonarson, formaður
- Svanhvít Yngvadóttir, aðalmaður
- Einar Már Sigurðarson, aðalmaður
- Esther Ösp Gunnarsdóttir, aðalmaður
- Ragnar Sigurðsson, varaformaður
Starfsmenn
- Valur Sveinsson, embættismaður
- Marinó Stefánsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 227 liður 5
Fundargerðir eigna- skipulags- og umhverfisnefndar nr. 182 og 183 teknar til afgreiðslu saman.
Til máls tóku Jón Björn Hákonarson, Einar Már Sigurðarson, Elvar Jónsson og Ragnar Sigurðsson.
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 183 frá 28.ágúst 2017, samþykkt með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Leirubakki 3 Matsbeiðni Skeljungs
Mál 1708087 Allur ferill málsins
Lögð fram til kynningar matsbeiðni Skeljungs þar sem þess er farið á leit að kallaður verði matsmaður til að meta skemmdir og tjón á olíubirgðastöð félagsins á Eskifirði vegna landsigs.
-
2. Heimavöllur Leiknis
Mál 1708037 Allur ferill málsins
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd þakkar erindið og vísar því til umræðu í fjárhagsáætlunargerð fyrir árið 2018
-
3. Viðbygging við leikskólann Lyngholt
Mál 1611029 Allur ferill málsins
Lagðar fram til kynningar frumteikningar af viðbyggingum við leikskólana á Reyðarfirði og Eskifirði. Nefndinni líst á framkomar teikningar og felur sviðstjóra áframhaldandi vinnu við málið. Jafnframt tekur nefndin undir bókun fræðslunefndarinnar frá 43. fundi þann 23. ágúst síðastliðinn um að viðbygging við leikskólann sé brýn vegna fjölgunar barna þar.
-
4. Skipulag á leiksvæðum í Fjarðabyggð
Mál 1706154 Allur ferill málsins
Nefndin fór yfir skipulag leiksvæða í Fjarðabyggð og staðsetningu þeirra.
Sviðstjóra falið að láta teikna væntanlegar staðsetningar á loftmynd sem birt verður á heimasíðu sem framtíðar skipulag þeirra og vísað til fjárhagsáætlunargerðar.
-
5. Eignarsjóður viðhaldsmál 2018
Mál 1703079 Allur ferill málsins
Farið yfir forsendur framkvæmda og viðhaldsáætlunar, sviðstjóra falið að vinna áætlun áfram í samræmi við umræður á fundinum.