Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 842

8. apríl 2024, kl. 08:30 til 00:00, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Ragnar Sigurðsson, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 375 liður 3

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð bæjarráðs frá 8. apríl staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Ársreikningur Fjarðabyggðar árið 2023

    Mál 2403162 Allur ferill málsins

    Ársreikningur Fjarðabyggðar og stofnana fyrir árið 2023 lagður fram til afgreiðslu fyrir bæjarráð. Endurskoðandi Fjarðabyggðar kynnti niðurstöður ársreiknings. Bæjarráð undirritar ársreikning 2023 ásamt bæjarstjóra.

    Bæjarráð samþykkir ársreikninginn og vísar honum til fyrri umræðu í bæjarstjórn.

  2. 2. Málefni Verkmenntaskóla Austurlands

    Mál 2404045 Allur ferill málsins

    Skólameistari og gæðastjóri fóru yfir málefni Verkmenntaskólans.

    Bæjarráð þakkar kynninguna og leggur áherslu á áframhaldandi gott samstarf við skólann.

  3. 3. Beiðni um styrk til reksturs Bjarmahlíðar

    Mál 2404038 Allur ferill málsins

    Framlögð beiðni um styrk til reksturs Bjarmahlíðar á Akureyri.

    Vísað til fjölskyldunefndar.

  4. 4. Umsóknir í Framkvæmdasjóð Ferðamannastaða 2024

    Mál 2308105 Allur ferill málsins

    Sviðsstjóri fór yfir umsóknir og framkvæmdir vegna áfangastaða ferðamanna og styrkja frá Framkvæmdasjóði ferðamannastaða.

    Áfram verður unnið að lokun verkefna sem eru í gangi. Staða verkefna yfirfarin í sumar að nýju.

  5. 5. Reglur Fjarðabyggðar um þjónustuíbúðir fyrir eldra fólk

    Mál 2404011 Allur ferill málsins

    Vísað frá fjölskyldunefnd til afgreiðslu bæjarráðs tillögum að breyttum reglum Fjarðabyggðar um þjónustuíbúðir fyrir eldra fólk.

    Bæjarráð vísar reglunum til frekari útfærslu hjá fjölskyldunefnd.

  6. 6. Slökkvilið Fjarðabyggðar - málefni

    Mál 2305266 Allur ferill málsins

    Málefni fært til trúnaðarmálabókar.

  7. 7. Suðurfjarðavegur - framkvæmdir

    Mál 2404058 Allur ferill málsins

    Framlögð bókun bæjarráðs um Suðurfjarðaveg.

    Fjarðabyggð skorar á umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis að flýta framkvæmdum við Suðurfjarðaveg með því að endurskoða forgangsröðun í framlagðri samgönguáætlun sem er til meðferðar á nefndarsviði Alþingis.

    Fjarðabyggð krefst þess að lokið verði verkhönnun allra áfanga Suðurfjarðavegar á árinu 2024 þannig að þeir verði tilbúnir til útboðs. Mörg alvarleg slys hafa orðið á veginum á undanförnum árum enda eru margir hlutar hans hættulegir samkvæmt alþjóðlegum umferðarstöðlum með fjölmörgum blindhæðum, hlykkjum og einbreiðum brúm sem standast ekki þungatakmarkanir. Ört vaxandi umferðarþungi flutninga, ferðamanna sem og annarra ökumanna kallar á tafarlausar úrbætur.

    Fjarðabyggð leggur þunga áherslu á að framkvæmdum í Reyðarfjarðarbotni verði lokið ekki seinna en í árslok 2025 enda tenging atvinnulífs Suðurfjarða við eina stærstu vöruflutningahöfn landsins á Mjóeyrarhöfn. Brúin yfir Sléttuá er umferðarþyngsta einbreiða brú á Austurlandi og er jafnframt ein elsta brúin á hringveginum í dag. Brúin ber ekki þungavinnuvélar sem hefur ollið vandræðum í uppbyggingu atvinnusvæða í Fjarðabyggð en ferðast þarf með þungavinnuvélar yfir Sléttuá á vaði með tilheyrandi kostnaði, töfum og raski á umhverfinu. Í beinu framhaldi af þeim framkvæmdum þarf að hefja endurgerð annarra vegkafla og brúa á Suðurfjarðavegi enda hafa ekki átt sér stað neinar endurbætur á honum frá því lagt var bundið slitlag á gamlan ófullnægjandi veg fyrir um 35 árum síðan.

