NefndirSkipulags- og framkvæmdanefnd
Skipulags- og framkvæmdanefnd, fundur 2
7. febrúar 2024, kl. 16:00 til 18:45, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (10)
Fundinn sátu
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, formaður
- Stefán Þór Eysteinsson, varaformaður
- Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
- Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, aðalmaður
- Kristinn Þór Jónasson, aðalmaður
- Ingunn Eir Andrésdóttir, varamaður
- Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Svanur Freyr Árnason, embættismaður
- Aron Leví Beck Rúnarsson, embættismaður
- Gunnar Jónsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 833 liður 17
Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 7. febrúar.
Bæjarstjórn, fundur 370 liður 4
Fundargerðir skipulags- og framkvæmdanefndar lagðar fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 7. febrúar staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Umsókn um lóð Móbakki 16
Mál 2402052 Allur ferill málsins
Framlögð lóðaumsókn Róberts Óskars Sigurvaldasonar, f.h. Búðinga ehf, um lóðina að Móbakka 16 í Neskaupstað.
Skipulags- og framkvæmdanefnd telur að vegna fyrirhugaðra breytinga á deiliskipulagi þá sé horft til þess að reist séu tveggja hæða hús við Bakkaveg. Nefndin felur umhverfis- og skipulagsfulltrúa að ræða við umsækjanda um áform hans. Úthlutun lóðar er frestað.
-
2. Melbrún 8 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Mál 2401222 Allur ferill málsins
Framlögð umsókn Einars Ólafsson, hönnuðar, f.h. Kristins Ingimarssonar vegna viðbyggingar við Melbrún 8 á Reyðarfirði.
Skipulags- og framkvæmdanefnd felur byggingarfulltrúa að grenndarkynna byggingaráform og leggja niðurstöðu grenndarkynningar fyrir nefndina.
-
3. Kirkjubólseyri 2 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Mál 2402026 Allur ferill málsins
Framlögð umsókn Valgeirs Kristjáns Guðmundssonar, dagsett 2. febrúar 2024, um byggingarleyfi vegna landbúnaðarmannvirkja á Kirkjubólseyri 2 í Norðfirði.
Skipulags- og framkvæmdanefnd felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.
-
4. Umsókn um stöðuleyfi
Mál 2209200 Allur ferill málsins
Umræða um áður útgefið stöðuleyfi fyrir vinnubúðir á Fáskrúðsfirði.
Umhverfis- og skipulagsfulltrúi upplýsti um úrlausn mála vegna stöðuleyfis en málið er í ferli.
Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir tillögu að lausn mála.
-
5. Umsókn um stöðuleyfi
Mál 2402001 Allur ferill málsins
Framlögð stöðuleyfisumsókn Óskars Marinós Sigurjónssonar, dagsett 1. febrúar 2024, varðandi stöðuleyfi fyrir 40 feta gám á gámasvæði á Fáskrúðsfirði.
Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir stöðuleyfi fyrir 40 feta gám á gámsvæðinu á Fáskrúðsfirði og felur byggingafulltrúa að ganga frá samningi þar um.
-
6. Aðalskipulag breyting tjaldsvæði Eskifirði
Mál 2401199 Allur ferill málsins
Framlögð tillaga skipulagsfulltrúa að breytingu á aðalskipulagi á Eskifirði. Tillagan er gerð í framhaldi af vinnu starfshóps um skipulagsmála og ofanflóðavarnir sem nýlega lauk störfum.
Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir að fela skipulagsfulltrúa að hefja undirbúning að breytingu á aðalskipulagi á Eskifirði vegna breyttrar staðsetningar á afþreyingar- og ferðamannasvæði og stækkun á íbúðarsvæði í Dal 3 á Eskifirði.
-
7. Strandgata 6 Neskaupstað ásigkomulag
Mál 2402048 Allur ferill málsins
Framlagt minnisblað skipulagsfulltrúa vegna ásigkomulags húseignarinnar að Strandgötu 6 í Neskaupstað.
Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir með vísan til 56. gr. mannvirkjalaga að rita eiganda bréf vegna ástands hússins og hættu sem nágrönnum stafar af því.
-
8. Númerslausir bílar
Mál 2304069 Allur ferill málsins
Skipulags- og umhverfisfulltrúi kynnti framgang umhverfis- og fegrunarverkefnis sem lýtur að númerlausum bílum í sveitarfélaginu.
Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar kynninguna og fagnar áformum.
-
9. Fiskeldissjóður - umsóknir 2024
Mál 2308085 Allur ferill málsins
Fiskeldissjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki fyrir árið 2024. Til úthlutunar á árinu 2024 eru kr. 437.200.000.
Sviðsstjóra framkvæmda- og umhverfissviðs er falið að hefja vinnu við undirbúning umsókna fyrir árið 2024 og leggja tillögu að þeim fyrir nefndina.
-
10. Erindi vegna akstursíþróttasvæðis
Mál 2402041 Allur ferill málsins
Framlagt erindi Bílaklúbbs Austurlands sem barst 5. febrúar 2024. Erindið snýr að hugmyndum um uppsetningu akstursíþróttasvæðis í Fjarðabyggð.
Skipulags- og framkvæmdanefnd óskar eftir nánari hugmyndum og útfærslum félagsins um akstursíþróttasvæði.
-
11. Ný staðsetning gámasvæða
Mál 2209189 Allur ferill málsins
Umræða um staðsetningu gámasvæðis á Reyðarfirði. Framhald umræðu frá síðasta fundi.
Skipulags- og umhverfisnefnd felur sviðstjóra framkvæmda- og umhverfissviðs að kostnaðarmeta gerð nýs gámasvæðis á Reyðarfirði fyrir nefndina. Jafnframt verði lögð fram tillaga um endurskoðun á gjaldskrá fyrir gámasvæði og drög að nýjum reglum um umgengni á gámasvæðum.
-
12. Reglugerð um sjálfbæra landnýtingu
Mál 2401216 Allur ferill málsins
Matvælaráðuneytið hefur kynnt til samráðs drög að reglugerð um sjálfbæra landnýtingu í samræmi við 11. gr. laga um landgræðslu. Umsagnarfrestur er til 14. febrúar nk.
Framlagt til kynningar.
Bæjarráð hefur þegar falið sviðsstjóra framkvæmda- og umhverfissviðs og verkefnastjóra umhverfismála að vinna drög að umsögn.