Bæjarráð, fundur 197
11. maí 2010, kl. 09:00 til 11:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Dagskrá
-
1. Innkaupamál á pappír og umslögum 2010
Mál 1004097 Allur ferill málsins
Þennan lið fundarins sátu fjármálastjóri og sérfræðingur á fjármálasviði. Lagt fram minnisblað frá 11.maí vegna innkaupamála. Fjármálastjóri fór yfir efni minnisblaðs. Tekið fyrir á næsta fundi.
-
2. Atvinnumál skólafólks og atvinnulausra
Mál 1005089 Allur ferill málsins
Lagt fram minnisblað umhverfisstjóra frá 10.maí um vinnumál skólafólks og atvinnulausra ungmenna. Bæjarráð samþykkir fyrirkomulag vinnuskóla Fjarðabyggðar sumarið 2010 eins og það er framsett í minnisblaði og heimilar umhverfissviði að auglýsa störf. Umhverfisstjóra er jafnframt falið að vinna áfram að fyrirkomulagi átaksvinnu sumarið 2010 eins og það er fram sett í minnisblaði.
-
3. Stuðningur við dagforeldrakerfið
Mál 1003097 Allur ferill málsins
Minnisblað fræðslustjóra og félagsmálastjóra frá 11.maí um stuðning við dagforeldrakerfið á Norðfirði. Bæjarráð samþykkir tillögur í minnisblaði og vísar kostnaðarhluta til endurskoðunar fjárhagsáætlunar 2010.
-
4. Aukning á stofnfé Sparisjóðs Norðfjarðar
Mál 2008-11-21-1815 Allur ferill málsins
Bréf Fjármálaeftirlitsins frá 5.maí lagt fram til upplýsinga en þar kemur fram að FME hefur samþykkt að Fjarðabyggð fari með allt að 25% eignarhlut í Sparisjóði Norðfjarðar.
-
5. Fundagerð 90.fundar Heilbrigðiseftirlits Austurlands
Mál 1005056 Allur ferill málsins
Fundargerð lögð fram til kynningar.
-
6. Sala á Álfinum 2010
Mál 1005077 Allur ferill málsins
Beiðni SÁA um kaup Fjarðabyggðar á álfum. Bæjarráð getur ekki orðið við beiðni.
-
7. Framleiga á gamla húsnæði Knellunnar að Strandgötu 44
Mál 1004154 Allur ferill málsins
Díana vék af fundi vegna þessa liðar. Lögð fram drög að leigusamningi við Díönu Mjöll Sveinsdóttur vegna Strandgötu 44 á Eskifirði. Bæjarráð samþykkir að framleigja húsnæðið fram til 1.júní 2011.
-
8. Öldrunarþjónustunefnd - 19
Fundargerð lögð fram.
-
9. Umhverfis- og skipulagsnefnd - 43
Fundargerð lögð fram.