Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 838

11. mars 2024, kl. 08:30 til 10:00, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Þórður Vilberg Guðmundsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Stefán Þór Eysteinsson, formaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, varamaður

Starfsmenn

  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
  • Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður
  • Snorri Styrkársson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 373 liður 4

    Til máls tóku Stefán Þór Eysteinsson og Ragnar Sigurðsson.

    Fundargerð bæjarráðs frá 11. mars staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Útboð tjaldsvæða 2024

    Mál 2401187 Allur ferill málsins

    Framlögð tilboð í tjaldsvæði Fjarðabyggðar. Frestur til að skila inn tilboðum var til 28. febrúar. Forstöðumanni stjórnsýslu og fjármálastjóra er falið að ræða við tilboðsgjafa.

  2. 2. Stuðningur ríkis og sveitarfélaga vegna kjarasamninga 2024

    Mál 2403120 Allur ferill málsins

    Framlögð áskorun til sveitarfélaga frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga vegna yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar og Sambandsins vegna kjarasamninga 2024.

    Bæjarráð fagnar gerð kjarasamninga til fjögurra ára sem hafa það að markmiði að ná niður verðbólgu og lækka vexti og samþykkir að leggja sitt af mörkum til að auka sátt á vinnumarkaði. Fjarðabyggð mun halda aftur af hækkun gjaldskráa sem snúa að börnum og barnafjölskyldum sem og að endurskoða núverandi gjaldskrár í takt við ályktun bæjarstjórnar þann 11. janúar sl. Þá skal á það bent að skólamáltíðir í Fjarðabyggð eru gjaldfrjálsar.

  3. 3. Breytingar í fræðslumálum - Beiðni um afstöðu Fjarðabyggðar

    Mál 2403123 Allur ferill málsins

    Framlögð beiðni mennta- og baranamálaráðuneytisins um afstöðu Fjarðabyggðar vegna erindis KÍ til ráðuneytsins vegna breytinga í fræðslumálum. Bæjarstjóra falið að svara ráðuneytinu.

  4. 4. Undirskriftarlisti - Áskroun vegna breytinga á fræðslumálum

    Mál 2403122 Allur ferill málsins

    Framlagður undirskriftarlisti með áskorunum um að samþykktar breytingar í fræðslumálum verði dregin til baka.

    Bæjarráð Fjarðabyggðar hefur veitt undirskriftarlista viðtöku en þar er áskorun um að draga til baka samþykktar breytingar í fræðslumálum.

    Fjarðabyggð mun nú yfirfara framkomnar athugasemdir stéttarfélaga og annara varðandi breytingarnar auk þess sem beðið er eftir áliti mennta- og barnamálaráðuneytisins vegna fyrirspurna KÍ varðandi fyrirhugaðar breytingar.

    Þá skal það tekið fram, að gefnu tilefni, að bæjarfulltrúar fengu ekki boð um að vera viðstaddir þegar undirskriftarlistarnir voru afhentir. Auk þess var bæjarstjóri ásamt nokkrum bæjarfulltrúum þegar bókaðir á þessum tíma og var hópnum veittur kostur á öðrum tíma til afhendingar listans.

  5. 5. Mótmæli foreldrafélaga í Fjarðabyggð vegna fyrirhugaðar breytingar í fræðslumálum

    Mál 2403045 Allur ferill málsins

    Framlagt mótmælabréf stjórna foreldrafélaga í Fjarðabyggð vegna breytinga í fræðslumálum.

    Fjarðabyggð mun nú yfirfara framkomnar athugasemdir stéttarfélaga og annarra varðandi breytingarnar auk þess sem beðið er eftir áliti mennta- og barnamálaráðuneytisins vegna fyrirspurna KÍ varðandi fyrirhugaðar breytingar.

  6. 6. Yfirlýsing stjórnar KSA vegna fyrirhugaðra breytinga á fræðslumálum í Fjarðabyggð

    Mál 2403105 Allur ferill málsins

    Yfirlýsing stjórnar KSA vegna fyrirhugaðra breytinga á fræðslumálum í Fjarðabyggð.

    Fjarðabyggð mun nú yfirfara framkomnar athugasemdir stéttarfélaga og annarra varðandi breytingarnar auk þess sem beðið er eftir áliti mennta- og barnamálaráðuneytisins vegna fyrirspurna KÍ varðandi fyrirhugaðar breytingar.

  7. 7. Umsókn um lóð Breiðimelur 1-9

    Mál 2402292 Allur ferill málsins

    Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarráðs umsókn Launafls ehf um lóðina að Breiðamel 1 - 9 á Reyðarfirði. Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni.

  8. 8. Umsókn um lóð Leirubakki 9

    Mál 2402186 Allur ferill málsins

    Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarráðs umsókn Fjarðabyggðarhafna um lóðina að Leirubakka 9b á Eskifirði. Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni.

  9. 9. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Búðareyri 8

    Mál 2402280 Allur ferill málsins

    Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til staðfestingar bæjarráðs umsókn HSA um Endurnýjun á lóðaleigusamningi að Búðareyri 8, stækkun lóðarinnar og skil á lóð að Búðareyri 10. Bæjarráð samþykkir fyrirhugaðar breytingar á lóðinni að Búðareyri 8.

  10. 10. Umsókn um lóð Búðareyri 10

    Mál 2402267 Allur ferill málsins

    Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarráðs umsókn Fjarðabyggðar um lóðina að Búðareyri 10 á Reyðarfirði. Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni.

  11. 11. Aðalfundur Netorku hf 2024 - starfsárið 2023

    Mál 2403115 Allur ferill málsins

    Framlagt boð á aðalfund Netorku hf vegna ársins 2023 sem haldinn verður 21. mars 2024.

  12. 12. Fundargerðir Austurbrúar og SSA

    Mál 2311224 Allur ferill málsins

    Fundargerð 18. fundar stjórnar SSA lögð fram til kynningar.

  13. 13. Fundargerðir Austurbrúar og SSA

    Mál 2311224 Allur ferill málsins

    Fundargerð 18. fundar stjórnar SSA lögð fram til kynningar

  14. 14. Fundargerðir Samtaka orkusveitarfélaga 2024

    Mál 2403087 Allur ferill málsins

    Fundargerð 69. fundar samtaka orkusveitarfélaga lögð fram til kynningar

  15. 15. Skipulags- og framkvæmdanefnd - 4

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð 4. fundar skipulags- og framkvæmdanefndar lögð fram til staðfestingar

    1. 15.1 Breyting á aðalskipulagi Miðbæjar Reyðarfirði2402275
    2. 15.2 Breyting á deiliskipulagi Miðbæjar Reyðarfirði2402273
    3. 15.3 Gilsbakki 10 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2401155
    4. 15.4 Öldugata 6 - Niðurrif Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2402216
    5. 15.5 Umsókn um lóð Breiðimelur 1-92402292
    6. 15.6 Umsókn um lóð Leirubakki 92402186
    7. 15.7 Umsókn um lóð Búðareyri 102402267
    8. 15.8 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Búðareyri 82402280
    9. 15.9 Endurskoðun stuðningskerfa í skógrækt og landgræðslu - ábendingar og tillögur2402261
    10. 15.10 Fiskeldissjóður - umsóknir 20242308085