NefndirEigna-, skipulags- og umhverfisnefnd
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 151
22. ágúst 2016, kl. 16:00 til 00:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Valur Sveinsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Jón Björn Hákonarson, formaður
- Ragnar Sigurðsson, varaformaður
- Svanhvít Yngvadóttir, aðalmaður
- Einar Már Sigurðarson, aðalmaður
- Esther Ösp Gunnarsdóttir, aðalmaður
- Valur Sveinsson, embættismaður
- Marinó Stefánsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 486 liður 14
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar nr. 151 lögð fram til kynningar.
Bæjarstjórn, fundur 205 liður 3
Til máls tók Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 151 frá 22. ágúst 2016, staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Flúormælingar 2015 og 2016
Mál 1506053 Allur ferill málsins
Fulltrúar Alcoa Fjarðaáls Magnús Þór Ásmundsson, Páll Freysteinsson og Ragnar Sigursson koma á fundinn og kynna niðurstöður flúormælinga í Reyðarfirði. Jafnframt var farið yfir stöðu mála starfsmannaþorpsins á Haga.
-
2. Umhverfisviðurkenning 2016
Mál 1608069 Allur ferill málsins
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir tillögur umhverfisstjóra og felur honum að útfæra verkefnið og auglýsa eftir tilnefningum til umhverfisverðlauna.
-
3. Geymslusvæði og stöðuleyfi fyrir gáma og lausafé í Fjarðabyggð
Mál 1402076 Allur ferill málsins
Farið yfir stöðu mála.
-
4. 735 - Deiliskipulag Hlíðarenda
Mál 1502042 Allur ferill málsins
Lagður fram til kynningar tölvupóstur Bernhards Bogasonar fh. eiganda Strandgötu 97 og Sporðs hf. ,dagsettur 10 ágúst 2016, vegna hugmynda um staðsetningu Gömlu-búðar og Jensenshúss utan við Strandgötu 98b.
-
5. 755 - Deiliskipulag Saxa
Mál 1208097 Allur ferill málsins
Lögð fram endurbætt hönnun áningar- og útsýnisstaðs við Söxu dags. 16. júní 2016, unnin af Landmótun ehf. Samþykki landeiganda vegna áætlana um deiliskipulagsgerð liggur fyrir.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd líst vel á framlögð gögn og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að vinna málið áfram.
-
6. 740 deiliskipulag fólkvangs Neskaupstaðar
Mál 1606100 Allur ferill málsins
Lagt fram minnisblað skipulags- og byggingarfulltrúa, dagsett 19. ágúst 2016, vegna styrkveitingar úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða og tilboða í vinnu við gerð deiliskipulags fólkvangs Neskaupstaðar.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að láta vinna deiliskipulag fólkvangs Neskaupstaðar. Nefndin samþykkir einnig að ganga að tilboði Teiknistofu AKS ehf. Jafnframt er bæjarstjóra falið að mynda faghóp sem komi að vinnu deiliskipulagsins.
-
7. 735 Leirubakki 2 - endurnýjun á lóðarleigusamningi
Mál 1608052 Allur ferill málsins
Lögð fram tillaga að lóðarblaði Leirubakka 2 á Eskifirði vegna breytinga á deiliskipulagi.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að lóðarleigusamningur verði endurnýjaður í samræmi við lóðarblað.
-
8. Afgreiðslur byggingafulltrúa - 74
Samþykkt