Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 835

26. febrúar 2024, kl. 08:30 til 11:00, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Stefán Þór Eysteinsson, formaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, varamaður

Starfsmenn

  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður
  • Snorri Styrkársson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 372 liður 1

    Fundargerðir bæjarráðs nr. 835, 836 og 837 teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Engin tók til máls.

    Fundargerð bæjarráðs frá 26. febrúar er staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Samstarfssamningur um byggingu búsetukjarna Reyðarfirði

    Mál 2402218 Allur ferill málsins

    Tekið fyrir að nýju til umfjöllunar bygging íbúðarkjarna fatlaðs fólks. Framlögð drög að samstarfssamningi við R101 ehf. um áform um að byggja íbúðakjarna auk skammtímavistunar fyrir fatlað fólk á Reyðarfirði.

    Framlagt og kynnt.

  2. 2. Umsókn um stofnframlög á árinu 2023

    Mál 2302095 Allur ferill málsins

    Lagðar fram niðurstöður HMS vegna umsóknar um stofnframlög til íbúðabyggingar fyrir tekju- og eignalága einstaklinga og fjölskyldur í Fjarðabyggð. Lagt er til að staðfesta framsal úthlutunarinnar til Brákar íbúðafélags hses.

    Framlagt til kynningar.

  3. 3. Framlag til rekstrar Stefánslaugar

    Mál 2402177 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi frá Vélaverkstæði G. Skúlasonar um framlag til Stefánslaugar til að halda sundlauginni í óbreyttum rekstri þrátt fyrir skerðingar.

    Bæjarráð þakkar gott boð fyrirtækisins og felur deildarstjóra íþróttamannvirkja og íþróttamála ásamt sviðsstjóra að ræða við forsvarsmenn fyrirtækisins.

  4. 4. Kauptilboð JD70 ehf í Urðarteig 37 Neskaupstað

    Mál 2402219 Allur ferill málsins

    Framlagt kauptilboð í Urðarteig 37 í Neskaupstað.

    Bæjarráð samþykkir að taka kaupatilboði og felur bæjarstjóra að undirrita skjöl vegna sölu eignarinnar.

  5. 5. Beiðni um smölun ágangsfjár í Óseyri Stöðvarfirði

    Mál 2306063 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi Ívars Ingimarsson dags. 19. febrúar 2024 til bæjarstjórnar Fjarðabyggðar þar sem óskað er eftir upplýsingum um kostnað sveitarfélagsins við gerð lögfærðiálits.

    Fram lagt og kynnt, bæjarritara falið að upplýsa um kostnað vegna álitsgerðarinnar.

  6. 6. Umsókn um frí afnot íþróttahúss Reyðafjarðar vegna ársthátíðar starfsmanna Fjarðabyggðar

    Mál 2402213 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi árshátíðarnefndar starfsmannafélags Fjarðabyggðar óskar eftir afnotum af íþróttahúsi Reyðarfjarðar endurgjaldslaust vegna árshátíðar starfsmanna Fjarðabyggðar sem fer fram þann 16. mars 2024.

    Bæjarráð samþykkir að styrkja starfsmannafélagið um leigu íþróttahússins. Tekið af liðnum óráðstafað 21690.

  7. 7. Drög að borgarstefnu í samráðsgátt

    Mál 2402217 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar drög að borgarstefnu sem liggja frami í samráðsgátt stjórnvalda.

  8. 8. Umsókn um lóð Hlíðargata 7-9, Fásk

    Mál 2312003 Allur ferill málsins

    Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarráðs umsókn um lóðina að Hlíðargötu 7 - 9 á Fáskrúðsfirði.

    Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni.

  9. 9. Umsókn um lóð Móbakki 16

    Mál 2402052 Allur ferill málsins

    Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarráðs umsókn um lóðina að Móbakka 16 í Neskaupstað.

    Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni.

  10. 10. Fundargerðir stjórnar Sambands Íslenskra sveitarfélaga 2024

    Mál 2401142 Allur ferill málsins

    Fundargerð 934. fundar stjórnar sambands Íslenskra sveitarfélaga lögð fram til kynningar.

  11. 11. Hafnarstjórn - 308

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð 308. fundar hafnarstjórnar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

    1. 11.1 Rekstur Fjarðabyggðarhafna2312117
    2. 11.2 Sjóvarnir við Egilsbraut 26, Neskaupstað2210158
    3. 11.3 Ósk Cargow um landtengingu á Mjóeyrarhöfn2012071
    4. 11.4 Öryggismál hafna2206100
    5. 11.5 Tímabundinn rammi í Fáskrúðsfirði2402135
    6. 11.6 Vatnsveita í Mjóafirði2402038
    7. 11.7 Sjávarútvegsskólinn á Austurlandi 20242402056
    8. 11.8 Aðalfundur Cruise Iceland 20242402085
    9. 11.9 Mannvirki sem skylt er að vátryggja hjá NTÍ.2402087
    10. 11.10 Málþing um íslenska strandmenningu2402143
  12. 12. Skipulags- og framkvæmdanefnd - 3

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð 3. fundar skipulags- og framkvæmdanefndar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

    1. 12.1 Umsókn um lóð Hlíðargata 7-9, Fásk2312003
    2. 12.2 Umsókn um lóð Móbakki 162402052
    3. 12.3 Sæbakki 17 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2402175
    4. 12.4 Mannvirki sem skylt er að vátryggja hjá NTÍ.2402087
    5. 12.5 Þinghólsvegur 5 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2401159
    6. 12.6 Hjallaleira 9 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2402068
    7. 12.7 Bakkavegur 5 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2402155
    8. 12.8 Kröfur um úrbætur á eldvörnum.2402088
    9. 12.9 Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Austurlands 2023-20242301174
    10. 12.10 Stækkun lóða við Hjallaleiru2303218
    11. 12.11 Drög að breytingum á reglum um stöðuleyfi lausafjármuna2402159
    12. 12.12 Samningur við Skógræktarfélag Reyðarfjarðar2302213
    13. 12.13 Fiskeldissjóður - umsóknir 20242308085
    14. 12.14 Framkvæmdaleyfi vegna Mjóeyrahafnar2402150
    15. 12.15 Vatnsveita í Mjóafirði2402038
    16. 12.16 Framkvæmdaleyfi vegna lagningar ljósleiðara á Neskaupsstað2402179
    17. 12.17 Framkvæmdaleyfi lagningar ljósleiðara á Eskifirði2402178
  13. 13. Starfshópur fræðslumála 2023

    Mál 2309181 Allur ferill málsins

    Farið yfir niðurstöður starfshóps sem lagðar eru fram sem trúnaðarmál.

    Bæjarráð vísar tillögum til stjórnkerfisnefndar.