NefndirSkipulags- og framkvæmdanefnd
Skipulags- og framkvæmdanefnd, fundur 6
4. apríl 2024, kl. 15:30 til 17:15, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Svanur Freyr Árnason.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, formaður
- Kristinn Þór Jónasson, varaformaður
- Elís Pétur Elísson, aðalmaður
- Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, aðalmaður
- Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Svanur Freyr Árnason, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 842 liður 9
Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 4. apríl tekin til umfjöllunar og afgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 375 liður 5
Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson, Stefán Þór Eysteinsson.
Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 4. apríl staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Drög að breytingum á reglum um stöðuleyfi lausafjármuna.
Mál 2402159 Allur ferill málsins
Drög að breytingum á reglum um stöðuleyfi lausafjármuna. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gera lítilsháttar breytingar á reglum um stöðuleyfi lausafjármuna og leggja fyrir nefnd að nýju.
-
2. Breyting á endurgjaldi sérstakrar söfnunar 2023 og 2024
Mál 2403147 Allur ferill málsins
Tilkynning Úrvinnslusjóðs um niðurfellingu greiðslna vegna sérstakrar söfnunar (græna tunnan) frá maí 2024, mótmæli fjármálastjóra og svar sjóðsins. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar kynninguna.
-
3. Starfshópur um nýtingu mannvirkja
Mál 2403217 Allur ferill málsins
Vísað frá bæjarráði til afgreiðslu skipulags- og framkvæmdanefndar skipan tveggja fulltrúa í starfshóp um nýtingu mannvirkja í rekstri Fjarðabyggðar. Skipulags- og framkvæmdanefnd tilnefnir: Þuríði Lillý fulltrúa framsóknarflokksins og Benedikt Jónsson fulltrúi sjálfstæðisflokksins.
-
4. Einangrun og kynding í Fjarðabyggðarhöllina
Mál 2403230 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar tilboð frá Jötunverk ehf í viðhald á þaki Fjarðabyggðarhallarinnar. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar fyrir kynninguna og fagnar því að framgangur sé kominn í málið.
-
5. Styrkvegir í Fjarðabyggð 2024
Mál 2403224 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar umsóknir vegna styrkvega í Fjarðabyggð. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir framlagðar umsóknir til Vegagerðarinnar vegna styrkvega 2024.
-
6. Viðhald og nýframkvæmdir gatna Fjarðabyggð 2024
Mál 2404016 Allur ferill málsins
Lögð fram áætlun vegna viðhalds og framkvæmda gatna Fjarðabyggðar 2024. Skipulags- og framkvæmdanefnd tók tillöguna til umræðu og fól sviðsstjóra að vinna málið áfram og leggja fyrir nefnd á næsta fundi.
-
7. Endurskoðun stuðningskerfa í skógrækt og landgræðslu - ábendingar og tillögur
Mál 2402261 Allur ferill málsins
Lögð fram tillaga Fjarðabyggðar að svari við erindi Lands og Skóga. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir tillöguna með fyrirvara.
-
8. Saman gegn sóun - tækifæri til að hafa áhrif á nýja stefnu um úrgangsforvarnir
Mál 2403283 Allur ferill málsins
Framlagt bréf frá verkefninu Saman gegn sóun en boðað er til opins fundar á Egilsstöðum mánudaginn 22. apríl kl. 13:00. Skiplags- og framkvæmdanefnd sendir fulltrúa á fundinn.