Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirSkipulags- og framkvæmdanefnd

Skipulags- og framkvæmdanefnd, fundur 8

24. apríl 2024, kl. 16:00 til 17:30, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Svanur Freyr Árnason.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, formaður
  • Kristinn Þór Jónasson, varaformaður
  • Ívar Dan Arnarson, varamaður
  • Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, aðalmaður
  • Birkir Snær Guðjónsson, varamaður

Starfsmenn

  • Svanur Freyr Árnason, embættismaður
  • Aron Leví Beck Rúnarsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 845 liður 20

    Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 24.apríl.

  • Bæjarstjórn, fundur 376 liður 9

    Fundargerðir skipulags- og framkvæmdanefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman. Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 24. apríl staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Æðavarp á Reyðarfirði

    Mál 2402161 Allur ferill málsins

    Umræða um stöðu mála varðandi æðarvarp á Reyðarfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur verkefnastjóra umhverfismála að friðlýsa æðarvarp í landi Kollaleiru í Reyðarfirði og hefja undirbúning að útboði varpsins í kjölfarið fyrir varptíma 2024.

  2. 2. Ný staðsetning gámasvæða

    Mál 2209189 Allur ferill málsins

    Framlögð tillaga að nýrri staðsetningu gámasvæðis á Reyðarfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur sviðsstjóra framkvæmda- og umhverfissviðs að ræða verkefnastjóra hafna varðandi mögulega staðsetningu á nýs gámasvæðis á Mjóeyrarhöfn.

  3. 3. Breiðablik þjónustuíbúðir aldraðra - ástand húsnæðis

    Mál 2207125 Allur ferill málsins

    Framlögð tillaga að svari til HAUST vegna Breiðabliks. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir drög að svari og felur sviðsstjóra framkvæmda- og umhverfissviðs að svara erindinu.

  4. 4. Tilkynning um úrskurð v/ Hafnargötu 36

    Mál 2404158 Allur ferill málsins

    Framlagður úrskurður umhverfis- og auðlindanefndar vegna Hafnargötu 36 á Fáskrúðsfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar fyrir kynninguna.

  5. 5. Leirubakki 9 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

    Mál 2402235 Allur ferill málsins

    Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi Fjarðabyggðarhafna að Leirubakka 9 á Eskifirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa að grenndarkynna byggingaráformin.

  6. 6. Deiliskipulag breyting Leira 1

    Mál 2404178 Allur ferill málsins

    Framlögð tillaga að breytingu á deilskipulaginu Leira 1 á Eskifirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd frestar málinu vegna fyrirhugaðra breytinga á aðalskipulagi.

  7. 7. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Skólavegur 56

    Mál 2404174 Allur ferill málsins

    Framlögð umsókna Gunnars Geirs Kristjánssonar um endurnýjun á lóðaleigusamningi fyrir lóðina að SKólavegi 56 á Fáskrúðsfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir stækkun lóðar og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út nýjan lóðarleigusamning.

  8. 8. Egilsbraut 22 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

    Mál 2404156 Allur ferill málsins

    Framlögð umsókn um byggingaráfrom og byggingarleyfi Steindórs H. Stefánsson f.h. Hildibrand ehf. vegna nýbyggingar á lóðini að Egilsbraut 22. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa að grenndarkynna byggingaráformin og leggja fyrir nefnd að nýju.

  9. 9. Fjárréttir í Fjarðabyggð

    Mál 1808042 Allur ferill málsins

    Ný fjárrétt í Norðfirði fyrir haustið 2024. Skipulags- og framkvæmdarnefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa að koma með tillögu að staðsetningu á fjárrétt í Norðfirði.

  10. 10. Mógerði 1 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

    Mál 2404135 Allur ferill málsins

    Mógerði 1 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi. Niðurstaða grenndarkynningar, lagðar fram undirskriftir allra hlutaðeigandi aðila. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi er öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.