Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 833

12. febrúar 2024, kl. 08:30 til 11:30, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Stefán Þór Eysteinsson, formaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður

Starfsmenn

  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Snorri Styrkársson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 370 liður 2

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð bæjarráðs frá 12. febrúar staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Rekstur málaflokka 2023 - TRÚNAÐARMÁL

    Mál 2303071 Allur ferill málsins

    Lagt fram sem trúnaðarmál yfirlit yfir rekstur málaflokka 2023 auk deildayfirlits í A hluta fyrir árið 2023.

    Fram lagt og kynnt.

  2. 2. Auglýsingasamningur við blakdeild Þróttar 2024 - 2026

    Mál 2402059 Allur ferill málsins

    Framlögð drög að endurnýjuðum auglýsingasamning við blakdeild Þróttar ásamt minnisblaði.

    Bæjarráð samþykkir nýjan auglýsingasamning og felur bæjarstjóra undirritun hans.

  3. 3. Vatnsveita í Mjóafirði

    Mál 2402038 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi frá Sigfúsi Vilhjálmssyni vegna vatnsveitu og ýmissa mála í Mjóafirði.

    Bæjarráð vísar erindi til skipulags- og framkvæmdanefndar auk hafnarstjórnar. Bæjarráð áformar fund með íbúum Mjóafjarðar með vorinu.

  4. 4. Áhrif skerðingar á orku til fjarvarmaveita

    Mál 2402003 Allur ferill málsins

    Framlagt minnisblað um notkun í Stefánslaug um helgar samanber umfjöllun síðasta fundar bæjarráðs og áhrif skerðingar á fasteignarekstur.

    Bæjarráð samþykkir að fyrirkomulag opnunar verði í samræmi við fyrri samþykkt meðan á skerðingu orku stendur.

  5. 5. Reglugerð um sjálfbæra landnýtingu

    Mál 2401216 Allur ferill málsins

    Tekin fyrir að nýju samráðstillaga um drög að reglugerð um sjálfbæra landnýtingu í samræmi við 11. gr. laga um landgræðslu. Framlögð drög að umsögn.

    Bæjarritara falið að skila umsögn um samráðstillöguna.

  6. 6. Egilsbraut 4 - Nytjamarkaður ósk um aukið rými

    Mál 2310038 Allur ferill málsins

    Fjallað um húsnæðismál Steinsins nytjamarkaðar og samstarf um endurnýtingu nytjahluta.

    Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að ganga frá samningi við Steininn nytjamarkað á grundvelli tillagna sem lagðar eru fram.

  7. 7. Slökkvilið Fjarðabyggðar - málefni

    Mál 2305266 Allur ferill málsins

    Farið yfir málefni slökkviliðs.

  8. 8. Þróun hafnarsvæða

    Mál 2108027 Allur ferill málsins

    Farið yfir þróunarmál atvinnu- og hafnarsvæða.

  9. 9. Búsetukjarni og skammtímavistun

    Mál 2301106 Allur ferill málsins

    Framlagt minnisblað um byggingu búsetukjarna fyrir fatlað fólk.

    Bæjarráð samþykkir að fela sviðsstjóra fjölskyldusviðs að vinna málið áfram á grunni hugmynda sem eru framlagðar.

  10. 10. Aðstoðarmannakort

    Mál 2401186 Allur ferill málsins

    Vísað frá félagsmálanefnd til afgreiðslu bæjarráðs tillögu um útgáfu aðstoðarmannakorta fyrir starfsfólk sem fylgir einstaklingum með umfangsmiklar stuðningsþarfir í sund.

    Bæjarráð samþykkir tillöguna.

  11. 11. Úrgangs- og umhverfismál. Þróunarverkefni

    Mál 2302021 Allur ferill málsins

    Farið yfir stöðu á þróunarverkefna vegna úrgangsmála og umhverfismála og kynnt drög að yfirlýsingum.

    Bæjarráð samþykkir framlagðar samstarfsyfirlýsingar vegna þróunarverkefnanna.

  12. 12. Starfshópur um húsnæðismál myndlistarsafns

    Mál 2211102 Allur ferill málsins

    Gerð grein fyrir málefnum Myndlistarsafns Tryggva Ólafsson.

  13. 13. Aukaaðlafundur Leigufélagsins Bríetar 2023

    Mál 2402093 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar fundargerð aukaaðalfundar Leigufélagsins Bríetar ásamt uppfærðri samþykkt félagsins.

  14. 14. Málþing um orkumál 15. mars 2024

    Mál 2402065 Allur ferill málsins

    Stjórn Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum, SSKS, boðar til málþings um stöðuna í orkumálum undir yfirskriftinni Er íslensk orka til heimabrúks á Grand hóteli í Reykjavík, föstudaginn 15. mars, kl. 08:30

  15. 15. Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 2023

    Mál 2301183 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar fundargerð 942. stjórnarfundar Sambands íslenskra sveitarfélaga.

  16. 16. Hafnarstjórn - 307

    Fundargerðin í heild

    Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð hafnarstjórnar frá 5. febrúar

    1. 16.1 Rekstur Fjarðabyggðarhafna2312117
    2. 16.2 Starfs- og fjárhagsáætlun hafnarstjórnar 20242305073
    3. 16.3 Sjóvarnir við Egilsbraut 26, Neskaupstað2210158
    4. 16.4 Skemmtiferðaskip í Fjarðabyggðarhöfnum2205243
    5. 16.5 Grænn orkugarður á Reyðarfirði2108124
    6. 16.6 Beiðni um umsögn v.endurnýjunar heimavigtunarleyfis fiskimjölsverksmiðju2401204
    7. 16.7 Hafnasambandsþing 20242401111
    8. 16.8 Fundargerðir Hafnasambands Íslands 20242402027
  17. 17. Skipulags- og framkvæmdanefnd - 2

    Fundargerðin í heild

    Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 7. febrúar.

    1. 17.1 Umsókn um lóð Móbakki 162402052
    2. 17.2 Melbrún 8 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2401222
    3. 17.3 Kirkjubólseyri 2 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2402026
    4. 17.4 Umsókn um stöðuleyfi2209200
    5. 17.5 Umsókn um stöðuleyfi2402001
    6. 17.6 Aðalskipulag breyting tjaldsvæði Eskifirði2401199
    7. 17.7 Strandgata 6 Neskaupstað ásigkomulag2402048
    8. 17.8 Númerslausir bílar2304069
    9. 17.9 Fiskeldissjóður - umsóknir 20242308085
    10. 17.10 Erindi vegna akstursíþróttasvæðis2402041
    11. 17.11 Ný staðsetning gámasvæða2209189
    12. 17.12 Reglugerð um sjálfbæra landnýtingu2401216
  18. 17. Fræðslunefnd - 136

    Fundargerðin í heild

    Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð fræðslunefndar frá 7. febrúar

    1. 17.1 Snjalltækjavæðing og reglur um snjalltæki í grunnskólum Fjarðabyggðar1806053
    2. 17.2 Skólamáltíðir grunnskóla2210173
    3. 17.3 Skýrsla stjórnanda fræðslumála og skólaþjónustu2311040
  19. 18. Félagsmálanefnd - 176

    Fundargerðin í heild

    Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð félagsmálanefndar frá 6. febrúar.

    1. 18.1 Búsetuþjónusta2211100
    2. 18.2 Aðstoðarmannakort2401186
    3. 18.3 Skýrsla stjórnenda - félagsmálanefnd2311096
    4. 18.4 Gott að eldast-samþætting þjónustu Fjarðabyggð og HSA2306119