Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 845

29. apríl 2024, kl. 08:30 til 11:00, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Ragnar Sigurðsson, formaður
  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, varamaður
  • Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 376 liður 4

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð bæjarráðs frá 29. apríl utan liðar 4 staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Tilkynning og kvörtun vegna fyrirhugaðra skipulagsbreytinga á skólastarfi

    Mál 2404195 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf mennta- og barnamálaráðuneytis vegna skipulagsbreyting á fræðslumálum í Fjarðabyggð.

    Fjarðabyggð hefur borist niðurstaða mennta- og barnamálaráðuneytisins vegna þeirra athugasemda sem Kennarasamband Íslands gerði við fyrirhugaðar breytingar á fræðslumálum í Fjarðabyggð. Í niðurstöðu álits ráðuneytisins kemur fram að breytingar í fræðslumálum í leik-, grunn- og tónlistarskólum Fjarðabyggð stangist ekki á við gildandi lög. Athugasemdir ráðuneytisins snúa að formlegu samráðsferli, að ekki hafi verið haft nægt samráð við skólaráð grunnskóla eða foreldraráð leikskóla. Í ljósi þessarar athugasemdar mun Fjarðabyggð hefja samráðs- og kynningarferli.

  2. 2. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2025

    Mál 2404213 Allur ferill málsins

    Fjármálastjóri kynnti fyrirhugaða vinnu við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2025 auk þriggja ára áætlunar.

    Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi tillögur og vísar erindinu til nefnda svo hægt sé að hefja undirbúningsvinnu fyrir fjárhagsáætlanagerð ársins 2025.

  3. 3. Fiskeldissjóður - umsóknir 2024

    Mál 2308085 Allur ferill málsins

    Framlögð niðurstaða Fiskeldissjóðs um úthlutun framlaga til verkefna sem Fjarðabyggð sótti um á árinu 2024.

    Stjórn fiskeldisjóðs hefur úthlutað 437,2 milljónum kr til sextán verkefna í sjö sveitarfélögum. Af því var úthlutað til Fjarðabyggðar 151.840.000 kr. til fjögurra verkefna.

    Fráveita á Breiðdalsvík, seinni hluti, hreinsivirki, samtals úthlutað 26.494.000 kr.

    Kaup á slökkvibifreið, Fjarðabyggð, samtals úthlutað 44.452.000 kr.

    Leikskólinn Dalborg, Eskifirði, innanhúsfrágangur, samtals úthlutað 40.447.000 kr.

    Lenging Strandabryggju, Fáskrúðsfirði samtals úthlutað 40.447.000 kr.

    Fjarðabyggð fagnar því að fá úthlutað fjármunum úr sjóðnum til þessara verðugu verkefna. Þrátt fyrir það vill sveitarfélagið árétta fyrri bókanir þess efnis að útdeiling tekna af gjaldtöku í fiskeldi í sjó renni til sveitarfélaga þar sem nýting auðlindarinnar og starfsemi fyrirtækja í fiskeldi fari fram og þörfin til uppbyggingar þjónustu sé mest. Við setningu laga nr. 89/2019 um töku gjalds vegna fiskeldis í sjó og fiskeldissjóð var lögð áhersla á að hlutverk sjóðsins væri að styrkja uppbyggingu innviða þar sem fiskeldi í sjókvíum er stundað og þar með samfélög og stoðir atvinnulífs á þeim svæðum. Ekkert sveitarfélag hefur að geyma jafnmikið sjókvíaeldi og Fjarðabyggð, hvort sem litið er til burðarþolsmats eða áhættumats.

    Skorað er á matvælaráðherra að endurskoða fyrirkomulag sjóðsins með það fyrir augum að leggja Fiskeldissjóð niður. Tekjur vegna gjaldtöku fiskeldis í sjó og ætlað er til innviðauppbyggingar í sveitarfélögum þar sem sjókvíaeldi er stundað ætti að renna beint til sveitarfélaga án aðkomu Fiskeldissjóðs miðað við lífmassa, burðarþol- eða áhættumat fjarða.

