Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFélagsmálanefnd

Félagsmálanefnd, fundur 175

9. janúar 2024, kl. 16:15 til 19:15, að Búðareyri 2, fundarherbergi 1. Fundargerð ritaði Aðalheiður Björk Rúnarsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, formaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
  • Barbara Izabela Kubielas, aðalmaður
  • Tinna Hrönn Smáradóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Laufey Þórðardóttir, embættismaður
  • Inga Rún Beck Sigfúsdóttir, embættismaður
  • Aðalheiður Björk Rúnarsdóttir, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 829 liður 17

    Fundargerð 175. fundar félagsmálanefndar frá 9. janúar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 368 liður 6

    Til máls tók Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir.

    Fundargerð félagsmálanefndar frá 9. janúar staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Frumvarp til laga um breytingu á lögum um greiðsluaðlögun einstaklinga, nr. 1012010 (málsmeðferð og skilyrði), 27. mál.

    Mál 2401009 Allur ferill málsins

    Frumvarp til laga um breytingu á lögum um greiðsluaðlögun einstaklinga, nr. 101/2010 (málsmeðferð og skilyrði), 27. mál var kynnt.

    Félagsmálanefnd sér ekki ástæðu til að gera athugasemdir við frumvarpið.

  2. 2. Fundaáætlun félagsmálanefndar, vor 2024

    Mál 2312062 Allur ferill málsins

    Félagsmálanefnd samþykkir fundaáætlun fyrir vorið 2024.

  3. 3. Forvarnastefna Fjarðabyggðar 2024-2025

    Mál 2306007 Allur ferill málsins

    Félagsmálanefnd og fræðslunefnd fóru yfir forvarnastefnu Fjarðabyggðar 2024-2025. Félagsmálanefnd samþykkir stefnuna fyrir sitt leiti. Máli vísað áfram til bæjarráðs.

  4. 4. Reglur um fjárhagsaðstoð 2024

    Mál 2307082 Allur ferill málsins

    Félagsmálanefnd samþykkir uppfærðar reglur Fjarðabyggðar um fjárhagsaðstoð og vísar málinu áfram til bæjarráðs til frekari afgreiðslu.

  5. 5. Skýrsla stjórnenda - félagsmálanefnd

    Mál 2311096 Allur ferill málsins

    Stjórnendur félagsþjónustu og barnaverndar kynntu verkefni á fjölskyldusviði. Félagsmálanefnd þakkar greinargóða kynningu.

  6. 6. Sískráningar til Barnarverndarstofu og árleg skýrsla

    Mál 2003044 Allur ferill málsins

    Stjórnandi barnaverndar kynnir sískráningu og þróun mála í barnavernd.

  7. 7. Niðurstöður Skólapúlsins_haust 2023_6.-10. b

    Mál 2401037 Allur ferill málsins

    Stjórnandi fræðslumála og skólaþjónustu kynnir niðurstöður Skólapúlsins 2023 fyrir félagsmálanefnd og fræðslunefnd.