Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 829

15. janúar 2024, kl. 08:30 til 12:00, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Stefán Þór Eysteinsson, formaður
  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, varamaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður
  • Snorri Styrkársson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 368 liður 2

    Fundargerðir bæjarráðs teknar saman til umfjöllunar og afgreiðslu.

    Fundargerð bæjarráðs frá 15. janúar staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Rekstur málaflokka 2023 - TRÚNAÐARMÁL

    Mál 2303071 Allur ferill málsins

    Lagt fram sem trúnaðarmál yfirlit um rekstur og fjárfestingar janúar - nóvember 2023 og yfirlit yfir skatttekjur og launakostnað janúar - desember 2023.

  2. 2. Skammtímafjármögnun 2024

    Mál 2401097 Allur ferill málsins

    Umræður um skammtímafjármögnun Fjarðabyggðar 2024. Núverandi samningur við Íslandsbanka rennur úr 1.2.2024.

    Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti að endurnýja samning um yfirdráttarheimild hjá Íslandsbanka að fjárhæð 200 m.kr. Staðfestingu yfirdráttarheimildar vísað til bæjarstjórnar til staðfestingar.

  3. 3. Framlög í þágu farsældar barna

    Mál 2312159 Allur ferill málsins

    Umfjöllun um málið var frestað á síðasta fundi. Framlagt minnisblað um aukið vinnuálag tengt nýjum lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna. Vegna vinnuálags er vöntun sem nemur um 15 m.kr. í fjárhagsramma ársins 2024 eða sem nemur fjárframlögum jöfnunarsjóðs til samþættingar þjónustu í þágu farsældar barna.

    Bæjarráð samþykkir að bætt verði við fjármagni sbr. minnisblað og vísar kostnaðarauka til gerðar viðauka við fjárhagsáætlun 2024.

  4. 4. Húsnæðisáætlun Fjarðabyggðar 2024

    Mál 2310039 Allur ferill málsins

    Lögð fram drög að húsnæðisáætlun Fjarðabyggðar 2024 - 2033.

    Bæjarráð tekur áætlun til endanlegrar afgreiðslu á næsta fundi bæjarráðs.

  5. 5. Sameiginlegur fundur HSA og bæjarráðs - Janúar 2024

    Mál 2401024 Allur ferill málsins

    Fundur með fulltrúum Heilbrigðisstofnunar Austurlands.

  6. 6. Starfshópur fræðslumála 2023

    Mál 2309181 Allur ferill málsins

    Skipun í starfshóp um fræðslumála í samræmi við breytingar sem gerðar voru á erindisbréfi hópsins.

    Bæjarráð samþykkir að fulltrúar í hópnum verið auk formanns fræðslunefndar Stefán Þór Eysteinsson, Jón Björn Hákonarson, Ragnar Sigurðsson og Jóhanna Sigfúsdóttir.

  7. 7. Jafnlaunakerfi

    Mál 1812054 Allur ferill málsins

    Framlögð drög að endurskoðaðri jafnlaunahandbók Fjarðabyggðar sem innifelur reglur jafnlaunakerfis sveitarfélagsins og lýsingu þess.

    Bæjarráð samþykkir verklagsreglur fyrir sitt leyti og vísar þeim til afgreiðslu bæjarstjórnar.

  8. 8. Samskiptastefna 2024

    Mál 2210143 Allur ferill málsins

    Framlögð til afgreiðslu samskiptastefna sem innfelur vefstefnu og stefnu um innri samskipti.

    Stefnan gildir í eitt ár og verður tekin til endurskoðunar af fenginni reynslu.

    Bæjarráð samþykkir stefnuna fyrir sitt leyti og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar.

  9. 9. Reglur um fjárhagsaðstoð 2024

    Mál 2307082 Allur ferill málsins

    Vísað frá félagsmálanefnd til afgreiðslu bæjarráðs uppfærðum reglum Fjarðabyggðar um fjárhagsaðstoð.

    Bæjarráð samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.

  10. 10. Reglur um leikskóla

    Mál 2110048 Allur ferill málsins

    Vísað frá fræðslunefnd til afgreiðslu bæjarráðs endurskoðuðum reglum um leikskólaþjónustu í Fjarðabyggð.

    Bæjarráð samþykkir breytingar á reglunum og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.

  11. 11. Erindi frá starfsfólki skólamiðstöðvar á Fáskrúðsfirði

    Mál 2401089 Allur ferill málsins

    Framlagt til kynningar erindi frá starfsmönnum Skólamiðstöðvarinnar á Fáskrúðsfirði vegna ákvörðunar um að breyta starfi húsvarða.

    Bæjarráð vísar erindi til sviðsstjóra framkvæmda- og umhverfissviðs auk leik- og grunnskólastjórnenda á Fáskrúðsfirði.

