Bæjarráð, fundur 834
19. febrúar 2024, kl. 08:30 til 10:30, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Stefán Þór Eysteinsson, formaður
- Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, varamaður
Starfsmenn
- Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Snorri Styrkársson, embættismaður
Dagskrá
-
1. Þjóðlendumál kröfur óbyggðanefndar eyjar og sker
Mál 2402163 Allur ferill málsins
Framlögð kröfugerð Óbyggðanefndar í sker og eyjar.
Bæjarráð felur lögmanni sveitarfélagsins að yfirfara kröfugerð ríkisins í landsvæði það sem er eign þess og leggja fyrir bæjarráð.
-
2. Starfshópur fræðslumála 2023
Mál 2309181 Allur ferill málsins
Fjallað um áfangaskýrslu starfshóps um fræðslumál sem lögð er fram sem trúnaðarmál.
-
3. Fiskeldissjóður - umsóknir 2024
Mál 2308085 Allur ferill málsins
Framlagt til kynningar minnisblað um tillögur að verkefnum til umsókna fyrir starfsárið 2024 til fiskeldissjóðs.
Bæjarráð felur sviðsstjóra framkvæmda- og umhverfissviðs að sækja um framlög til sjóðsins.
-
4. Íbúakönnun 2023
Mál 2310063 Allur ferill málsins
Framlagðar til kynningar niðurstöður könnunar sem unnin var í haust á þjónustu sveitarfélagsins.
-
5. Framtíð Íslenska Stríðsárasafnsins
Mál 2206071 Allur ferill málsins
Vísað frá stjórn menningarstofu til afgreiðslu bæjarráðs tillögu um fjármögnun endurbóta fyrir stríðsárasafnið sumarið 2024 til að sýning verði sett upp sbr. tillögu í framlögðu minnisblaði. Lögð verði fram kostnaðaráætlun um framkvæmdir vegna opnunar sýningar á árinu 2024.
Bæjarráði lýst vel á hugmyndir og að kostnaðaráætlun fyrir framkvæmdir verði lögð fyrir næsta fund bæjarráðs.
-
6. Gjaldskrá líkamsræktarstöðva 2024
Mál 2309161 Allur ferill málsins
Vísað frá íþrótta- og tómstundanefnd til afgreiðslu bæjarráðs tillögum um breytingu á gjaldskrá líkamsræktarstöðva vegna rafræns aðgangs utan hefðbundins opnunartíma. Lagt er til að gjaldið fyrir þá þjónustu verði 500 krónur á mánuði.
Bæjarráð samþykkir breytingar á gjaldskrá og þær taki gildi frá og með 1. mars 2024.
-
7. Gjaldskrá húsnæðis grunnskóla
Mál 2309157 Allur ferill málsins
Framlögð endurskoðuð gjaldskrá fyrir grunnskóla í Fjarðabyggð vegna afnota af heimilisfræðistofu vegna beiðna um afnot sem ná yfir heilan dag.
Bæjarráð samþykkir breytingar á gjaldskrá og hún taki gildi frá og með 1. mars 2024.
-
8. Stafrænt pósthólf - ný reglugerð
Mál 2402140 Allur ferill málsins
Framlögð til kynningar ný reglugerð um stafrænt pósthólf á island.is
-
9. Íþrótta- og tómstundanefnd - 131
Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar frá 12. febrúar tekin til umfjöllunar og afgreiðslu.
- 9.1 Aðstoðarmannakort
- 9.2 Ungmennaráð - 9
- 9.3 Ungmennaráð - 10
- 9.4 Gjaldskrá líkamsræktarstöðva 2024
- 9.5 Fjölþætt heilsuefling fyrir eldri aldurshópa
-
10. Stjórn menningarstofu - 1
Fundargerð stjórnar menningarstofu frá 13. febrúar tekin til umfjöllunar og afgreiðslu.
-
11. Ungmennaráð - 9
Fundargerð ungmennaráðs frá 9. nóvember tekin til umfjöllunar og afgreiðslu.
-
12. Ungmennaráð - 10
Fundargerð ungmennaráðs frá 13. desember tekin til umfjöllunar og afgreiðslu.
- 12.1 Athugasemd v. gangbrautar í Neskaupstað2310191
- 12.2 Starfshópur vegna íþróttamannvirkja2303018
- 12.3 Forvarnateymi Fjarðabyggðar 2023-20242312028
- 12.4 Erindi til ungmennaráðs: v. gangbrautar yfir Austurveg á Reyðarfirði2312048