Hvatningarbréf um að leggja kostnaðarþáttöku foreldra af eða halda henni í lámarki
Mál 1608032 Fyrst á dagskrá 24. ágúst 2016, síðast 1. september 2016. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn, Fræðslunefnd.
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2016
Fræðslunefnd, fundur 29 liður 1
Borist hefur hvatningarbréf frá Velferðarvaktinni dagsett 9. ágúst 2016, þar sem sveitarstjórnir á landinu eru hvattar til að leggja kostnaðarþátttöku foreldra vegna ritfangakaupa barna af eða halda henni í lágmarki. Fræðslustjóri greindi frá því að grunnskólarnir í Fjarðabyggð önnuðust innkaup fyrir yngri nemendur skólanna og hefðu þannig náð niður kostnaði fyrir foreldra. Hann taldi kostnað sveitarfélagsins við að leggja kostnaðarþátttöku foreldra af geta verið á bilinu 3-5 milljónir eftir því hversu viðamikil innkaupin eru. Málinu vísað til frekari umræðu um fjárhagsáætlun 2017.
-
Bæjarstjórn, fundur 205 liður 4.1
Fundargerðin „Fræðslunefnd - 29“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.