Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirSkipulags- og framkvæmdanefnd

Skipulags- og framkvæmdanefnd, fundur 7

17. apríl 2024, kl. 16:00 til 18:15, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Svanur Freyr Árnason.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, formaður
  • Kristinn Þór Jónasson, varaformaður
  • Ívar Dan Arnarson, varamaður
  • Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, aðalmaður
  • Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Svanur Freyr Árnason, embættismaður
  • Aron Leví Beck Rúnarsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 844 liður 19

    Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 17. apríl tekin til umfjöllunar og afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 376 liður 8

    Fundargerðir skipulags- og framkvæmdanefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 17. apríl staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Lóðarmál við Hjallaleiru 13 til 19

    Mál 2303218 Allur ferill málsins

    Lóðarmál við Hjallaleiru 13 til 19. Minnisblað vegna lóða við Hjallaleiru 13, 15, 17 og 19 lagt fram. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur bæjarstjóra, sviðsstjóra framkvæmda- og umhverfissviðs, skipulags- og byggingarfulltrúa og formanni skipulags- og framkvæmdanefndar að vinna málið áfram.

  2. 2. Mógerði 1 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

    Mál 2404135 Allur ferill málsins

    Mógerði 1 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulagsfulltrúa að grenndarkynna byggingaráformin.

  3. 3. Bakkabakki 2b - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

    Mál 2404086 Allur ferill málsins

    Bakkabakki 2b - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulagsfulltrúa að grenndarkynna byggingaráformin.

  4. 4. Brekkugata 4 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

    Mál 2403188 Allur ferill málsins

    Brekkugata 4 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi. Niðurstaða grenndarkynningar kynnt. Grenndarkynning samþykkt með undirskriftum. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.

  5. 5. Bakkavegur 5 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

    Mál 2402155 Allur ferill málsins

    Bakkavegur 5 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi. Niðurstaða grenndarkynningar og svör við athugasemdum. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir drög að athugasemdum við grenndarkynningu og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að upplýsa þá er málið varðar og gefa út byggingarleyfi þegar öllum tilskildum gögnum hafa verið skilað.

  6. 6. Austurvegur 4 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

    Mál 2404075 Allur ferill málsins

    Austurvegur 4 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulagsfulltrúa að grenndarkynna byggingaráformin.

  7. 7. Svarthamrar - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

    Mál 2404002 Allur ferill málsins

    Svarthamrar - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulagsfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öllum tilskildum gögnum hefur verið skilað.

  8. 8. Sæbakki 17 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

    Mál 2402175 Allur ferill málsins

    Sæbakki 17 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi. Niðurstaða grenndarkynningar, engar athugasemdir bárust. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrir sitt leyti byggingaráformin og felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.

  9. 9. Breyting á deiliskipulagi Miðbæjar Reyðarfirði

    Mál 2402273 Allur ferill málsins

    Breyting á deiliskipulagi Miðbæjar Reyðarfirði. Auglýsingartíma lokið, engar athugasemdir bárust. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrir sitt leyti breytingu á deiliskipulagi Miðbæjar Reyðarfirði. Nefndin vísar erindinu til samþykktar í bæjarstjórn.

  10. 10. Aðalskipulag óverulegbreyting á aðalskipulagi Stöðvarfjörður tjaldsvæði

    Mál 2403082 Allur ferill málsins

    Breyting á aðalskipulagi tjaldsvæði á Stöðvarfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrir sitt leiti óverulega breytingu á aðalskipulagi og vísar erindinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

  11. 11. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Brekkugerði 18

    Mál 2404001 Allur ferill málsins

    Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Brekkugerði 18. Óskað er eftir stækkun á lóð til austur. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir stækkun lóðar um 15m til austurs og felur skipulagsfulltrúa að útbúa nýjan lóðarleigusamning.

  12. 12. Samningur við Skógræktarfélag Reyðarfjarðar

    Mál 2302213 Allur ferill málsins

    Samningur við Skógræktarfélag, athugasemd viðsemjenda við drög að samningi og ósk um endurskoðun á 4. grein. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur verkefnastjóra umhverfismála að uppfæra 4.gr samnings í samráði við umræður á fundinum og leggja fyrir á næsta fund.

  13. 13. Breyting á samþykkt um fiðurfé

    Mál 2404096 Allur ferill málsins

    Drög að breytingum á samþykkt Fjarðabyggðar um fiðurfé. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir uppfærða samþykkt um fiðurfé í Fjarðabyggð og vísar til samþykktar í bæjarstjórn.

  14. 14. Drög að breytingum á reglum um stöðuleyfi lausafjármuna

    Mál 2402159 Allur ferill málsins

    Drög að breytingum á reglum um stöðuleyfi lausafjármuna. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa að uppfæra reglur um stöðuleyfi lausafjármuna í samræmi við umræður á fundinum og vísar til bæjarstjórnar.

  15. 15. Óskum eftir að fá að setja bekk við Barkinn á Reyðarfirði

    Mál 2404108 Allur ferill málsins

    Beiðni um að fá að setja bekk við Barkinn á Reyðarfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd fagnar framtakinu og samþykkir áformin. Nefndin felur sviðsstjóra að vera í sambandi við bréfritara.

  16. 16. IMaR 2024 ráðstefnan

    Mál 2404097 Allur ferill málsins

    Framlagður til kynningar tölvupóstur frá IMaR um ráðstefnu sem er árleg og er samstarfsverkefni Háskólans í Reykjavík og Verkfræðingafélagsins. Í ár er ráðstefnan að stórum hluta helguð sjálfbærni og sorporkumálum (e. Sustainability and waste to energy). Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar kynninguna.

  17. 17. Umsagnarbeiðni um stækkun á athafna- og hafnasvæði Djúpavogs

    Mál 2403204 Allur ferill málsins

    Umsagnarbeiðni um stækkun á athafna- og hafnasvæði Djúpavogs. Skipulags- og framkvæmdanefnd gerir ekki athugasemd við fyrirhugaðar breytingar á athafna- og hafnarsvæði Djúpavogs.

  18. 18. Saman gegn sóun - tækifæri til að hafa áhrif á nýja stefnu um úrgangsforvarnir

    Mál 2403283 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf frá verkefninu Saman gegn sóun en boðað er til opins fundar á Egilsstöðum mánudaginn 22. apríl kl. 13:00. Skiplags- og framkvæmdanefnd sendir fulltrúa á fundinn.

  19. 19. Vor í Fjarðabyggð - bæklingur

    Mál 2404083 Allur ferill málsins

    Lagt fram til kynningar afrakstur hugmyndavinnu að sérstöku átaki vorið 2024 þar sem íbúar og fyrirtæki verða hvött til þátttöku til hreinsunar og hirðingar í nærumhverfinu. Skipulags- og framkvæmdanefnd líst vel á áformin og þakkar kynninguna.