Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarstjórn

Bæjarstjórn, fundur 376

2. maí 2024, kl. 16:00 til 17:55, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (12)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar
  • Birgir Jónsson, aðalmaður
  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, aðalmaður
  • Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, 2. varaforseti bæjarstjórnar
  • Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
  • Kristinn Þór Jónasson, aðalmaður
  • Heimir Snær Gylfason, varamaður
  • Benedikt Jónsson, varamaður

Starfsmenn

  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Haraldur Líndal Haraldsson, embættismaður

Dagskrá

Tölva tengdi dagskrárliði við upptökuna. Tímasetningar geta skeikað.

  1. 1. Ársreikningur Fjarðabyggðar árið 2023

    Mál 2403162 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:17:16

    Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir ársreikningi.

    Vísað til síðar umræðu bæjarstjórnar ársreikningi Fjarðabyggðar og stofnana fyrir árið 2023.

    Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson og Stefán Þór Eysteinsson.

    Bókun Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins við seinni umræðu um ársreikning Fjarðabyggðar og stofnana 2023.

    Ársreikningur Fjarðabyggðar árið 2023 endurspeglar hvorutveggja, fjárhagslegan styrkleika sveitarfélagsins en um leið þungan rekstur A-hluta sveitarsjóðs. Áskoranir Fjarðabyggðar, eins og annara sveitarfélaga speglast í hárri verðbólgu, vaxtabyrgði og auknum lífeyrisskuldbindingum. Rekstrarniðurstaða A-hlutans er neikvæð um 100 m.kr. en gert var ráð fyrir 20.m.kr neikvæðri niðurstöðu. Það er áhyggjuefni að A-hlutinn nái ekki, þrátt fyrir tekjuaukningu, endum saman og þarf það að vera markmið áfram að bæta rekstur sveitarfélagsins með hagræðingu að leiðarljósi um leið og staðinn verður vörður um þjónustu þess við íbúa.

    Þrátt fyrir þungan rekstur A-hlutans eru jákvæð teikn til staðar ef horft er til heildarniðurstöðu ársreikningsins en rekstur samstæðunnar var jákvæður um 400 m.kr. sem er talsverð aukning á milli ára. Það sýnir mátt samfélagsins og sterka stöðu til framtíðar að niðurstaðan sé jákvæð þrátt fyrir háar afborganir lána og aukinna lífeyrisskuldbindinga.

    Áfram er því mikilvægt að lögð sé áhersla á að rekstur Fjarðabyggðar haldi sig innan útgefinna fjárhagsramma. Þá er það ljóst að tekjustofnar sveitarfélaga haldast ekki í hendur við aukna þjónustu (sem þau sinna) við íbúa sína og mikilvægt að leiða þau mál til lykta með ríkisvaldinu hið fyrsta til að tryggja sjálfbæran rekstur sveitarfélaga til framtíðar.

    Bókun Fjarðalistans við seinni umræðu um ársreikning Fjarðabyggðar og stofnana 2023.

    Jafnt og síðustu ár voru háir vextir og há verðbólga að mörgu leyti einkennandi fyrir árið 2023 og hafði það áhrif á heimili landsins sem og sveitarfélög þess. Þrátt fyrir fyrirliggjandi ástæður í efnahagsumhverfinu var rekstrarniðurstaða í samstæðu Fjarðabyggðar jákvæð um 409 milljón kr. Neikvæð niðurstaða á rekstrarreikningi í A-hluta skýrist að miklu leyti af reiknuðum stærðum svo sem lífeyrisskuldbindingu og vaxtakostnaði sökum hárri verðbólgu.

    Áfram var fjárfest í mikilvægum innviðum og á sama tíma jókst veltufé frá rekstri umtalsvert bæði í samstæðu Fjarðabyggðar sem og í A-hluta, skuldahlutfall og skuldaviðmið sveitarfélagsins lækkar en heildarskuldir Fjarðabyggðar lækkuðu að raunvirði um 630 millj.kr. á milli ára og á sama tíma hækkar framlegð. Einnig má nefna að hlutfallslegur launakostnaður af tekjum sveitarfélagsins hefur farið lækkandi síðustu ár og sömuleiðis fækkaði stöðugildum á milli ára. Það er ljóst að rekstur sveitarfélagsins verður áfram krefjandi en ársreikningur ársins 2023 er þó til marks um að vel hafi tekist þrátt fyrir krefjandi umhverfi.

    Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum ársreikning Fjarðabyggðar og stofnana fyrir árið 2023 og áritar hann.

