Framlög í þágu farsældar barna
Mál 2312159 Fyrst á dagskrá 8. janúar 2024, síðast 25. janúar 2024. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2024
Bæjarráð, fundur 828 liður 5
Fram lagt minnisblað varðandi aukið vinnuálag tengt nýjum lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna og framlög vegna farsældar barna.
Bæjarráð frestar umfjöllun til næsta fundar.
-
Bæjarstjórn, fundur 367 liður 2.5
Fundargerðin „Bæjarráð - 828“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarráð, fundur 829 liður 3
Umfjöllun um málið var frestað á síðasta fundi. Framlagt minnisblað um aukið vinnuálag tengt nýjum lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna. Vegna vinnuálags er vöntun sem nemur um 15 m.kr. í fjárhagsramma ársins 2024 eða sem nemur fjárframlögum jöfnunarsjóðs til samþættingar þjónustu í þágu farsældar barna.
Bæjarráð samþykkir að bætt verði við fjármagni sbr. minnisblað og vísar kostnaðarauka til gerðar viðauka við fjárhagsáætlun 2024.
-
Bæjarstjórn, fundur 368 liður 2.3
Fundargerðin „Bæjarráð - 829“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.