Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirMannvirkjanefnd

Mannvirkjanefnd, fundur 30

25. febrúar 2010, kl. 16:30 til 18:30, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Jóhann Eðvald Benediktsson.

Þessi fundargerð á öðrum fundum

Dagskrá

  1. 1. 740-Nesbakki 1a-Sala á eign

    Mál 1002049 Allur ferill málsins

    Lagt fram kauptilboð í fasteignina við Nesbakka 1a dagsett 10. febrúar síðastliðin. Tilboðið er upp á 6.600.000 kr. og er bjóðandi Hlín Aðalsteinsdóttir. Mannvirkjanefnd samþykkir tilboðið og felur mannvirkjastjóra að ganga frá sölunni.

  2. 2. 750,Skólavegur 75, Verðmat - Veðmat

    Mál 0906101 Allur ferill málsins

    Lagt fram bréf frá Ríkiskaup, dagsett 9. febrúar 2010 vegna opnunar tilboða í fasteignina að Skólavegi 75, 740 Fjarðabyggð. Alls bárust 2 tilboð í fasteignina og er hæst bjóðandi Vignir Jóhannesson með tilboð upp á 5.125.500 kr. Mannvirkjanefnd hafnar tilboði og óskar eftir því við meðeiganda, sem er ríkissjóður, að húsið verði auglýst aftur.

  3. 3. Árskýrsla Samorku 2009

    Mál 1002088 Allur ferill málsins

    Ársreikningur fyrir árið 2009 frá Samorku er lagður fram til kynningar.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

  4. 4. Fráveituskýrsla

    Mál 1001106 Allur ferill málsins

    Fráveituskýrsla fyrir sameinaða Fjarðabyggð er lögð fram til kynningar, nefndin mun vinna áfram með skýrsluna.

  5. 5. Gjaldskrárstefna fyrir veitur í Fjarðabyggð

    Mál 0912094 Allur ferill málsins

    Mannvirkjanefnd felur mannvirkjastjóra að koma með tillögu að mögulegum rekstrarformum fyrir sameinaðar veitur Fjarðabyggðar, þar sem koma fram kostir og gallar hverrar tillögu í samvinnu við fjármálasvið.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

  6. 6. Rafveita Reyðarfjarðar 80 ára

    Mál 1002085 Allur ferill málsins

    Á fundin mætir Sigfús Þórir Guðlaugsson rafveitustjóri til að fara yfir að 80 ára afmæli Rafveitu Reyðarfjarðar er 4. apríl næstkomandi. Mannvirkjanefnd felur rafveitustjóra og mannvirkjastjóra að undirbúa dagskrá til að þessara tímamóta verði minnst og leggja fyrir nefndina drög að dagskrá á næsta fundi.

  7. 7. Umferðaröryggisáætlanir - leiðbeiningar

    Mál 1002026 Allur ferill málsins

    Lagðar fram leiðbeiningar til sveitarfélaga vegna gerð umferðaöryggisáætlana, sem unnar hafa verið af Mannviti í samvinnu við Umferðastofu og Vegagerðina. Í umferðaöryggisáætlun samgönguyfirvalda er sett fram heildarstefna í umferðaöryggismálum til framtíðar. Við framkvæmd áætlunarinnar verður lögð sérstök áhersla á aukið samstarf og samvinnu samgönguyfirvalda við sveitarfélög með bætt öryggi að leiðarljósi. En mikilvægt er að samræma vinnubrögð á sveitarstjórnarstigi stjórnsýslunnar til að markmiðum í umferðaröryggismálum nái fram að ganga. Mannvirkjanefnd fagnar þessu og bíður eftir kynningu.

  8. 8. Vinnureglur vegna undirritunar og uppsagnar á húsaleigusamningum.

    Mál 1002099 Allur ferill málsins

    Lagðar fram vinnureglu, dagsettar 18. febrúar 2010 um meðferð húsleigusamninga. Mannvirkjanefnd fór yfir reglunnar og samþykkir.

  9. 9. Þriggja ára áætlun - drög að fjárfestingaáætlun

    Mál 1002050 Allur ferill málsins

    Lögð fram drög að fjárfestingaráætlun til næstu 3. ára. Nefndin fór yfir áætlunina og vísar henni til bæjarráðs.

  10. 10. Verðmat-veðmat Lambeyrarbraut 8 735

    Mál 0907049 Allur ferill málsins

    Lagt fram bréf frá Ríkiskaup, dagsett 23. febrúar 2010 vegna opnunar tilboða í fasteignina að Lambeyrarbraut 8, 735 Fjarðabyggð. Alls bárust 5 tilboð í fasteignina og er hæst bjóðandi Hilmir Þór Ásbjörnsson með tilboð upp á 8.300.000 kr. Mannvirkjanefnd hafnar tilboði og óskar eftir því við meðeiganda, sem er ríkissjóður, að húsið verði auglýst aftur.