  12. 12. Helstu tölur lögreglunnar á Austurlandi árið 2023

    Mál 2401093 Allur ferill málsins

    Framlagt til kynningar yfirlit frá lögreglustjóranum á Austurlandi fyrir árið 2023.

  13. 13. Bréf innviðaráðherra vegna jöfnunarsjóð og dóms héraðsdóms

    Mál 2401094 Allur ferill málsins

    Framlagt til kynningar bréf innviðaráðherra vegna málefna jöfnunarsjóðs sveitarfélaga í kjölfar dóms héraðsdóms í desember 2023.

  14. 14. Landsþing sambands Íslenskra sveitarfélaga 2024

    Mál 2401092 Allur ferill málsins

    Framlagt boð á XXXIX. landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga sem fram fer fimmtudaginn 14. mars nk.

  15. 15. Fræðslunefnd - 135

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð 135. fundar fræðslunefndar frá 9. janúar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

    1. 15.1 Reglur um leikskóla2110048
    2. 15.2 Skóladagatöl 2023-20242301073
    3. 15.3 Forvarnastefna Fjarðabyggðar 2024-20252306007
    4. 15.4 Niðurstöður Skólapúlsins_haust 2023_6.-10. b2401037
    5. 15.5 Skýrsla stjórnanda fræðslumála og skólaþjónustu2311040
  16. 16. Stjórn menningarstofu og safnastofnunar - 15

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð 15. fundar stjórnar menningarstofu og safnastofnunar frá 9. janúar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

    1. 16.1 Endurskoðun Menningarstefnu Fjarðabyggðar2211009
    2. 16.2 Menningarstyrkir 20242401038
    3. 16.3 Stjórnkerfisnefnd 2020-20232011203
    4. 16.4 Fundargerðir Sjóminjasafns Austurlands2312152
    5. 16.5 Skapandi sumarstörf 20232311075
    6. 16.6 Uppbyggingarsjóður 2023 - umsóknir og styrkveitingar2309072
    7. 16.7 Verkefni menningarstofu 20242401039
  17. 17. Félagsmálanefnd - 175

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð 175. fundar félagsmálanefndar frá 9. janúar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

    1. 17.1 Frumvarp til laga um breytingu á lögum um greiðsluaðlögun einstaklinga, nr. 1012010 (málsmeðferð og skilyrði), 27. mál.2401009
    2. 17.2 Fundaáætlun félagsmálanefndar, vor 20242312062
    3. 17.3 Forvarnastefna Fjarðabyggðar 2024-20252306007
    4. 17.4 Reglur um fjárhagsaðstoð 20242307082
    5. 17.5 Skýrsla stjórnenda - félagsmálanefnd2311096
    6. 17.7 Niðurstöður Skólapúlsins_haust 2023_6.-10. b2401037
  18. 18. Íþrótta- og tómstundanefnd - 129

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð 129. fundar íþrótta- og tómstundanefndar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

    1. 18.1 Samstarf Fjarðabyggðar við Eyrina Heilsurækt
    2. 18.2 Tillaga Fjarðalistans og Framsóknarflokksins að tilfærslu félagsmiðstöðvarinnar Knellunnar.
    3. 18.3 UÍA beiðni um styrk á arinu 2023
    4. 18.4 Forvarnateymi Fjarðabyggðar 2023-2024
    5. 18.5 Forvarnastefna Fjarðabyggðar 2024-2025
    6. 18.6 Skýrsla stjórnenda - íþrótta- og tómstundasvið
  19. 19. Mannvirkja- og veitunefnd - 22

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð 22. fundar mannvirkja- og veitunefndar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

    1. 19.1 Hleðslustaurar í Fjarðabyggð2310060
    2. 19.2 Fjarðabyggðarhöll - Minnisblað flóttaleiðir2401029
    3. 19.3 Skerðing á rafmagni til fjarvarmaveitna2401035
    4. 19.4 Viðarperlukatlar - Minnisblað2401059
  20. 20. Umhverfis- og skipulagsnefnd - 40

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar frá 9. janúar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

    1. 20.1 Hundasvæði í Stöðvarfirði2312027
    2. 20.2 Úrgangsmál 2023 - kynningaefni og fleira2302021
    3. 20.3 Framkvæmdaleyfi við móttökustöð Breiðdalsvík2312135
    4. 20.4 Austurvegur 1 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2312136
    5. 20.5 Aðalskipulag br. skógrækt2301094
    6. 20.6 Umsagnarbeiðni um mál nr. 10302023 í skipulagsgáttinni2312132
    7. 20.7 Erindi til ungmennaráðs: v. gangbrautar yfir Austurveg á Reyðarfirði2312048
    8. 20.8 Athugasemd v. gangbrautar í Neskaupstað2310191
    9. 20.9 Erindi til US vegna Grænt svæði á Fásk2401032
    10. 20.10 Umsókn um stöðuleyfi fyrir skýli2401056