Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarstjórn

Bæjarstjórn, fundur 71

6. maí 2010, kl. 16:00 til 19:00, í Molanum fundarherbergi 1 og 2. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Dagskrá

  1. 1. Ársreikningur Fjarðabyggðar 2009, síðari umræða

    Mál 1004016 Allur ferill málsins

    Til máls tóku Helga Jónsdóttir, Valdimar O. Hermannsson og Guðmundur Rafnkell Gíslason,  Bókun Sjálfstæðisflokks vegna afgreiðslu á ársreikningi Fjarðabyggðar 2009 við síðari umræðu 6.maí 2010:Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins vilja vekja sérstaka athygli á þeirri alvarlegu stöðu fjármála, sem fram kemur í ársreikningi Fjarðabyggðar 2009 og Endurskoðunarskýrslu KPMG frá því í apríl 2010. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />Hvort sem litið er á samantekna neikvæða afkomu A og B hluta á árinu 2009, heildarskuldir og skuldbindingar í árslok, neikvætt eigið fé í árslok eða eiginfjárhlutfall, þá er staðan óásættanleg.Þrátt fyrir hagræðingaraðgerðir á síðastliðnu ári, sem virðast ekki hafa skilað sér að fullu, er ljóst að skuldastaða sveitarfélagsins  er afar erfið með hliðsjón af eiginfjárstöðu og greiðslugetu. Þrátt fyrir þá staðreynd að fjárhagslegir framtíðarmöguleikar Fjarðabyggðar séu almennt taldir góðir, er mjög mikilvægt að leita allra leiða til þess að lækka skulda- og afborgunarbyrði sveitarfélagsins  til lengri tíma, svo hægt sé að halda uppi ásættanlegu framkvæmdastigi. Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins munu áfram vinna að því, af ábyrgð og festu, að snúa við þeim neikvæðu niðurstöðum sem birtast íí ársreikningi Fjarðabyggðar fyrir árið 2009.Þannig lagt fram á 71. fundi bæjarstjórnar Fjarðabyggðar, 6. maí 2010. Valdimar O. Hermannsson (sign) Jóhanna Hallgrímsdóttir (sign)  Jens Garðar Helgason (sign) Ársreikningur Fjarðabyggðar 2009 samþykktur með sex atkvæðum fulltrúa meirihluta - Fulltrúar Sjálfstæðisflokks sitja hjá.

  2. 2. Bæjarráð - 196

    Fundargerðin í heild

    Til máls tóku Jens Garðar Helgason, Valdimar O. Hermannsson, Helga Jónsdóttir, Íris Valsdóttir og Þorbergur Hauksson.Fundargerð samþykkt með 9 atkvæðum.

    1. 2.1 Sorpurðun - Samstarf við Fljótsdalshérað, Seyðisfjarðarkaupstað og Fljótsdalshrepp0905099
    2. 2.2 Breiðablik - vegna greiningarvinnu á leiguíbúðum aldraða.0905079
    3. 2.3 Ósk um fjögurra vikna sumarlokun leikskólans Kærabæjar1004115
    4. 2.4 Fjölmiðlaumfjöllun vegna kosninga - Tilboð í vöktun1004141
    5. 2.5 Aðalfundur Þróunarfélags Austurlands og Atvinnuþróunarsjóðs Austurlands1005001
    6. 2.6 Fundagerð yfirkjörstjórnar 29.apríl 20101005002
    7. 2.7 Lög um fjárhagsskil sveitarfélaga.1004149
    8. 2.8 Veiðifélag Dalsár - Aðalfundaboð og fundagerð 20101004066
    9. 2.9 Afleiðu- og gjaldeyrissamningar við Landsbankann1004011
    10. 2.10 Umsóknir um byggðakvóta1005014
    11. 2.11 Framleiga á gamla húsnæði Knellunnar að Strandgötu 441004154
    12. 2.12 Menningar-, íþrótta- og ferðamálanefnd - 351004008F
    13. 2.13 Fræðslunefnd - 291004009F
  3. 3. Fræðslunefnd - 29

    Fundargerðin í heild

    Enginn tók til máls.Fundargerð samþykkt með 9 atkvæðum.

  4. 4. Fundagerð yfirkjörstjórnar 29.apríl 2010

    Mál 1005002 Allur ferill málsins

    Enginn tók til máls.Fundargerð samþykkt með 9 atkvæðum.