Hafnarstjórn, fundur 309
4. apríl 2024, kl. 17:00 til 19:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Heimir Snær Gylfason, formaður
- Jón Björn Hákonarson, varaformaður
- Bryngeir Ágúst Margeirsson, aðalmaður
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, aðalmaður
- Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður
- Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 842 liður 10
Fundargerð hafnarstjórnar frá 4. apríl tekin til umfjöllunar og afgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 375 liður 6
Enginn tók til máls.
Fundargerð hafnarstjórnar frá 4. apríl utan liðar 2 staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Rekstur Fjarðabyggðarhafna
Mál 2312117 Allur ferill málsins
Yfirferð þeirrar vinnu sem hefur verið unnin frá síðasta fundi.
-
2. Sjóvarnir við Egilsbraut 26, Neskaupstað
Mál 2210158 Allur ferill málsins
Lögð fram fundargerð frá fundi verkefnastjóra hafna og sviðsstjóra framkvæmdasviðs með eiganda Egilsbrautar 22 og 26 í Neskaupstað vegna endurbyggingar mannvirkja við húseignirnar tvær. Bryggjusmíði við Egilsbraut 22 og 26 er komin af stað og stefnt að verklokum á vordögum.
-
3. Öryggismál hafna
Mál 2206100 Allur ferill málsins
Farið yfir málin vegna mengunarslyss og strands sem varð í Fáskrúðsfirði 28.mars síðastliðinn. Hafnarstjórn þakkar öllum viðbragðsaðilum sem og hafnarstarfsmönnum sem komu að fyrir skjót viðbrögð sem gerði það að verkum að ekki fór verr. Í atvikaskýrslu kemur fram að ekkert athugavert var við verklag hafnsögumanns en í ljósi öryggissjónarmiða leggur hafnarstjórn til að verklag við hafnsögu skipa með hættulegan farm verði rýnt og breytingar gerðar ef þurfa þykir.
-
4. Styrkir til Orkuskipta
Mál 2403216 Allur ferill málsins
Orkusjóður hefur auglýst lausa styrki til orkuskipta. Hafnarstjórn samþykkir að sótt verði um styrk í samstarfi við CT Orku ehf. vegna landtengingar á Mjóeyrarhöfn.
-
5. Umsókn um styrk vegna Franskra daga 2024
Mál 2403225 Allur ferill málsins
Umsókn um styrk vegna Franskra daga 2024. Hafnarstjórn samþykkir hefðbundinn styrk til bæjarhátíða í Fjarðabyggðar.
-
6. Málefni Hafnargötu 31 á Fáskrúðsfirði
Mál 2011054 Allur ferill málsins
Lagt fyrir að nýju og málefni Hafnargötu 31 rædd. Á 252.fundi hafnarstjórnar var samþykkt að segja upp leigu í húsinu. Hafnarstjórn felur verkefnastjóra hafna að undirbúa sölu á Hafnargötu 30 og 31 ásamt því að undirbúa niðurrif Hafnargötu 27a.
-
7. Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2024
Mál 2402027 Allur ferill málsins
Lögð fram til kynningar fundargerð 461. fundar Hafnasambands Íslands