Bæjarráð, fundur 832
5. febrúar 2024, kl. 08:30 til 12:00, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Stefán Þór Eysteinsson, formaður
- Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
- Jón Björn Hákonarson, varaformaður
Starfsmenn
- Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður
- Snorri Styrkársson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 370 liður 1
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku: Stefán Þór Eysteinsson, Ragnar Sigurðsson, Jón Björn Hákonarson, Birgir Jónsson.
Fundargerð bæjarráðs frá 5. febrúar staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Áhrif skerðingar á orku til fjarvarmaveita
Mál 2402003 Allur ferill málsins
Framlagt minnisblað varðandi áhrif skerðingar á rafmagni til fjarvarmaveitna á Norðfirði og Reyðarfirði sem eru í eigu Fjarðabyggðar.
Bæjarráð samþykkir að farin verði leið b samkvæmt minnisblaði sem felur í sér að laugarkari verði lokað á virkum dögum þegar skólasundi líkur en heitir pottar verði opnir. Sviðsstjóra fjölskyldusviðs falið að taka saman notkun um helgar og leggja fyrir næsta fund bæjarráðs.
-
2. Uppgreiðsla á láni til varúðasjóðs Brúar lífeyrissjóðs
Mál 2402010 Allur ferill málsins
Lögð fram tilkynning Brúar lífeyrissjóðs um uppgreiðslu á láni frá árinu 2018 vegna varúðarsjóðs sem var hluti af uppgjöri við sjóðinn vegna breytingar á lögum 127/2016 og samkomulagi ríkis og sveitarfélaga. Felur það í sér uppgreiðslu á liðlega 55 m.kr.
Bæjarráð vísar til gerðar viðauka uppgreiðslu lánsins.
-
3. Tillaga að endurskipulagi íþrótta- og tómstundamála
Mál 2401144 Allur ferill málsins
Framlagt minnisblað sem felur í sér tillögu að breyttu skipulagi og stjórnun æskulýðs- og íþróttamála hjá Fjarðabyggð.
Bæjarráð samþykkir tillögu sviðsstjóra.
-
4. Fyrirkomulag fasteigna vegna hjúkrunarheimila
Mál 2401200 Allur ferill málsins
Skýrslur um eignahald og fjármögnun á hjúkrunarheimilum lagðar fram til kynningar.
Skýrslan lögð fram til kynningar. Fjármálastjóra falið að fara yfir hana með lögfræðingi sveitarfélagsins með tilliti til fasteigna hjúkrunarheimilanna.
-
5. Auglýsing eftir framboðum í stjórn Lánasjóðs sveitarfélaga
Mál 2401212 Allur ferill málsins
Framlögð til kynningar auglýsing Lánasjóðs sveitarfélaga eftir framboðum í stjórn sjóðsins.
-
6. Fjarskiptamál í Fjarðabyggð
Mál 2402017 Allur ferill málsins
Farið yfir fjárskiptamál og þjónustu Mílu hf. í Fjarðabyggð.
-
7. Útboð tjaldsvæða 2024
Mál 2401187 Allur ferill málsins
Framlögð að nýju drög að samningskaupalýsingu og auglýsingu tjaldsvæða Fjarðabyggðar til sölu.
Bæjarráð samþykkir að auglýsa rekstur og búnað tjaldsvæðana til sölu.
-
8. Reglugerð um sjálfbæra landnýtingu
Mál 2401216 Allur ferill málsins
Matvælaráðuneytið hefur kynnt til samráðs drög að reglugerð um sjálfbæra landnýtingu í samræmi við 11. gr. laga um landgræðslu.
Bæjarráð felur sviðsstjóra framkvæmda- og umhverfissviðs og verkefnastjóra umhverfismála að móta umsögn og leggja fyrir næsta fund bæjarráðs.
-
9. Erindi Krabbameinsfélags Austfjarða - Janúar 2024
Mál 2402008 Allur ferill málsins
Framlagt erindi Krabbameinsfélags Austfjarða en óskað er gjaldfrjálsra afnota af félagsheimilunum Egilsbúð og Skrúði vegna viðburða á vegum félagsins.
