Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 198

18. maí 2010, kl. 09:00 til 11:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Dagskrá

  1. 1. Innkaupamál á pappír og umslögum 2010

    Mál 1004097 Allur ferill málsins

    Minnisblað fjármálasviðs frá 11.maí er lagt var fram á síðasta fundi. Bæjarráð samþykkir að allur pappír og umslög fyrir allar stofnanir Fjarðabyggðar verði keyptur í gegnum fjármálasvið í ljósi hagstæðustu verða. Þá samþykkkir bæjarráð að samningi þeim sem er í gildi við Olíuverzlun Íslands hf. verði sagt upp með þriggja mánaða fyrirvara og fjármálasviði falið að leita hagstæðustu verða í hverjum vöruflokki.

  2. 2. Snorraverkefnið 2010

    Mál 1005111 Allur ferill málsins

    Þátttaka í Snorraverkefninu og beiðni um styrk.  Safnastofnun Fjarðabyggðar mun taka einstakling í starfsþjálfun/vinnu í þrjár vikur í sumar.  MÍF tók málið fyrir á fundi 17.maí og sá sér ekki fært að styðja við verkefnið fjárhagslega. Forstöðumanni Safnastofnunar var falið að hafa samband við verkefnastjóra Snorraverkefnis og bjóða Jesse Chisholm-Beatson sjálfboðastarf hjá Safnastofnun Fjarðabyggðar.

  3. 3. 100 örnefni - útgáfa á ferðahandbók

    Mál 1005113 Allur ferill málsins

    Beiðni um styrk frá Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum vegna útgáfu á ferðahandbók með úrvali 100 örnefna.  Vísað til afgreiðslu ferða- og menningarfulltrúa.

  4. 4. Uppgjör gatnagerðagjalda og lóðaskil

    Mál 0910050 Allur ferill málsins

    Fjármálastjóri sat þennan lið fundarins og fór yfir minnisblað frá 16.maí um kröfur og tillögu að lausn máls vegna gatnagerðagjalda vegna Tungumels 2-10 og Tungumels 12-20 á Reyðarfirði.  Bæjarráð samþykkir tillögu í minnisblaði og felur fjármálastjóra að ganga frá samkomulag.

  5. 5. Samgönguáætlun 2009-2012

    Mál 1005084 Allur ferill málsins

    Lögð fram til bókunar umsögn bæjarráðs frá 11.maí um tillögu til þingsályktunar um fjögurra ára samgönguáætlun.

  6. 6. Gamla kirkjan á Eskifirði

    Mál 0911022 Allur ferill málsins

    Grein Hildu G. Birgisdóttur um Gömlu kirkjuna á Eskfirði lögð fram til upplýsinga en greinin birtist nýlega í Fréttablaðinu. Forstöðumanni stjórnsýslu falið að afla upplýsinga frá eigendum kirkjunnar um áform þeirra í ljósi styrks frá húsafriðunarnefnd.

  7. 7. Félagsmálafundur nr.33-fundagerð

    Mál 1005136 Allur ferill málsins

    Fundargerð lögð fram.

  8. 8. Félagsmálafundur nr. 34-fundagerð

    Mál 1005137 Allur ferill málsins

    Fundargerð lögð fram.

  9. 9. Leyfi til leitar og rannsókna á gulli og öðrum málmum á Austurlandi - Beiðni um umsögn

    Mál 1005147 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf Orkustofnunar frá 17.maí er varðar umsögn Fjarðabyggðar um umsókn Platina Resources Ltd. um leyfi til leitar og rannsókna á gulli og öðrum málmum á Austurlandi.  Vísað til umhverfis- og skipulagsnefndar til umsagnar.

  10. 10. Helstu framkvæmdir og breytingar á stjórnsýslu Fjarðabyggðar 2006 - 2010 - Minnisblað

    Mál 1005148 Allur ferill málsins

    Framlagt til upplýsinga minnisblað bæjarstýru frá 17.maí.