Rafveita Reyðarfjarðar 80 ára
Mál 1002085 Fyrst á dagskrá 25. febrúar 2010, síðast 29. apríl 2010. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn, Mannvirkjanefnd.
Í heiti málsins: Reyðarfjörður
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2010
Mannvirkjanefnd, fundur 30 liður 6
Á fundin mætir Sigfús Þórir Guðlaugsson rafveitustjóri til að fara yfir að 80 ára afmæli Rafveitu Reyðarfjarðar er 4. apríl næstkomandi. Mannvirkjanefnd felur rafveitustjóra og mannvirkjastjóra að undirbúa dagskrá til að þessara tímamóta verði minnst og leggja fyrir nefndina drög að dagskrá á næsta fundi.
-
Mannvirkjanefnd, fundur 32 liður 1
Lögð fram tillaga mannvirkjastjóra og rafveitustjóra vegna 80. ára afmælis Rafveitu Reyðarfjarðar. En þar er gert ráð fyrir að Rafveita Reyðarfjarðar gefi Íslenska stríðsárasafninu á Reyðarfirði eftirfarandi hluti þann 1. júlí 2010, en þá eru 70. ár frá hernámi Reyðarfjarðar.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />ü Uppsetningu á lýsingu inn í hverfi safnsins í anda þeirra lýsingu sem þar var, þ.e. tréstaurar tengdir með loftlínum, sett yrðu upp 2 til 3 ljós sem Rafveitan hefur náð að eignast. ü Ganga frá loftvarnarbyrgi, þ.e. setja upp hurð og bekki í það þannig að byrgið verði hæft til sýningar.ü Gefa safninu Dodge Vibon herbíl árgerð 1941.ü Gefa safninu FORD GMC hertrukk árgerð 1942. Mannvirkjanefnd samþykkir framlagða tillögu og fagnar hugmyndinni.
-
Bæjarstjórn, fundur 70 liður 7.1
Fundargerðin „Mannvirkjanefnd - 32“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.