Bæjarráð samþykkir að styrkja félagið sem nemur húsaleigu vegna leigunnar. Tekið af liðnum óráðstafað 21690.
-
10. Opið bréf vegna Fjarðaganga
Mál 2402028 Allur ferill málsins
Framlagt opið bréf Erlendar Magnúsar Jóhannssonar til bæjarfulltrúa í Fjarðabyggð varðandi Fjarðagöng.
Bæjarráð þakkar erindið og leggur það fram til kynningar.
-
11. Erindi vegna gjaldfrjálsra afnota af eldúsi grunnskólans á Stöðvarfirði
Mál 2312050 Allur ferill málsins
Tekið fyrir að nýju erindi varðandi gjaldfrjáls afnot af eldhúsi grunnskólans á Stöðvarfirði.
Bæjarráð samþykkir að veita Kimi Emma Juliette Tayler fh. Brauðdagar Bakhús aðgang að skólaeldhúsi Breiðdals og Stöðvarfjarðarskóla á Stöðvarfirði sem framlag Fjarðabyggðar til verkefnisins Sterkur Stöðvarfjörður. Veittur verði styrkur til notkunar eldhússins sem tekinn er af liðnum óráðstafað 21690. Fræðslustjóra falið að móta gjaldskrá sem lögð verður fyrir bæjarráð vegna notkunar af skólaeldhúsum.
-
12. Umsókn um lóð Sæbakki 17
Mál 2401169 Allur ferill málsins
Vísað fram skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarráðs umsókn um lóðina Sæbakka 17 í Neskaupstað.
Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni.
-
13. Erindi varðandi styrk til fornleifarannsókna í Stöðvarfirði
Mál 2402019 Allur ferill málsins
Framlagt erindi frá félagi áhugafólks um fornleifarannsóknir í Stöðvarfirði varðandi styrk til verkefnisins á árinu 2024.
Vísað til kynningar stjórnar menningarstofu en á fjárhagsáætlun ársins 2024 er gert ráð fyrir styrk til verkefnisins eins og undanfarin ár.
-
14. Staða mála varðandi Grindavík
Mál 2402018 Allur ferill málsins
Bæjarstjóri fór yfir stöðu mála varðandi eldgos og jarðhræringar í Grindavík í kjölfar upplýsingafundar 2. febrúar sl.
-
15. Fundargerðir Austurbrúar og SSA
Mál 2311224 Allur ferill málsins
Fram lögð til kynningar fundargerð stjórnar Sambands sveitarfélaga á Austurlandi frá 19. janúar sl.
-
16. Fundargerðir Austurbrúar og SSA
Mál 2311224 Allur ferill málsins
Fundargerð 146. fundar stjórnar Austurbrúar lögð fram til kynningar
-
17. Skipulags- og framkvæmdanefnd - 1
Fundargerð 1. fundar skipulags- og framkvæmdanefndar frá 29. janúar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
- 17.1 Erindisbréf skipulags- og framkvæmdanefndar2312053
- 17.2 Gilsbakki 10 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2401155
- 17.3 Þinghólsvegur 5 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2401159
- 17.4 Umsókn um lóð Sæbakki 172401169
- 17.5 Erindi til US vegna Grænt svæði á Fásk2401032
- 17.6 Ný staðsetning gámasvæða2209189
- 17.7 Beiðni um uppsetningu hraðhleðslustöðva2310034
- 17.8 Starfshópur um skipulagsmál vegna ofanflóðavarna2311229
- 17.9 Hundasvæði í Stöðvarfirði2312027
- 17.10 Gjaldfrjálst aðgengi að móttökustöð með fjöruúrgang2401148
- 17.11 Upplýsingatækni - rafræn undirritun skjala byggingafulltrúa2401140
- 17.12 Úrgangsmál 2023 - kynningaefni og fleira2302021
- 17.13 Kynning WPD - Vindorka á Íslandi2401194
- 17.14 Fundaáætlun skipulags- og framkvæmdanefndar vor 20242401189