Bæjarstjórn, fundur 373
19. mars 2024, kl. 16:00 til 16:25, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (12)
Fundinn sátu
- Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar
- Elís Pétur Elísson, varamaður
- Pálína Margeirsdóttir, varamaður
- Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, 1. varaforseti bæjarstjórnar
- Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
- Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
- Kristinn Þór Jónasson, aðalmaður
- Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, aðalmaður
- Jóhanna Sigfúsdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Haraldur Líndal Haraldsson, embættismaður
Dagskrá
Tölva tengdi dagskrárliði við upptökuna. Tímasetningar geta skeikað.
-
1. Kosning forseta bæjarstjórnar 2024
Mál 2311129 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:07:28
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir kjöri forseta bæjarstjórnar.
Tilnefndur er Jón Björn Hákonarson sem forseti bæjarstjórnar. Aðrar tilnefningar eru ekki fram bornar.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum kjör forseta bæjarstjórnar.
-
2. Kosning 1. og 2. varaforseta bæjarstjórnar 2024
Mál 2403166 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:07:56
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir kjöri 1. og 2. varaforseta bæjarstjórnar.
Tilnefnd eru sem fyrsti varaforseti bæjarstjórnar Þórdís Mjöll Benediktsdóttir og sem annar varaforseti bæjarstjórnar Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir. Aðrar tilnefndingar eru ekki fram bornar.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum kjör fyrst og annars varaforseta.
-
3. Kosning bæjarráðs kjörtímabilið 2022 - 2026
Mál 2205293 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:08:24
Forseti bæjarstjórnar stýrði kjöri bæjarráðs.
Lagt er til að bæjarráð skipi Ragnar Sigurðsson sem formaður, Jón Björn Hákonarson sem varaformaður og Stefán Þór Eysteinsson sem aðalmaður. Aðrar tillögur eru ekki fram bornar.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum kjör bæjarráðs en varamenn bæjarráðs eru bæjarfulltrúar.
-
4. Bæjarráð - 838
Fundargerðin í heild Upptaka frá 0:08:52
Til máls tóku Stefán Þór Eysteinsson og Ragnar Sigurðsson.
Fundargerð bæjarráðs frá 11. mars staðfest með 9 atkvæðum.
- 4.1 Útboð tjaldsvæða 202424011870:10:44
- 4.2 Stuðningur ríkis og sveitarfélaga vegna kjarasamninga 202424031200:09:20
- 4.3 Breytingar í fræðslumálum - Beiðni um afstöðu Fjarðabyggðar24031230:12:08
- 4.4 Undirskriftarlisti - Áskroun vegna breytinga á fræðslumálum2403122
- 4.5 Mótmæli foreldrafélaga í Fjarðabyggð vegna fyrirhugaðar breytingar í fræðslumálum2403045
- 4.6 Yfirlýsing stjórnar KSA vegna fyrirhugaðra breytinga á fræðslumálum í Fjarðabyggð2403105
- 4.7 Umsókn um lóð Breiðimelur 1-92402292
- 4.8 Umsókn um lóð Leirubakki 92402186
- 4.9 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Búðareyri 82402280
- 4.10 Umsókn um lóð Búðareyri 102402267
- 4.11 Aðalfundur Netorku hf 2024 - starfsárið 20232403115
- 4.12 Fundargerðir Austurbrúar og SSA2311224
- 4.13 Fundargerðir Austurbrúar og SSA2311224
- 4.14 Fundargerðir Samtaka orkusveitarfélaga 20242403087
- 4.15 Skipulags- og framkvæmdanefnd - 42402027F
-
5. Skipulags- og framkvæmdanefnd - 4
Fundargerðin í heild Upptaka frá 0:13:32
Til máls tók Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 21. febrúar staðfest með 9 atkvæðum.
- 5.1 Breyting á aðalskipulagi Miðbæjar Reyðarfirði2402275
- 5.2 Breyting á deiliskipulagi Miðbæjar Reyðarfirði2402273
- 5.3 Gilsbakki 10 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2401155
- 5.4 Öldugata 6 - Niðurrif Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2402216
- 5.5 Umsókn um lóð Breiðimelur 1-92402292
- 5.6 Umsókn um lóð Leirubakki 92402186
- 5.7 Umsókn um lóð Búðareyri 102402267
- 5.8 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Búðareyri 82402280
- 5.9 Endurskoðun stuðningskerfa í skógrækt og landgræðslu - ábendingar og tillögur2402261
- 5.10 Fiskeldissjóður - umsóknir 20242308085
-
6. Samþykkt um stjórn og fundarsköp bæjarstjórnar, breytingar 2024 - fyrri umræða
Mál 2403167 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:16:20
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir breytingu á samþykkt.
Framlögð tillaga að breytingum á samþykkt um stjórn og fundarsköp bæjarstjórnar Fjarðabyggðar vegna breytinga á nefndaskipan og fjölda kjörinna fulltrúa í nefndum. Megin breyting samþykktarinnar er á 62. gr. um að íþrótta- og tómstundanefnd, fræðslunefnd og félagsmálanefnd sameinast í eina nefnd, fjölskyldunefnd.
Til máls tóku: Stefán Þór Eysteinsson, Ragnar Sigurðsson, Jón Björn Hákonarson.
Framlögð er bókun frá Fjarðalista. Fjarðalistinn lýsir áhyggjum sínum af því að fækka eigi nefndarfólki í nýrri fjölskyldunefnd úr sjö í fimm. Ljóst er að verkefni nýrrar nefndar eru gríðarlega víðfeðm og því mikilvægt að nefndin endurspegli skoðanir og raddir þessa fjölkjarna sveitarfélags. Einnig er mikilvægt að nefndin fjalli um öll málefni og alla málaflokka sem þeim ber að fjalla um af alúð og er ekki ljóst að hægt sé að tryggja að svo verði með núverandi fjölda nefndarfólks.
Bæjarstjórn samþykkir með 7 atkvæðum að vísa breytingum á samþykktinni til síðari umræðu í bæjarstjórn. Fulltrúar Fjarðalistans, Stefán Þór Eysteinsson og Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir sitja hjá.
-
7. Erindisbréf skipulags- og framkvæmdanefndar breytingar - fyrri umræða
Mál 2312053 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:26:08
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir breytingu erindisbréfs.
Lögð er fram tillaga að breytinu á erindisbréf skipulags- og framkvæmdanefndar sem felur í sér fækkun nefndarmanna úr sjö í fimm.
Til máls tóku: Stefán Þór Eysteinsson.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að vísa breytingum á erindisbréfi til síðari umræðum.