Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 831

29. janúar 2024, kl. 08:30 til 10:45, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Stefán Þór Eysteinsson, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður
  • Snorri Styrkársson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 369 liður 1

    Til máls tóku: Ragnar Sigurðsson, Stefán Þór Eysteinsson, Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð bæjarráðs frá 29. janúar staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Íbúafundir í janúar 2024

    Mál 2312011 Allur ferill málsins

    Umfjöllun um íbúafundina sem haldnir hafa verið.

  2. 2. Útboð tjaldsvæða 2024

    Mál 2401187 Allur ferill málsins

    Framlögð drög að útboðslýsingu og auglýsingu tjaldsvæða Fjarðabyggðar til sölu.

    Tekið fyrir að nýju á næsta fundi bæjarráðs.

  3. 3. Fundur bæjarráðs með Vegagerðinni

    Mál 2401188 Allur ferill málsins

    Fundur bæjarráðs með forsvarsmönnum Vegagerðar.

    Ræddar nýframkvæmdir með áherslu á botn Reyðarfjarðar og Fáskrúðsfjarðar auk þjónustustigs á vegum og fleiri tengdum málum.

  4. 4. Úttekt á starfsemi og framtíðarfyrirkomulagi náttúrustofa

    Mál 2401171 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf vegna úttektar á starfsemi og framtíðarfyrirkomulagi náttúrustofa frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti og Sambandi íslenskra sveitarfélaga.

    Fram lagt og kynnt.

  5. 5. Ósk um gjaldfrjáls afnot af samkomuhúsinu á Stöðvarfirði

    Mál 2401183 Allur ferill málsins

    Framlagður tölvupóstur frá hjónaballsnefnd Stöðvarfjarðar varðandi gjaldfrjáls afnot af samkomuhúsinu á Stöðvarfirði vegna hjónaballs 2024.

    Bæjarráð samþykkir að styrkja hjónaballið sem nemur leigu húsnæðisins. Kostnaði mætt af liðnum menningarstyrkir.

  6. 6. Tæknidagur Fjölskyldunnar 2024

    Mál 2306040 Allur ferill málsins

    Framlagt minnisblað upplýsingafulltrúa vegna þátttöku í Tæknidegi Fjölskyldunnar 2024.

    Bæjarráð samþykkir tillögur sem koma fram í minnisblaði.

  7. 7. Íþrótta- og tómstundanefnd - 130

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð 130. fundar íþrótta- og tómstundanefndar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

    1. 7.1 Samstarf Fjarðabyggðar við Eyrina Heilsurækt
    2. 7.2 Umsókn körfuknattleiksdeildar Þórs á Akureyri að frístundastyrk Fjarðabyggðar
    3. 7.3 Sumarfrístund 2024