  2. 2. Bæjarráð - 843

    Fundargerðin í heild Upptaka frá 0:21:56

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tóku: Ragnar Sigurðsson, Stefán Þór Eysteinsson, Jón Björn Hákonarson, Þuríður Lillý Sigurðardóttir, Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir.

    Fundargerð bæjarráðs frá 15. apríl staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 2.1 Rekstur málaflokka 20242403158
    2. 2.2 Tilboð í tjaldstæði Fjarðabyggðar24022790:21:56
    3. 2.3 Umsókn um stofnframlög á árinu 202424030050:23:48
    4. 2.4 Ársfundur Lífeyrissjóðs Stapa 2.maí 20242404065
    5. 2.5 Beiðni um uppsetningu hraðhleðslustöðva23100340:24:44
    6. 2.6 Málefni Auturbrúar - Eyglóarverkefni24040590:25:40
    7. 2.7 Samtal um nátturustofu2404060
    8. 2.8 Aðstoðuleysi í Oddskarði2403229
    9. 2.9 Skólafrístund2404044
    10. 2.10 Verkefnið Sterkur Stöðvarfjörður2211108
    11. 2.11 Þjóðlendumál kröfur óbyggðanefndar eyjar og sker2402163
    12. 2.12 Fjölskyldunefnd - 22404008F
    13. 2.13 Stjórn menningarstofu - 32404004F
  3. 3. Bæjarráð - 844

    Fundargerðin í heild Upptaka frá 0:27:32

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð bæjarráðs frá 22. apríl staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 3.1 Samningur Norðfjarðarflugvöll - árleg yfirferð24031840:27:32
    2. 3.2 Úrsögn úr undirkjörstjórn á Reyðarfirði2402258
    3. 3.3 Landsmót Harmonikkuunnenda sumar 202524041420:28:56
    4. 3.4 Uppbygging hleðsluinnviða í Fjarðabyggð2404123
    5. 3.5 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Brekkugerði 182404001
    6. 3.6 Breiðablik þjónustuíbúðir aldraðra - ástand húsnæðis22071250:29:24
    7. 3.7 Slökkvilið Fjarðabyggðar - málefni2305266
    8. 3.8 Aðalfundur Sparisjóðs Austurlands hf. 20242404122
    9. 3.9 Umsóknir í Framkvæmdasjóð Ferðamannastaða 20242308105
    10. 3.10 Ofanflóðavarnir Nes- og Bakkagil Norðfjörður2009034
    11. 3.11 Hringferð Neytandasamtakanna2404109
    12. 3.12 Umsögn stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga um vindorkuskýrsluna2305139
    13. 3.13 Stjórnsýslukæra23070810:58:48
    14. 3.14 Til umsagnar 900.mál2404161
    15. 3.15 Til umsagnar 899.mál2404162
    16. 3.16 Fundargerðir Austurbrúar og SSA2311224
    17. 3.17 Fundargerðir Austurbrúar og SSA2311224
    18. 3.18 Fjölskyldunefnd - 32404010F
    19. 3.19 Skipulags- og framkvæmdanefnd - 72404015F
    20. 3.20 Starfshópur um nýtingu mannvirkja í rekstri Fjarðabyggðar - 12404014F
  4. 4. Bæjarráð - 845

