NefndirStjórn menningarstofu og safnastofnunar
Stjórn menningarstofu og safnastofnunar, fundur 15
9. janúar 2024, kl. 16:40 til 18:33, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Birta Sæmundsdóttir, formaður
- Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
- Elsa Guðjónsdóttir, aðalmaður
- Guðbjörg Sandra Óðinsd. Hjelm, aðalmaður
- Benedikt Jónsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Jóhann Ágúst Jóhannsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 829 liður 16
Fundargerð 15. fundar stjórnar menningarstofu og safnastofnunar frá 9. janúar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 368 liður 5
Til máls tók Stefán Þór Eysteinsson.
Fundargerð stjórnar menningarstofu og safnastofnunar frá 9. janúar staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Endurskoðun Menningarstefnu Fjarðabyggðar
Mál 2211009 Allur ferill málsins
Fjallað um afrakstur vinnu á menningarmótum sem haldin voru í nóvember og farið yfir framahald vinnu við endurskoðun menningarstefnunnar.
Vinnu verður framhaldið við endurskoðun stefnunnar og hún tekin upp síðar.
-
2. Menningarstyrkir 2024
Mál 2401038 Allur ferill málsins
Farið yfir reglur um úthlutun menningarstyrkja og fyrirkomulag umsókna og afgreiðslu þeirra á árinu 2024.
Stjórn samþykkir að auglýst sé eftir umsóknum um menningarstyrki Fjarðabyggðar fyrir 12. febrúar 2024.
-
3. Stjórnkerfisnefnd 2020-2023
Mál 2011203 Allur ferill málsins
Fjallað um breytingar á rekstri í menningarmálaflokki með tilkomu samþykktar bæjarstjórnar á breytingum á stjórnkerfi. Framlögð innkomin bréf sem tengjast breytingum.
-
4. Fundargerðir Sjóminjasafns Austurlands
Mál 2312152 Allur ferill málsins
Framlögð til kynningar fundargerð stjórnar Sjóminjasafns Austurlands frá 21. desember sl.
-
5. Skapandi sumarstörf 2023
Mál 2311075 Allur ferill málsins
Framlögð til kynningar lokaskýrsla skapandi sumarstarfa 2023.
Stjórnin fagnar árangursríku starfi.
-
6. Uppbyggingarsjóður 2023 - umsóknir og styrkveitingar
Mál 2309072 Allur ferill málsins
Farið yfir styrkveitingar sem fengust úr uppbyggingarsjóði Austurlands en veittar voru ein milljón til fjölbreyttra listasmiðja og listsýninga í Fjarðabyggð 2024, Innsævi og fl. auk einnar milljónar til upptaktsins. Ekki fékkst styrkur til þróunar Gallerís í Þórsmörk.
-
7. Verkefni menningarstofu 2024
Mál 2401039 Allur ferill málsins
Forstöðumaður menningarstofu kynnti dagskrá menningarstofu næstu misseri.