Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirStjórn menningarstofu

Stjórn menningarstofu, fundur 1

13. febrúar 2024, kl. 16:30 til 18:00, í Molanum fundarherbergi 4. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Birta Sæmundsdóttir, formaður
  • Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
  • Guðbjörg Sandra Óðinsd. Hjelm, aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Jóhann Ágúst Jóhannsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 834 liður 10

    Fundargerð stjórnar menningarstofu frá 13. febrúar tekin til umfjöllunar og afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 372 liður 7

    Fundargerðir stjórnar menningarstofu nr. 1 og 2 teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Engin tók til máls.

    Fundargerð stjórnar menningarstofu frá 13. febrúar er staðfest með 9 atkvæðum

Dagskrá

  1. 1. Framtíð Íslenska Stríðsárasafnsins

    Mál 2206071 Allur ferill málsins

    Framlagt minnisblað um framtíð íslenska stríðsárasafnsins.

    Stjórn menningarstofu leggur til að sýning verði sett upp sbr. tillögu í minnisblaði í bragga á safninu. Þá leggur stjórn til að haldinn verði upplýsinga- og kynningarfundur þar sem framtíð Íslenska stríðsárasafnsins verði rædd út frá staðsetningu þess. Stjórn tekur málið að nýju fyrir á fundi sínum 27. febrúar og þá verði lögð fram kostnaðaráætlun um framkvæmdir vegna opnunar sýningar á árinu 2024. Jafnframt er málinu vísað til bæjarráðs varðandi fjármögnun endurbóta fyrir sumarið 2024. Varðandi framtíðarsýn safnsins þá leggur stjórnin áherslu á að niðurstaða verði fengin fyrir lok mars.

  2. 2. Miðstöð héraðsskjalasafna um rafræna skjalavörslu

    Mál 2402021 Allur ferill málsins

    Framlagt og kynnt bréf vegna rafrænnar skjalavörslu og stofnunar félagsins Miðstöð héraðsskjalasafna um rafræna skjalavörslu (MHR)

  3. 3. Erindi varðandi styrk til fornleifarannsókna í Stöðvarfirði

    Mál 2402019 Allur ferill málsins

    Vísað frá bæjarráði erindi félags áhugafólks um fornleifarannsóknir í Stöðvarfirði og styrkveitingar.

    Stjórnin hefur þegar samþykkt að veita styrk til fornleifarannsóknanna og stefnir á að heimsækja vettvang rannsóknanna í júní.

  4. 4. Stafrænar aðgerðir gegn loftlagsbreytingum tengdar menningarlandslagi

    Mál 2402094 Allur ferill málsins

    Framlagður til kynningar tölvupóstur um verkefni á vegum Skriðuklausturs um stafrænar aðgerðir gegn loftlagsbreytingum tengdar menningarlandslagi.