    Verðmætasköpun í Fjarðabyggð er hlutfallslega stór hluti hagkerfisins og útflutningsatvinnuvegir þess afla verulegra gjaldeyristekna fyrir þjóðarbúið. Samgöngur eru undirstaða kraftmikillar uppbyggingar atvinnulífsins sem kallar jafnframt á stóraukna umferð á svæðinu, m.a. vegna skóla-, þjónustu- og atvinnusóknar sem hluta af eðlilegum lífsgæðum og þjónustuaðgengis. Mikið er um flutning á afurðum og vörum til og frá höfnum svæðisins og á milli fyrirtækja vegna álframleiðslu, sjávarútvegs og laxeldis svo dæmi séu nefnd. Fyrir nýsköpun í ferðaþjónustu sem byggir á öruggum og greiðum samgöngum eru tafir á úrbótum veruleg hindrun.

    Það er ljóst að íbúar og samfélagið í Fjarðabyggð er að leggja sitt af mörkum til þjóðarbúsins en miðað við fyrirliggjandi drög að samgönguáætlun þá eru ekki gert ráð fyrir nýframkvæmdum innan sveitarfélagsins fyrr en á síðari hluta fyrsta tímabils. Þetta er óásættanleg staða fyrir íbúa og atvinnulíf sveitarfélagsins.

  8. 8. Fjölskyldunefnd - 1

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð fjölskyldunefndar frá 4. apríl tekin til umfjöllunar og afgreiðslu.

    1. 8.1 Reglur Fjarðabyggðar um þjónustuíbúðir fyrir eldra fólk2404011
    2. 8.2 Starfshópur fræðslumála 20232309181
    3. 8.3 Kennslutímamagn grunnskóla Fjarðabyggðar 2024-20252403289
    4. 8.4 Skólavogin_foreldrakönnun leik- og grunnskóla 20242403211
    5. 8.5 Skóladagatöl 2024-20252403150
    6. 8.6 Starfshópur um nýtingu mannvirkja2403217
    7. 8.7 Til umsagnar 143. mál. Málefni aldraðra2403050
    8. 8.7 Norrænnamót heyrnarlausra 2025-2026, ósk um styrk2403050
  9. 9. Skipulags- og framkvæmdanefnd - 6

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 4. apríl tekin til umfjöllunar og afgreiðslu.

    1. 9.1 Drög að breytingum á reglum um stöðuleyfi lausafjármuna.2402159
    2. 9.2 Breyting á endurgjaldi sérstakrar söfnunar 2023 og 20242403147
    3. 9.3 Starfshópur um nýtingu mannvirkja2403217
    4. 9.4 Einangrun og kynding í Fjarðabyggðarhöllina2403230
    5. 9.5 Styrkvegir í Fjarðabyggð 20242403224
    6. 9.6 Viðhald og nýframkvæmdir gatna Fjarðabyggð 20242404016
    7. 9.7 Endurskoðun stuðningskerfa í skógrækt og landgræðslu - ábendingar og tillögur2402261
    8. 9.8 Saman gegn sóun - tækifæri til að hafa áhrif á nýja stefnu um úrgangsforvarnir2403283
  10. 10. Hafnarstjórn - 309

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 4. apríl tekin til umfjöllunar og afgreiðslu.

    1. 10.1 Rekstur Fjarðabyggðarhafna2312117
    2. 10.2 Sjóvarnir við Egilsbraut 26, Neskaupstað2210158
    3. 10.3 Öryggismál hafna2206100
    4. 10.4 Styrkir til Orkuskipta2403216
    5. 10.5 Umsókn um styrk vegna Franskra daga 20242403225
    6. 10.6 Málefni Hafnargötu 31 á Fáskrúðsfirði2011054
    7. 10.7 Fundargerðir Hafnasambands Íslands 20242402027