    Fundargerðin í heild Upptaka frá 0:30:48

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð bæjarráðs frá 29. apríl utan liðar 4 staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 4.1 Tilkynning og kvörtun vegna fyrirhugaðra skipulagsbreytinga á skólastarfi24041950:30:48
    2. 4.2 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 202524042130:32:12
    3. 4.3 Fiskeldissjóður - umsóknir 202423080850:33:36
    4. 4.4 Kennslutímamagn grunnskóla Fjarðabyggðar 2024-202524032891:16:04
    5. 4.5 Vallavinnusamningur 2023-202523034280:46:40
    6. 4.6 Forsetakosningar 1. júní 20242401122
    7. 4.7 Reglur Fjarðabyggðar um þjónustuíbúðir fyrir eldra fólk24040110:35:56
    8. 4.8 Breyting á samþykkt um fiðurfé2404096
    9. 4.9 Drög að breytingum á reglum um stöðuleyfi lausafjármuna2402159
    10. 4.10 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Skólavegur 562404174
    11. 4.11 Nefndaskipan í Fjarðabyggð 2022 - 20262205172
    12. 4.12 Landshlutafundur2404090
    13. 4.13 Formleg boðun aðalfundar SSA fimmtudaginn 23. maí2404202
    14. 4.14 Fundargerðir Samtaka orkusveitarfélaga 20242403087
    15. 4.15 Fundargerðir Samtaka orkusveitarfélaga 20242403087
    16. 4.16 Æðavarp í landi Fjarðabyggðar2402161
    17. 4.17 Aðalfundarboð - Leigufélagið Bríet ehf.2404215
    18. 4.18 Frumvarp til laga um lagareldi2312045
    19. 4.19 Umsóknir í Framkvæmdasjóð Ferðamannastaða 202423081051:00:40
    20. 4.20 Skipulags- og framkvæmdanefnd - 82404023F
    21. 4.21 Hafnarstjórn - 3102404021F
    22. 4.22 Stjórn menningarstofu - 42404020F
    23. 4.23 Fjölskyldunefnd - 42404018F
    24. 4.24 Ungmennaráð - 122403007F
    25. 4.25 Ungmennaráð - 132403020F
    26. 4.26 Hafnarstjórn - 3112404026F
  5. 5. Fjölskyldunefnd - 2

    Fundargerðin í heild Upptaka frá 1:42:40

    Fundargerðir fjölskyldunefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð fjölskyldunefndar frá 5. apríl staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 5.1 Skólafrístund2404044
    2. 5.2 Fjölþætt heilsuefling fyrir eldri aldurshópa2004159
    3. 5.3 Gott að eldast-samþætting þjónustu Fjarðabyggð og HSA2306119
    4. 5.4 Erindisbréf fjölskyldunefndar2312054
    5. 5.5 Búsetukjarni og skammtímavistun2301106
  6. 6. Fjölskyldunefnd - 3

    Fundargerðin í heild

    Fundargerðir fjölskyldunefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð fjölskyldunefndar frá 10. apríl staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 6.1 Aðstoðuleysi í Oddskarði2403229
    2. 6.2 Beiðni um styrk til reksturs Bjarmahlíðar2404038
    3. 6.3 Landshlutafundur2404090
    4. 6.4 Einangrun og kynding í Fjarðabyggðarhöllina2403230
    5. 6.5 Reglur Fjarðabyggðar um þjónustuíbúðir fyrir eldra fólk2404011
    6. 6.6 Kuldaboli 20242404072
    7. 6.7 Fundaáætlun fjölskyldunefnd vor 20242404071
  7. 7. Fjölskyldunefnd - 4

    Fundargerðin í heild

    Fundargerðir fjölskyldunefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð fjölskyldunefndar frá 22. apríl staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 7.1 Fjárhagsáætlunar vinna 20252404149
    2. 7.2 Kennslutímamagn grunnskóla Fjarðabyggðar 2024-20252403289
    3. 7.3 Mönnun leikskóla 20242404169
    4. 7.4 Vorráðstefnu Ráðgjafar- og greiningarstöðvar2403280
    5. 7.5 Vallavinnusamningur 2023-20252303428
    6. 7.6 Aðalfundur Landskerfis bókasafna 20242404150
    7. 7.7 Ungmennaráð - 132403020F
    8. 7.8 Ungmennaráð - 122403007F
  8. 8. Skipulags- og framkvæmdanefnd - 7

    Fundargerðin í heild Upptaka frá 1:43:36

    Fundargerðir skipulags- og framkvæmdanefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 17. apríl staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 8.1 Lóðarmál við Hjallaleiru 13 til 192303218
    2. 8.2 Mógerði 1 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2404135
    3. 8.3 Bakkabakki 2b - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2404086
    4. 8.4 Brekkugata 4 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2403188
    5. 8.5 Bakkavegur 5 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2402155
    6. 8.6 Austurvegur 4 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2404075
    7. 8.7 Svarthamrar - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2404002
    8. 8.8 Sæbakki 17 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2402175
    9. 8.9 Breyting á deiliskipulagi Miðbæjar Reyðarfirði2402273
    10. 8.10 Aðalskipulag óverulegbreyting á aðalskipulagi Stöðvarfjörður tjaldsvæði2403082
    11. 8.11 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Brekkugerði 182404001
    12. 8.12 Samningur við Skógræktarfélag Reyðarfjarðar2302213
    13. 8.13 Breyting á samþykkt um fiðurfé2404096
    14. 8.14 Drög að breytingum á reglum um stöðuleyfi lausafjármuna2402159
    15. 8.15 Óskum eftir að fá að setja bekk við Barkinn á Reyðarfirði2404108
    16. 8.16 IMaR 2024 ráðstefnan2404097
    17. 8.17 Umsagnarbeiðni um stækkun á athafna- og hafnasvæði Djúpavogs2403204
    18. 8.18 Saman gegn sóun - tækifæri til að hafa áhrif á nýja stefnu um úrgangsforvarnir2403283
    19. 8.19 Vor í Fjarðabyggð - bæklingur2404083
  9. 9. Skipulags- og framkvæmdanefnd - 8

