Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirSkipulags- og framkvæmdanefnd

Skipulags- og framkvæmdanefnd, fundur 5

20. mars 2024, kl. 16:00 til 17:00, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Svanur Freyr Árnason.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (9)

Fundinn sátu

  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, formaður
  • Stefán Þór Eysteinsson, varaformaður
  • Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
  • Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, aðalmaður
  • Kristinn Þór Jónasson, aðalmaður
  • Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, aðalmaður
  • Ingunn Eir Andrésdóttir, varamaður

Starfsmenn

  • Svanur Freyr Árnason, embættismaður
  • Aron Leví Beck Rúnarsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 840 liður 17

    Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 20. mars lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 374 liður 5

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 20. mars staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Melbrún 8 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

    Mál 2401222 Allur ferill málsins

    Melbrún 8 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi. Grenndarkynningu lokið, engar athugasemdir bárust. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir byggingaráformin og felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.

  2. 2. 730 Búðareyri 15 - Umsókn um byggingarleyfi, breytingar innandyra

    Mál 2205122 Allur ferill málsins

    730 Búðareyri 15 - Umsókn um byggingarleyfi, breytingar innandyra. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir byggingaráformin og felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.

  3. 3. Hlíðargata 7-9 - 750 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

    Mál 2403177 Allur ferill málsins

    Hlíðargata 7-9 - 750 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur byggingarfulltrúa að grenndarkynna byggingaráform fyrir íbúum og leggja niðurstöðu grendarkynningar fyrir nefndina.

  4. 4. Umsókn um lóð Mógerði 1

    Mál 2403086 Allur ferill málsins

    Umsókn um lóð Mógerði 1. Einnig er sótt um 5m stækkun lóðarinar til suðurs. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir að úthluta lóðinni með fyrirvara um að hægt sé að stækka hana um 5 metra til suðurs og vísar erindinu í bæjarráð.

  5. 5. Framkvæmdaleyfi Stöðvarfjörður strenglögn

    Mál 2403090 Allur ferill málsins

    Framkvæmdaleyfi Stöðvarfjörður strenglögn. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur sviðstjóra að eiga samtal varðandi lítilsháttar breytingar á lagnaleið ef kostur er. Lagt fyrir að nýju þegar niðurstöður þess samtals liggja fyrir.

  6. 6. Framkvæmdaleyfi vegna lagningar ljósleiðara Fásk

    Mál 2403124 Allur ferill málsins

    Framkvæmdaleyfi vegna lagningar ljósleiðara Fáskrúðsfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.

  7. 7. Hoppubelgur, strandblakvöllur og útiæfingatæki Norðfirði ný staðsetning

    Mál 2308072 Allur ferill málsins

    Lögð fyrir hugmynd að nýrri staðsetningu ofan Starmýri á hoppubelg, strandblaksvelli og útiæfingatækjum á Norðfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir hugmynd að nýrri staðsetningu.

  8. 8. Umsókn um stöðuleyfi

    Mál 2403145 Allur ferill málsins

    Umsókn um stöðuleyfi. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulagsfulltrúa að gefa út stöðuleyfi til 30.09.2024 eins og umsækjandi fer framá.

  9. 9. Hundasvæði á Norðfirði

    Mál 2403127 Allur ferill málsins

    Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar fyrir erindið og vísað til skoðunar hjá verkefnastjóra umhverfismála.

  10. 10. Brekkugata 4 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

    Mál 2403188 Allur ferill málsins

    Brekkugata 4 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur byggingarfulltrúa að grenndarkynna byggingaráform fyrir íbúum og leggja niðurstöðu grendarkynningar fyrir nefndina.