    Vísað til hafnarstjórnar og skipulags- og framkvæmdanefndar.

  4. 4. Kennslutímamagn grunnskóla Fjarðabyggðar 2024-2025

    Mál 2403289 Allur ferill málsins

    Vísað frá fjölskyldunefnd til afgreiðslu bæjarráðs breytingum á kennslutímaúthlutun grunnskóla Fjarðabyggðar.

    Bæjarráð samþykkir með tveimur atkvæðum breytingar á kennslutímaúthlutun grunnskóla Fjarðabyggðar. Breytingar fela í sér nýjan úthlutunarflokk sem felur í sér sértæka úthlutun (ílags úthlutun) til nemenda sem þarfnast viðbótarstuðnings. Með breytingunni verður kennslutímaúthlutun til handa nemendum með auknar stuðningsþarfir gagnsærri, bæði fyrir skólana og foreldra nemendanna.

    Stefán Þór Eysteinsson situr hjá við afgreiðslu liðar.

  5. 5. Vallavinnusamningur 2023-2025

    Mál 2303428 Allur ferill málsins

    Vísað frá fjölskyldnefnd til afgreiðslu bæjarráðs samningi við Knattspyrnyfélag Austfjarða um rekstur Eskjuvallar á Eskifirði.

    Bæjarráð samþykkir framlagðan vallavinnusamning við Knattspyrnufélag Austfjarða vegna reksturs Eskjuvallar og felur bæjarstjóra undirritun hans. Samningurinn er í samræmi við samning um rekstur vallarins undanfarin ár.

  6. 6. Forsetakosningar 1. júní 2024

    Mál 2401122 Allur ferill málsins

    Lögð fram kynning til sveitarfélaga vegna forsetakosninga sem fram fara þann 1. júní 2024.

  7. 7. Reglur Fjarðabyggðar um þjónustuíbúðir fyrir eldra fólk

    Mál 2404011 Allur ferill málsins

    Vísað frá fjölskyldunefnd til afgreiðslu bæjarráðs tillögum að breyttum reglum Fjarðabyggðar um þjónustuíbúðir fyrir eldra fólk.

    Bæjarráð samþykkir framlagðar tillögur að breyttum reglum um þjónustuíbúðir og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.

  8. 8. Breyting á samþykkt um fiðurfé

    Mál 2404096 Allur ferill málsins

    Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarráð drögum að endurskoðuðum reglum um fiðurfé.

    Bæjarráð vísar máli að nýju til skipulags- og framkvæmdanefndar til áframhaldandi vinnu.

  9. 9. Drög að breytingum á reglum um stöðuleyfi lausafjármuna

    Mál 2402159 Allur ferill málsins

    Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarráðs endurskoðuðum reglum um stöðuleyfi lausafjármuna.

    Bæjarráð vísar máli að nýju til skipulags- og framkvæmdanefndar til áframhaldandi vinnu.

  10. 10. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Skólavegur 56

    Mál 2404174 Allur ferill málsins

    Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarráðs stækkun lóðar að Skólavegi 56 á Fáskrúðsfirði sem gerð er samhliða endurnýjun lóðarsamnings.

    Bæjarráð samþykkir stækkun lóðarinnar.

  11. 11. Nefndaskipan í Fjarðabyggð 2022 - 2026

    Mál 2205172 Allur ferill málsins

    Skipun öldungaráðs, þrír aðalfulltrúar og jafn margir til vara.

    Tilnefnd eru sem aðalmenn Ólafur Helgi Guðmundsson formaður, Árni Þórhallur Helgason varaformaður og Arndís Bára Pétursdóttir. Varamenn Ragnar Sigurðsson, Pálína Margeirsdóttir og Einar Már Sigurðarson.

    Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.

  12. 12. Landshlutafundur

    Mál 2404090 Allur ferill málsins

    Framlagt til kynningar erindi frá jafnréttisstofu um landshlutafund þann 8. maí á Egilsstöðum.

