Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 830

22. janúar 2024, kl. 08:30 til 10:16, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Stefán Þór Eysteinsson, formaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður

Starfsmenn

  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 368 liður 1

    Fundargerðir bæjarráðs teknar saman til umfjöllunar og afgreiðslu.

    Til máls tók Stefán Þór Eysteinsson.

    Fundargerð bæjarráðs frá 22. janúar utan liðar 6 staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Veikindalaun 2023

    Mál 2311106 Allur ferill málsins

    Framlögð greinargerð ásamt tillögu um fjármögnun veikindalauna á árinu 2023.

    Bæjarráð vísar fjármögnun veikindalauna til gerðar viðauka.

  2. 2. Fjárhagsáætlun 2023 - viðauki 5

    Mál 2401136 Allur ferill málsins

    Lagður fram viðauki nr. 5 við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2023 um veikindalaun, námsstyrki og ráðstöfun á óráðstöfuðu.

    Bæjarráð samþykkir viðaukann fyrir sitt leyti og vísar honum til afgreiðslu bæjarstjórnar.

  3. 3. Húsnæðisáætlun Fjarðabyggðar 2024

    Mál 2310039 Allur ferill málsins

    Lögð fram að nýju tillaga að húsnæðisáætlun Fjarðabyggðar fyrir 2024 - 2033.

    Bæjarráð samþykkir húsnæðisáætlun og vísar henni til staðfestingar bæjarstjórnar.

  4. 4. 730 Öldugata 6 - Kauptilboð

    Mál 2204118 Allur ferill málsins

    Framlagt kauptilboð Sælínar Sigurjónsdóttur vegna húseignar á lóðinni að Öldugötu 6 á Reyðarfirði.

    Bæjarráð felur umhverfis- og skipulagsfulltrúa að ræða við bjóðanda.

  5. 5. Áform um breytingu á lögum nr. 491997 um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum

    Mál 2401114 Allur ferill málsins

    Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 6/2024 -Áform um breytingu á lögum nr. 49/1997 um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum.

    Bæjarráð fagnar boðaðri breytingu og sveitarfélagið mun taka þátt í samráði um málið.

  6. 6. Erindi frá VA - aðstaða fyrir siglingahermi

    Mál 2401154 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi frá Verkmenntastkóla Austurlands varðandi aðgang að herbergi í sameiginlegu rými verknámshúss VA og íþróttahússins á Norðfirði.

    Bæjarráð fagnar því að boðið verði uppá smáskipnám í Verkmenntaskólanum og samþykkir að veita Verkmenntaskóla Austurlands aðgang að umræddu herbergi og gengið verði frá samkomulagi um afnotin.

  7. 7. Erindi til sveitarstjórnar vegna bókasafna í Fjarðabyggð

    Mál 2312149 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar erindi Austfirskra upplýsinga og Samtaka forstöðumanna almenningsbókasafna.

    Bæjarráð þakkar gagnlegar ábendingar og vísar erindum til stjórnar menningarstofu.

  8. 8. Starfsreglur svæðisskipulagsnefndar

    Mál 2401143 Allur ferill málsins

    Framlagðar til afgreiðslu starfsreglur svæðisskipulagsnefndar Austurlands.

    Bæjarráð samþykkir starfsreglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.

  9. 9. Erindi Persónuverndar vegna notkunar á google lausnum í skólastarfi

    Mál 2401150 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi frá Persónuvernd til allra sveitarfélaga vegna notkunar á Google lausnum í skólastarfi.

    Vísað til upplýsingaöryggisnefndar.

  10. 10. Forvarnastefna Fjarðabyggðar 2024-2025

    Mál 2306007 Allur ferill málsins

    Vísað frá félagsmálanefnd til afgreiðslu bæjarráðs forvarnarstefnu Fjarðabyggðar 2024-2025.

    Bæjarráð samþykkir stefnuna fyrir sitt leyti og vísar henni til staðfestingu bæjarstjórnar.

  11. 11. Starfshópur um skipulagsmál vegna ofanflóðavarna

    Mál 2311229 Allur ferill málsins

    Framlögð samantekt starfshóps Fjarðabyggðar um ofanflóðavarnir og skipulagsmál, ásamt fundargerð nr. 3.

    Vísað til umfjöllunar skipulags- og framkvæmdanefndar.

  12. 12. Fundargerðir stjórnar Sambands Íslenskra sveitarfélaga 2024

    Mál 2401142 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar fundargerð 941. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.

  13. 13. Fundargerðir Samtaka orkusveitarfélaga

    Mál 2302093 Allur ferill málsins

    Fundargerð 68. fundar stjórnar samtaka orkusveitarfélaga lögð fram til kynningar