Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2024

Undirskriftarlisti - Áskroun vegna breytinga á fræðslumálum

Mál 2403122 Fyrst á dagskrá 11. mars 2024, síðast 19. mars 2024. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.

Í heiti málsins: Skólar og fræðsla

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2024

    Bæjarráð, fundur 838 liður 4

    Framlagður undirskriftarlisti með áskorunum um að samþykktar breytingar í fræðslumálum verði dregin til baka.

    Bæjarráð Fjarðabyggðar hefur veitt undirskriftarlista viðtöku en þar er áskorun um að draga til baka samþykktar breytingar í fræðslumálum.

    Fjarðabyggð mun nú yfirfara framkomnar athugasemdir stéttarfélaga og annara varðandi breytingarnar auk þess sem beðið er eftir áliti mennta- og barnamálaráðuneytisins vegna fyrirspurna KÍ varðandi fyrirhugaðar breytingar.

    Þá skal það tekið fram, að gefnu tilefni, að bæjarfulltrúar fengu ekki boð um að vera viðstaddir þegar undirskriftarlistarnir voru afhentir. Auk þess var bæjarstjóri ásamt nokkrum bæjarfulltrúum þegar bókaðir á þessum tíma og var hópnum veittur kostur á öðrum tíma til afhendingar listans.

  2. Bæjarstjórn, fundur 373 liður 4.4

    Fundargerðin „Bæjarráð - 838“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is