NefndirMannvirkja- og veitunefnd
Mannvirkja- og veitunefnd, fundur 22
10. janúar 2024, kl. 16:30 til 18:00, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Svanur Freyr Árnason.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Stefán Þór Eysteinsson, formaður
- Elís Pétur Elísson, varaformaður
- Pálína Margeirsdóttir, aðalmaður
- Kristinn Þór Jónasson, aðalmaður
- Bryngeir Ágúst Margeirsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Svanur Freyr Árnason, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 829 liður 19
Fundargerð 22. fundar mannvirkja- og veitunefndar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 368 liður 7
Enginn tók til máls.
Fundargerð mannvirkja- og veitunefndar frá 10.janúar staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Hleðslustaurar í Fjarðabyggð
Mál 2310060 Allur ferill málsins
Mannvirkja og veitunefnd samþykkir það sem fram kemur í minnisblaðinu og felur sviðsstjóra að semja við E1.
-
2. Fjarðabyggðarhöll - Minnisblað flóttaleiðir
Mál 2401029 Allur ferill málsins
Mannvirkja- og veitunefnd samþykkir breytingu á flóttaleiðum og felur sviðsstjóra að vinna málið áfram.
-
3. Skerðing á rafmagni til fjarvarmaveitna
Mál 2401035 Allur ferill málsins
Lagðar fram tilkynningar frá Landsvirkjun og Orkusölunni um skerðingu á rafmagni til fjarvarmaveita Fjarðabyggðar frá 18. janúar 2024
-
4. Viðarperlukatlar - Minnisblað
Mál 2401059 Allur ferill málsins
Mannvirkja- og veitunefnd samþykkir að fara í viðræður við Tandraorku varðandi kyndingu á fjarvarmaveitum á meðan skerðingu stendur.