Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 308

19. febrúar 2024, kl. 16:30 til 19:30, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Arnfríður Eide Hafþórsdóttir, formaður
  • Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
  • Einar Hafþór Heiðarsson, aðalmaður
  • Sævar Guðjónsson, varamaður
  • Heimir Snær Gylfason, aðalmaður

Starfsmenn

  • Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður
  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 835 liður 11

    Fundargerð 308. fundar hafnarstjórnar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 372 liður 5

    Fundargerð hafnarstjórnar nr. 308 frá 19. febrúar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

    Engin tók til máls.

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 19. febrúar er staðfest með 9 atkvæðum

Dagskrá

  1. 1. Rekstur Fjarðabyggðarhafna

    Mál 2312117 Allur ferill málsins

    Yfirferð þeirrar vinnu sem hefur verið unnin frá síðasta fundi. Hafnarstjóra falið að vinna áfram að málinu.

  2. 2. Sjóvarnir við Egilsbraut 26, Neskaupstað

    Mál 2210158 Allur ferill málsins

    Lögð fram kostnaðargreining á endurbyggingu mannvirkja sem tekin voru niður við gerð sjóvarnargarðs við Egilsbraut 22 og 26 í Neskaupstað. Verkefnastjóra hafna og sviðsstjóra framkvæmdasviðs falið að fylgja málinu eftir.

  3. 3. Ósk Cargow um landtengingu á Mjóeyrarhöfn

    Mál 2012071 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnisblað frá Eflu hf. vegna landtengingar skipa Cargow á Mjóeyrarhöfn. Hafnarstjórn fagnar áformum Cargow en líkt og með önnur sambærileg verkefni í Fjarðabyggðarhöfnum er gert ráð fyrir að fyrirtæki standi sjálf straum af kostnaði.

  4. 4. Öryggismál hafna

    Mál 2206100 Allur ferill málsins

    Lögð fram skýrsla vegna úttektar á öryggismálum Fjarðabyggðarhafna sem Öryggisstjórnun ehf. framkvæmdi í lok árs 2023. Gísli Nils Einarsson mætti á fundinn og fór yfir helstu niðurstöður.

  5. 5. Tímabundinn rammi í Fáskrúðsfirði

    Mál 2402135 Allur ferill málsins

    Lagt fram erindi frá Fiskeldi Austfjarða þar sem óskað er eftir leyfi til að setja út tímabundinn ramma í Fáskrúðsfirði vegna viðhalds á kvíum. Hafnarstjórn samþykkir erindið fyrir sitt leyti með þeim fyrirvara að allra tilskilinna leyfa sé aflað.

  6. 6. Vatnsveita í Mjóafirði

    Mál 2402038 Allur ferill málsins

    Vísað frá bæjarráði til hafnarstjórnar erindi frá Sigfúsi Vilhjálmssyni vegna hafnaraðstöðu í Mjóafirði. Verkefnastjóra hafna falið að afla frekari upplýsinga um stöðu mála og leggja fyrir að nýju.

  7. 7. Sjávarútvegsskólinn á Austurlandi 2024

    Mál 2402056 Allur ferill málsins

    Lagt fram bréf Sjávarútvegsskóla unga fólksins er varðar samstarf og kostnaðarþátttöku sumarið 2024. Hafnarstjórn samþykkir að styrkja Sjávarútvegsskóla unga fólksins líkt og undanfarin ár.

  8. 8. Aðalfundur Cruise Iceland 2024

    Mál 2402085 Allur ferill málsins

    Boðað hefur verið til aðalfundar Cruise Iceland sem haldinn verður í Borgarfirði 3.apríl næstkomandi. Hafnarstjóra er falið að taka ákvörðun um hvort Fjarðabyggðarhafnir sendi fulltrúa á fundinn.

  9. 9. Mannvirki sem skylt er að vátryggja hjá NTÍ.

    Mál 2402087 Allur ferill málsins

    Lagt fram til kynningar erindi frá Náttúruhamfaratryggingu Íslands er varðar þau mannvirki sem skylt er að vátryggja hjá NTÍ

  10. 10. Málþing um íslenska strandmenningu

    Mál 2402143 Allur ferill málsins

    Lagt fram til kynningar. Vitafélagið-íslensk strandmenning hefur boðað til ráðstefnu um íslenska strandmenningu - stöðu hennar og framtíð sem fer fram á Akranesi mánudaginn 4. mars næstkomandi.