NefndirUmhverfis- og skipulagsnefnd
Umhverfis- og skipulagsnefnd, fundur 40
9. janúar 2024, kl. 14:30 til 16:00, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Aron Leví Beck.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, formaður
- Esther Ösp Gunnarsdóttir, varaformaður
- Birkir Snær Guðjónsson, aðalmaður
- Ingunn Eir Andrésdóttir, varamaður
- Benedikt Jónsson, varamaður
Starfsmenn
- Aron Leví Beck Rúnarsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 826 liður 23
Fundargerð 40. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar lögð fram til staðfestingar.
Bæjarstjórn, fundur 365 liður 3
Fundargerð 40. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar lögð fram til staðfestingar
Engin tók til máls.
Fundargerð 40. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar frá 5. desember er samþykkt með 9 atkvæðum
Bæjarráð, fundur 829 liður 20
Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar frá 9. janúar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 368 liður 3
Til máls tók Þuríður Lillý Sigurðardóttir.
Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar frá 9. janúar staðfest með 9 atkvæðum.
Bæjarráð, fundur 187 liður 8
Fundargerð lögð fram.
Dagskrá
-
1. Hundasvæði í Stöðvarfirði
Mál 2312027 Allur ferill málsins
Hundasvæði í Stöðvarfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir hugmyndir af breytingu á hundasvæði á Stöðvarfirði. Framkvæmdin skal vera í samráði við skipulags- og umhverfisfulltrúa. Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að aðkoma Fjarðabyggðar verði með sama sniði og á öðrum hundasvæðum í Fjarðabyggð, þ.e. bætt aðkoma, skilti og ruslatunna. Málinu er vísað í Mannvirkja- og veitunefnd.
-
2. Úrgangsmál 2023 - kynningaefni og fleira
Mál 2302021 Allur ferill málsins
Minnisblað um fjölda tunna. Verkefnisstjóri leggur til minnisblað sem reifar mögulegar útfærslur flokkunar við heimili sem rúmast innan ramma nýrra laga um meðhöndlun úrgangs. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir leið 8 varðandi útfærslu flokkunaríláta við heimili samkvæmt minnisblaði. Um er að ræða óbreyttan fjölda á flokkunarílátum við heimili. Einnig er samþykkt að fjárfesta í grenndarstöðvum í samræmi við minnisblað. Verkefnastjóra umhverfismála er falið að panta grenndarstöðvar og skipulags- og umhverfisfulltrúa að útfæra staðsetningar.
-
3. Framkvæmdaleyfi við móttökustöð Breiðdalsvík
Mál 2312135 Allur ferill málsins
Framkvæmdaleyfi við móttökustöð Breiðdalsvík. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir framkvæmdaleyfið. Nefndarmenn höfðu gefið samþykki fyrir framkvæmdinni fyrir jól og er það hér samþykkt formlega.
-
4. Austurvegur 1 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Mál 2312136 Allur ferill málsins
Austurvegur 1 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.
-
5. Aðalskipulag br. skógrækt
Mál 2301094 Allur ferill málsins
Breyting á aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2020-2040 vegna skógræktar. Umfjöllun um athugasemdir að lokinni auglýsingu. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir drög að svörum til þeirra sem veittu athugasemdir og vísar tillögunni án breytinga til bæjarstjórnar.
-
6. Umsagnarbeiðni um mál nr. 10302023 í skipulagsgáttinni
Mál 2312132 Allur ferill málsins
Umsagnarbeiðni um mál nr. 10302023 í skipulagsgáttinni. Múlaþing hefur óskað eftir umsögn við Aðalskipulag Múlaþings 2025-2045, nr. 1030/2023: Lýsing (Nýtt aðalskipulag). Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd og óskar Múlaþingi til hamingju með drög að nýju aðalskipulagi.
-
7. Erindi til ungmennaráðs: v. gangbrautar yfir Austurveg á Reyðarfirði
Mál 2312048 Allur ferill málsins
Ungmennaráð tekur undir með yfirþroskaþjálfa Grunnskóla Reyðarfjarðar. Meðfylgjandi eru myndir af gatnamótum og önnur hugmynd af staðsetningu, unnin í sammráði við yfirþroskaþjálfa. Ungmennaráð vísar erindinu til umhverfis- og skipulagsnefndar. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að setja gangbraut neðan við Austurveg 5. Nefnin felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að uppfæra umferðasamþykkt.
-
8. Athugasemd v. gangbrautar í Neskaupstað
Mál 2310191 Allur ferill málsins
Ungmennaráð leggur til að umhverfis- og skipulagsnefnd íhugi fyrri staðsetningu betur. Ráðið telur að gangbraut nýtist betur neðar í götunni (sjá minnisblað). Nemendur á heimavist munu líklega ekki taka sér krók til þess að nýta sér gangbraut ofar. Umhverfis- og skipulagsnefnd frestar málinu. Nefndin felur formanni að ræða við fulltrúa ungmennaráðs.
-
9. Erindi til US vegna Grænt svæði á Fásk
Mál 2401032 Allur ferill málsins
Erindi til US vegna Grænt svæði á Fásk frá íbúum við Skólaveg og Hlíðargötu. Umhvefis- og skipulagsnefnd getur ekki orðið við beiðni íbúa Hlíðargötu og Skólavegar. Lóðin er skilgreind á íbúðasvæði samkvæmt aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2020-2040. Lóðin er í eðli sínu ekki frábrugðin öðrum lóðum sem ástæða er til að nýta í gróinni byggð. Rök sem fram koma í erindi íbúa Hlíðargötu og Skólavegi gefa ekki til kynna að þessa lóð eigi síður að nýta en aðrar og þess vegna er ástæða til að huga vel að því fordæmi sem myndi skapast ef lóðin yrði ekki nýtt. Í almennum skilmálum fyrir íbúðabyggð í aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2020-2040 segir: „Leitast verði við að byggja á óbyggðum lóðum í eldri byggð en þá í góðu samræmi viðnálæga byggð og götumynd.“
Ef til framkvæmda kemur er sveitarfélaginu skylt að grenndarkynna komandi framkvæmdir þar sem ekki er um deiliskipulagssvæði að ræða.
-
10. Umsókn um stöðuleyfi fyrir skýli
Mál 2401056 Allur ferill málsins
Umsókn um stöðuleyfi fyrir skýli. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að veita stöðuleyfi fyrir skemmu til eins árs. Nefndin felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gefa út leigusamning þegar umbeðnum gögnum hefur verið skilað.