Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirSkipulags- og framkvæmdanefnd

Skipulags- og framkvæmdanefnd, fundur 1

29. janúar 2024, kl. 14:15 til 16:00, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Þórður Vilberg Guðmundsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (10)

Fundinn sátu

  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, formaður
  • Stefán Þór Eysteinsson, varaformaður
  • Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
  • Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, aðalmaður
  • Kristinn Þór Jónasson, aðalmaður
  • Heimir Snær Gylfason, aðalmaður
  • Ingunn Eir Andrésdóttir, varamaður

Starfsmenn

  • Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður
  • Svanur Freyr Árnason, embættismaður
  • Aron Leví Beck Rúnarsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 832 liður 17

    Fundargerð 1. fundar skipulags- og framkvæmdanefndar frá 29. janúar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 370 liður 3

    Fundargerðir skipulags- og framkvæmdanefndar lagðar fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

    Til máls tóku: Þuríður Lillý Sigurðardóttir, Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 29. janúar staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Erindisbréf skipulags- og framkvæmdanefndar

    Mál 2312053 Allur ferill málsins

    Framlagt erindisbréf skipulags- og framkvæmdanefndar til kynningar fyrir nefndina.

  2. 2. Gilsbakki 10 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

    Mál 2401155 Allur ferill málsins

    Lögð fram umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi Eyþórs Halldórsson, dagsett 19. janúar 2024, þar sem sótt er um leyfi til að byggja bílskúr á lóðinni við Gilsbakka 10 á Norðfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur byggingarfulltrúa að grenndarkynna byggingaráform og leggja niðurstöðu grendarkynningar fyrir nefndina.

  3. 3. Þinghólsvegur 5 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

    Mál 2401159 Allur ferill málsins

    Lögð fram umsókn Svans Þórs Brandsonar f.h. eiganda um byggingaráform og byggingarleyfi, dagsett 19. janúar 2024, þar sem sótt er um leyfi til viðbyggingar við Þinghólsveg 5 á Mjóafirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur byggingarfulltrúa að grendarkynna byggingaráform fyrir íbúum að Þinghólsvegi 3 og leggja niðurstöðu grendarkynningar fyrir nefndina.

  4. 4. Umsókn um lóð Sæbakki 17

    Mál 2401169 Allur ferill málsins

    Framlögð lóðaumsókn Róberts Óskars Sigurvaldasona um lóðina að Sæbakka 17 í Neskaupstað, dagsett 22. janúar 2024. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir að úthluta lóðinni og vísar lóðaúthlutuninni til staðfestingar bæjarráðs.

  5. 5. Erindi til US vegna Grænt svæði á Fásk

    Mál 2401032 Allur ferill málsins

    Íbúar við Hlíðargötu og Skólaveg á Fáskrúðsfirði hafa farið fram á að erindi þeirra varðandi úthlutun lóðar við Hlíðargötu verði tekið fyrir að nýju í skipulags- og framkvæmdanefnd. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um úthlutun umræddrar lóðar. Byggingafulltrúa falið að skoða möguleika á byggingarlóðum utan við Hólsstíg með hæðakvóta lóða í huga. Erindið verður tekið fyrir í nefndinni þegar niðurstaða liggur fyrir varðandi úthlutun lóðarinnar.

  6. 6. Ný staðsetning gámasvæða

    Mál 2209189 Allur ferill málsins

    Umræða varðandi málefni gámasvæðis á Reyðarfirði. Nefndin felur sviðsstjóra og skipulags- og byggingafulltrúa að skoða möguleika á gámasvæði við Kollaleiru og leggja fyrir nefndina að nýju.

  7. 7. Beiðni um uppsetningu hraðhleðslustöðva

    Mál 2310034 Allur ferill málsins

    Framlagðar hugmyndir InstaVolt að staðsetningum hraðhleðslustöðva í Fjarðabyggð. Skipulags- og framkvæmdanefnd lýst vel á framkomnar hugmyndir. Breyta þarf staðsetningu sem lögð er til í Neskaupstað og jafnframt að leggja til staðsetningu á Breiðdalsvík. Nefndin felur sviðsstjóra að útfæra svæðin, ef fleiri aðilar sýna áhuga á uppbyggingu hraðhleðslustöðva, og jafnframt að leggja fram tillögu að verðskrá.

  8. 8. Starfshópur um skipulagsmál vegna ofanflóðavarna

    Mál 2311229 Allur ferill málsins

    Vísað frá bæjarráð til kynningar í skipulags- og framkvæmdanefnd fundargerð 3. fundar starfshóps um skipulagsmál og ofanflóðavarnir, auk samantektar á störfum hópsins.

  9. 9. Hundasvæði í Stöðvarfirði

    Mál 2312027 Allur ferill málsins

    Erindi varðandi hundasvæði á Stöðvafirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar fyrir erindið, og samþykkir hugmyndir að breytingu á hundasvæði á Stöðvarfirði. Framkvæmdin skal vera í samráði við skipulags- og umhverfisfulltrúa. Skipulags- og framkvæmdanefnd leggur til að aðkoma Fjarðabyggðar verði með sama sniði og á öðrum hundasvæðum í Fjarðabyggð, þ.e. bætt aðkoma, skilti og ruslatunna.

  10. 10. Gjaldfrjálst aðgengi að móttökustöð með fjöruúrgang

    Mál 2401148 Allur ferill málsins

    Erindi Göngufélags Suðurfjarða um gjaldfrjáls aðgengi að móttökustöð vegna fjöruhreinsunar félagsins. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar fyrir erindið og samþykkir að tekið verði við því rusli sem tilfellur í fjöruhreinsun félagsins án endurgjalds. Verkefnastjóra umhverfismála falið að vera í sambandi við félagið varðandi nánari útfærslu.

  11. 11. Upplýsingatækni - rafræn undirritun skjala byggingafulltrúa

    Mál 2401140 Allur ferill málsins

    Farið yfir stöðu mála varðandi innleiðingu á rafrænni undirritun byggingarfulltrúar. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar fyrir kynninguna.

  12. 12. Úrgangsmál 2023 - kynningaefni og fleira

    Mál 2302021 Allur ferill málsins

    Framlagt minnisblað verkefnastjóra umhverfismála vegna kostnaðar við grendarstöðvar. Verkefnastjóra umhverfismála falið að vinna áfram að málinu á grunni minnisblaðsins, leggja tillögu að endanlegri útfærslu fyrir nefndina ásamt útfærslum á tæmingu og kostnaði. Skipulagsfulltrúa falið að koma með tillögur að staðsetningum grendarstöðva.

  13. 13. Kynning WPD - Vindorka á Íslandi

    Mál 2401194 Allur ferill málsins

    Framlögð gögn með kynningu WPD um Vindorku á Íslandi. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar kynninguna.

  14. 14. Fundaáætlun skipulags- og framkvæmdanefndar vor 2024

    Mál 2401189 Allur ferill málsins

    Umræða um fundaáætlun nefndarinnar vorið 2024. Fundir skipulags- og framkvæmdanefndar verða á mánudögum og hefjast þeir kl. 16:00