    Fundargerðin í heild

    Fundargerðir skipulags- og framkvæmdanefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman. Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 24. apríl staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 9.1 Æðavarp á Reyðarfirði2402161
    2. 9.2 Ný staðsetning gámasvæða2209189
    3. 9.3 Breiðablik þjónustuíbúðir aldraðra - ástand húsnæðis2207125
    4. 9.4 Tilkynning um úrskurð v/ Hafnargötu 362404158
    5. 9.5 Leirubakki 9 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2402235
    6. 9.6 Deiliskipulag breyting Leira 12404178
    7. 9.7 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Skólavegur 562404174
    8. 9.8 Egilsbraut 22 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2404156
    9. 9.9 Fjárréttir í Fjarðabyggð1808042
    10. 9.10 Mógerði 1 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2404135
  10. 10. Stjórn menningarstofu - 3

    Fundargerðin í heild Upptaka frá 1:44:04

    Fundargerðir stjórnar menningarstofu teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tók Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð stjórnar menningarstofu frá 8. apríl staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 10.1 Umsókn um leigu ( Skrúður )
    2. 10.2 Styrktarsjóður EBÍ 2024
    3. 10.3 80 ára afmæli lýðveldisins1:47:20
    4. 10.4 Framtíð Íslenska Stríðsárasafnsins1:45:28
    5. 10.5 Starfsemi og þjónusta safna Fjarðabyggðar sumarið 2024
    6. 10.6 Verkefni menningarstofu 2024
    7. 10.7 17. júní 2024
  11. 11. Stjórn menningarstofu - 4

    Fundargerðin í heild

    Fundargerðir stjórnar menningarstofu teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð stjórnar menningarstofu frá 22. apríl staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 11.1 Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar menningarstofu- og safnastofnunar 20242305067
    2. 11.2 Starfsemi og þjónusta safna Fjarðabyggðar sumarið 20242402237
    3. 11.3 Framlag til reksturs 20242404154
    4. 11.4 Sómastaðir, samningur um umsjón húss.2404171
  12. 12. Hafnarstjórn - 310

    Fundargerðin í heild Upptaka frá 1:48:44

    Fundargerðir hafnarstjórnar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tók Heimir Snær Gylfason.

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 22. apríl staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 12.1 Rekstur Fjarðabyggðarhafna2312117
    2. 12.2 Starfs- og fjárhagsáætlun hafnarstjórnar 20242305073
    3. 12.3 Eskifjarðarhöfn - stækkun20030911:49:40
    4. 12.4 Sævarendi 2, Stöðvarfirði2404163
    5. 12.5 Öryggismál hafna22061001:50:08
    6. 12.6 Styrkir til Orkuskipta24032161:51:04
    7. 12.7 Aðstöðuhús við Stöðvarfjarðarhöfn2404121
    8. 12.8 Löndun meltu í Fjarðabyggðarhöfnum2404167
    9. 12.9 Leyfi fyrir viðbótar hafnarkrana við Mjóeyrarhöfn - Eimskip23071251:52:00
    10. 12.10 Ósk um flotbryggjur við Bæjarbryggjuna á Norðfirði24041681:52:28
    11. 12.11 Ársreikningur Hafnasambands Íslands 20232404155
  13. 13. Hafnarstjórn - 311

    Fundargerðin í heild Upptaka frá 1:54:20

    Fundargerðir hafnarstjórnar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 26. apríl staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 13.1 Þjónustusamningur um Vött2404205
    2. 13.2 Bakvaktafyrirkomulag Fjarðabyggðarhafna2404206
  14. 14. Ungmennaráð - 12

    Fundargerðin í heild

    Fundargerðir ungmennaráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð ungmennaráðs frá 13. mars staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 14.1 Erindi til ungmennaráðs vegna fræðslu og forvarna2403088
  15. 15. Ungmennaráð - 13

    Fundargerðin í heild

    Fundargerðir ungmennaráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð ungmennaráðs frá 3. apríl staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 15.1 Umræðupunktar til ungmennaráðs frá skólaþingi Grunnskóla Reyðarfjarðar2403228
  16. 16. Skipan undirkjörstjórnar á Reyðarfirði

    Mál 2402258 Allur ferill málsins Upptaka frá 1:54:48

    Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir skipan í undirkjörstjórn.

