Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirSkipulags- og framkvæmdanefnd

Skipulags- og framkvæmdanefnd, fundur 3

21. febrúar 2024, kl. 16:00 til 17:50, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Þórður Vilberg Guðmundsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (10)

Fundinn sátu

  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, formaður
  • Esther Ösp Gunnarsdóttir, varamaður
  • Pálína Margeirsdóttir, varamaður
  • Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, aðalmaður
  • Kristinn Þór Jónasson, aðalmaður
  • Ingunn Eir Andrésdóttir, varamaður
  • Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður
  • Svanur Freyr Árnason, embættismaður
  • Aron Leví Beck Rúnarsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 835 liður 12

    Fundargerð 3. fundar skipulags- og framkvæmdanefndar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 372 liður 4

    Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar nr. 3 frá 21. febrúar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

    Engin tók til máls.

    Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 21. febrúar er staðfest með 9 atkvæðum

Dagskrá

  1. 1. Umsókn um lóð Hlíðargata 7-9, Fásk

    Mál 2312003 Allur ferill málsins

    Framlögð lóðaumsókn Ólafs Níels Eiríkssonar um lóðina að Hlíðargötu 7-9 á Fáskrúðsfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir að úthluta lóðinni og vísar lóðaúthlutuninni til staðfestingar bæjarráðs.

  2. 2. Umsókn um lóð Móbakki 16

    Mál 2402052 Allur ferill málsins

    Framlögð lóðaumsókn Róberts Óskars Sigurvaldasonar f.h. Búðinga ehf varðandi lóðarinna að Móbakka 16 í Neskaupstað. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir að úthluta lóðinni og vísar lóðaúthlutuninni til staðfestingar bæjarráðs.

  3. 3. Sæbakki 17 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

    Mál 2402175 Allur ferill málsins

    Lögð fram umsókn Kristjáns Bjarnasonar, hönnuðar, f.h. Búðinga ehf um byggingaráform og byggingarleyfi, dagsett 18. febrúar 2024, þar sem sótt er um leyfi til byggingar parhúss á lóðinni á Sæbakka 17 í Neskaupstað. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur byggingarfulltrúa að grendarkynna byggingaráform fyrir íbúum og leggja niðurstöðu grendarkynningar fyrir nefndina.

  4. 4. Mannvirki sem skylt er að vátryggja hjá NTÍ.

    Mál 2402087 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf frá Náttúruhamfaratryggingum Íslands varðandi Mannvirki í eigu Fjarðabyggðar sem skylt er að Vátryggja. Sviðstjóra framkvæmda- og umhverfissviðs er falið að yfirfara listann m.t.t. hvort eitthvað vanti inn á hann.

  5. 5. Þinghólsvegur 5 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

    Mál 2401159 Allur ferill málsins

    Framlögð niðurstaða grendarkynningar vegna viðbygging við Þinghólsveg 5 í Mjóafirði. Ekki komu fram athugasemd við byggingaráform og undirritun íbúa nærliggjandi húss liggur fyrir. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.

  6. 6. Hjallaleira 9 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

    Mál 2402068 Allur ferill málsins

    Framlögð umsókn RARIK um byggingaráform og byggingarleyfi RARIK dagsett 7. febrúar vegna breytinga á húsinu að Hjallaleiru 9. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.

  7. 7. Bakkavegur 5 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

    Mál 2402155 Allur ferill málsins

    Framlögð umsókn Múlans Samvinnuhúss vegna breytingar á lóð og viðbyggingu við húsnæði félagsins við Bakkaveg 5 í Neskaupstað. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur byggingarfulltrúa að grenndarkynna lóðabreytingu og byggingaráform og leggja niðurstöðu grenndarkynningar fyrir nefndina.

  8. 8. Kröfur um úrbætur á eldvörnum.

    Mál 2402088 Allur ferill málsins

    Framlögð skýrsla eldvarnareftirlits Fjarðabyggðar vegna íþróttahús í Neskaupstað. Sviðsstjóra framkvæmda- og umhverfissviðs er falið að gera úrbótaáætlun vegna þeirra athugasemda sem fram koma í skýrslunni og senda til eldvarnareftirlitsins.

  9. 9. Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Austurlands 2023-2024

    Mál 2301174 Allur ferill málsins

    Fundargerð stjórnar HAUST frá 1. febrúar 2024 lögð fram til kynningar.

  10. 10. Stækkun lóða við Hjallaleiru

    Mál 2303218 Allur ferill málsins

    Framlagt minnisblað umhverfis- og skipulagsfulltrúa varðandi stækkuna lóða að Hjallaleiru á Reyðarfirði. Málinu er frestað til næsta fundar.

  11. 11. Drög að breytingum á reglum um stöðuleyfi lausafjármuna

    Mál 2402159 Allur ferill málsins

    Framlögð drög að breytingum á reglum um stöðuleyfi lausafjármuna. Umfjöllun um málið er frestað til næsta fundar.

  12. 12. Samningur við Skógræktarfélag Reyðarfjarðar

    Mál 2302213 Allur ferill málsins

    Tekin fyrir að nýju drög samkomulags um skógrækt við Skógræktarfélag Reyðarfjarðar. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir drögin og felur verkefnastjóra umhverfismála að leggja samningin fyrir Skógræktarfélag Reyðarfjarðar.

  13. 13. Fiskeldissjóður - umsóknir 2024

    Mál 2308085 Allur ferill málsins

    Framlagt minnisblað sviðsstjóra framkvæmda- og umhverfissviðs vegna umsókna í Fiskeldissjóð fyrir árið 2024. Umhverfis- og skipulagsnefnd að vinna áfram að málinu á grundvelli minnisblaðs, og þeirra breytinga sem bæjarráð hefur þegar lagt til. Málið verði tekið fyrir að nýju á næsta fundi áður en endanlegar umsóknir eru sendar inn til sjóðsins.

  14. 14. Framkvæmdaleyfi vegna Mjóeyrahafnar

    Mál 2402150 Allur ferill málsins

    Framlögð umsókn Fjarðabyggðarhafna dagsett 14. febrúar 2024 um framkvæmdaleyfi vegna stækkunar Mjóeyrarhafnar. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.

  15. 15. Vatnsveita í Mjóafirði

    Mál 2402038 Allur ferill málsins

    Vísað frá bæjarráði til umfjöllunar í skipulags- og framkvæmdanefnd erindi Sigfúsar Vilhjálmssonar vegna vatnsveitu og ýmissa mála í Mjóafirði. Sviðstjóra framkvæmda- og umhverfissviðs er falið að vinna áfram að málefnum vatnsveitu í Mjóafirði í samráði við bréfritara.

  16. 16. Framkvæmdaleyfi vegna lagningar ljósleiðara á Neskaupsstað

    Mál 2402179 Allur ferill málsins

    Framlögð umsókn Mílu vegna framkvæmdaleyfi vegna lagningu ljósleiðara í Neskaupstað. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.

  17. 17. Framkvæmdaleyfi lagningar ljósleiðara á Eskifirði

    Mál 2402178 Allur ferill málsins

    Framlögð umsókn Mílu um framkvæmdaleyfi vegna lagningu ljósleiðara á Eskifirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.