NefndirSkipulags- og framkvæmdanefnd
Skipulags- og framkvæmdanefnd, fundur 4
4. mars 2024, kl. 16:00 til 17:08, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Aron Leví Beck.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (9)
Fundinn sátu
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, formaður
- Stefán Þór Eysteinsson, varaformaður
- Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
- Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, aðalmaður
- Kristinn Þór Jónasson, aðalmaður
- Ingunn Eir Andrésdóttir, varamaður
- Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Svanur Freyr Árnason, embættismaður
- Aron Leví Beck Rúnarsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 838 liður 15
Fundargerð 4. fundar skipulags- og framkvæmdanefndar lögð fram til staðfestingar
Bæjarstjórn, fundur 373 liður 5
Til máls tók Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 21. febrúar staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Breyting á aðalskipulagi Miðbæjar Reyðarfirði
Mál 2402275 Allur ferill málsins
Breyting á aðalskipulagi Miðbæjar Reyðarfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrir sitt leiti óverulega breytingu á aðalskipulagi og vísar erindinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
-
2. Breyting á deiliskipulagi Miðbæjar Reyðarfirði
Mál 2402273 Allur ferill málsins
Breyting á deiliskipulagi Miðbæjar Reyðarfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrir sitt leiti óverulega breytingu á deiluskipulagi og felur skipulagsfulltrúa að grenndarkynna breytinguna.
-
3. Gilsbakki 10 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Mál 2401155 Allur ferill málsins
Gilsbakki 10 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi. Niðurstaða grenndarkynningar. Engar athugasemdir bárust. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir byggingaráform og felur skipulags og byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.
-
4. Öldugata 6 - Niðurrif Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Mál 2402216 Allur ferill málsins
Öldugata 6 - Niðurrif Umsókn Fjarðabyggðar um byggingaráform og byggingarleyfi. Skipulags- og framkvæmdarnefnd samþykkir niðurrif á húsinu.
-
5. Umsókn um lóð Breiðimelur 1-9
Mál 2402292 Allur ferill málsins
Umsókn Launafls um lóð Breiðimel 1-9. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir lóðarúthlutunina og vísar erindinu í bæjarráð.
-
6. Umsókn um lóð Leirubakki 9
Mál 2402186 Allur ferill málsins
Umsókn Fjarðabyggðar um lóð að Leirubakka 9. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir lóðarúthlutunina og vísar erindinu í bæjarráð.
-
7. Umsókn um lóð Búðareyri 10
Mál 2402267 Allur ferill málsins
Umsókn Fjarðabyggðar um lóð að Búðareyri 10. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir lóðarúthlutunina og vísar henni til bæjarráðs
-
8. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Búðareyri 8
Mál 2402280 Allur ferill málsins
HSA sækir um stækkun á lóð að Búðareyri 8 Reyðarfirði og skilar um leið lóð að Búðareyri 10. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir stækkun og felur skipulagsfulltrúa að gefa út nýtt lóðarblað. Erindinu vísað til staðfestingar í bæjarráði.
-
9. Endurskoðun stuðningskerfa í skógrækt og landgræðslu - ábendingar og tillögur
Mál 2402261 Allur ferill málsins
Ný stofnun, Land og Skógar óskar eftir ábendingum og tillögum vegna endurskoðunar á stuðningskerfum í skógrækt og landgræðslu. Erindið barst með tölvuskeyti frá sviðsstjóra Endurheimtar vistkerfa hjá Landi og Skógum. Efni skeitis kemur fram í minnisblaði. Skipulags og famkvæmdanefnd felur verkefnastjóra umhverfismála að svara erindinu í samráði við umræður á fundinum.
-
10. Fiskeldissjóður - umsóknir 2024
Mál 2308085 Allur ferill málsins
Lagt fram minnisblað með tillögum að umsóknum í Fiskeldissjóð. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir minnisblað með tillögum að umsóknum. Sviðsstjóra falið að ganga frá umsóknum til fiskeldissjóðs.