    Vísað frá bæjarráði til staðfestingar bæjarstjórnar tillögu að skipan Láru Björnsdóttur sem aðalmanns í undirkjörstjórn á Reyðarfirði í stað Aðalheiðar Vilbergsdóttur ásamt skipun Andreu Borgþórsdóttur sem formanns kjörstjórnarinnar.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn samþykkir með 9 tillögur um skipan kjörstjórnar.

  17. 17. Nefndaskipan í Fjarðabyggð 2022 - 2026

    Mál 2205172 Allur ferill málsins Upptaka frá 1:56:12

    Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir breytingu á nefndaskipan.

    Vísað frá bæjarráði til afgreiðslu bæjarstjórnar tillögu að skipan fulltrúa öldungaráðs.

    Tilnefnd eru sem aðalmenn Ólafur Helgi Guðmundsson formaður, Árni Þórhallur Helgason varaformaður og Arndís Bára Pétursdóttir. Varamenn Ragnar Sigurðsson, Pálína Margeirsdóttir og Einar Már Sigurðarson.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum tillögu að skipan fulltrúa öldungaráðs.

  18. 18. Reglur Fjarðabyggðar um þjónustuíbúðir fyrir eldra fólk

    Mál 2404011 Allur ferill málsins Upptaka frá 1:57:08

    Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir breytingum á reglum.

    Vísað frá bæjarráði til staðfestingar bæjarstjórnar tillögu að breytingu á reglum um þjónustuíbúðir

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum breytingar á reglum um þjónustuíbúðir.

  19. 19. Breyting á deiliskipulagi Miðbæjar Reyðarfirði

    Mál 2402273 Allur ferill málsins Upptaka frá 1:58:04

    Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir óverulegri breytingu á deiliskipulagi.

    Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarstjórnar óverulegri breytingu á deiliskipulagi Miðbæjar á Reyðarfirði vegna byggingar búsetukjarna. Auglýsingartíma lokið og engar athugasemdir bárust.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum breytingar á deiliskipulagi Miðbæjar á Reyðarfirði.

  20. 20. Aðalskipulag óverulegbreyting á aðalskipulagi Stöðvarfjörður tjaldsvæði

    Mál 2403082 Allur ferill málsins Upptaka frá 1:58:32

    Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir óverulegri breytingu á aðalskipulagi.

    Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarstjórnar óverulegri breytingu á aðalskipulagi Stöðvarfjarðar vegna tjaldsvæðis á Stöðvarfirði. Um er að ræða óverulega breytingu á gildandi aðalskipulagi vegna áforma um staðsetningu tjaldsvæðis á Stöðvarfirði en felld er út fyrirhuguð staðsetning tjaldsvæðis í gildindi aðalskipulagi og staðsetning þess verður sú sem hefur verið síðustu ár. Málsmeðferð er í samræmi við 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarráð samþykkir með 9 atkvæðum óverulega breytingu á aðalskipulagi.

  21. 21. Sæbakki 17 - Grenndarkynning

    Mál 2402175 Allur ferill málsins Upptaka frá 1:59:28

    Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir grenndarkynningu.

    Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarstjórnar grenndarkynningu vegna fjölbýlishúss á Sæbakka 17 á Norðfirði. Engar athugasemdir bárust.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum niðurstöðu grenndarkynningar.

  22. 22. Bakkavegur 5 - grenndarkynning

    Mál 2402155 Allur ferill málsins Upptaka frá 1:59:56

    Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir niðurstöðu grenndarkynningar.

    Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til staðfestingar bæjarstjórnar grenndarkynningu vegna Bakkavegar 5, stækkun lóðar og viðbyggingar á tveim hæðum.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum niðurstöður grenndarkynningar.

  23. 23. Brekkugata 4 - grenndarkynning

    Mál 2403188 Allur ferill málsins Upptaka frá 2:00:24

    Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir grenndarkynningu.

    Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarstjórnar grenndarkynningu vegna breytina á bílskúrsþaki að Brekkugötu 4 á Reyðarfirði

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum niðurstöður grenndarkynningar.