  13. 13. Formleg boðun aðalfundar SSA fimmtudaginn 23. maí

    Mál 2404202 Allur ferill málsins

    Framlagt boð á aðalfund Sambands sveitarfélaga á Austurlandi sem haldinn verður 23. maí á Breiðdalsvík.

    Bæjarfulltrúar fara með umboð Fjarðabyggðar á aðalfundinum.

  14. 14. Fundargerðir Samtaka orkusveitarfélaga 2024

    Mál 2403087 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar fundargerð stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga nr. 70.

  15. 15. Fundargerðir Samtaka orkusveitarfélaga 2024

    Mál 2403087 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar fundargerð stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga nr. 71

  16. 16. Æðavarp í landi Fjarðabyggðar

    Mál 2402161 Allur ferill málsins

    Bæjarráð samþykkti á fundi sínum 15. maí 2023 að landsvæðið fyrir æðavarp í Kollaleirulandi verði ekki boðið út heldur verði landsvæðið sem almennt land í eigu Fjarðabyggðar án heimilda til nota af neinu tagi og sé opið almenningi.

    Vísað til skipulags- og framkvæmdanefndar að áframhaldandi vinnslu.

  17. 17. Aðalfundarboð - Leigufélagið Bríet ehf.

    Mál 2404215 Allur ferill málsins

    Framlagt aðalfundarboð Leigufélagsins Bríetar ehf. sem haldinn verður verður 8. maí. nk.

    Bæjarráð samþykkir að Jóna Árný Þórðardóttir bæjarstjóri fari með umboð Fjarðabyggðar á aðalfundinum.

  18. 18. Frumvarp til laga um lagareldi

    Mál 2312045 Allur ferill málsins

    Framlagt 930. mál frá atvinnuveganefnd Alþingis um lagareldi þar sem óskað er umsagna um frumvarp um lagareldi.

    Bæjarráð felur bæjarstjóra að skila umsögn um málið.

  19. 19. Umsóknir í Framkvæmdasjóð Ferðamannastaða 2024

    Mál 2308105 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar niðurstaða í úthlutun úr framkvæmdasjóði ferðamannastaða en Fjarðabyggð fékk úthlutað í verkefnin Bleiksársfoss, hönnun kr. 2.460.080 og Streitishvarf, göngustígar kr. 25.000.000.

    Vísað til skipulags- og framkvæmdanefndar.

  20. 20. Skipulags- og framkvæmdanefnd - 8

    Fundargerðin í heild

    Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 24.apríl.

    1. 20.1 Æðavarp á Reyðarfirði2402161
    2. 20.2 Ný staðsetning gámasvæða2209189
    3. 20.3 Breiðablik þjónustuíbúðir aldraðra - ástand húsnæðis2207125
    4. 20.4 Tilkynning um úrskurð v/ Hafnargötu 362404158
    5. 20.5 Leirubakki 9 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2402235
    6. 20.6 Deiliskipulag breyting Leira 12404178
    7. 20.7 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Skólavegur 562404174
    8. 20.8 Egilsbraut 22 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2404156
    9. 20.9 Fjárréttir í Fjarðabyggð1808042
    10. 20.10 Mógerði 1 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2404135
  21. 21. Hafnarstjórn - 310

    Fundargerðin í heild

    Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð hafnarstjórnar frá 22. apríl.

    1. 21.1 Rekstur Fjarðabyggðarhafna2312117
    2. 21.2 Starfs- og fjárhagsáætlun hafnarstjórnar 20242305073
    3. 21.3 Eskifjarðarhöfn - stækkun2003091
    4. 21.4 Sævarendi 2, Stöðvarfirði2404163
    5. 21.5 Öryggismál hafna2206100
    6. 21.6 Styrkir til Orkuskipta2403216
    7. 21.7 Aðstöðuhús við Stöðvarfjarðarhöfn2404121
    8. 21.8 Löndun meltu í Fjarðabyggðarhöfnum2404167
    9. 21.9 Leyfi fyrir viðbótar hafnarkrana við Mjóeyrarhöfn - Eimskip2307125
    10. 21.10 Ósk um flotbryggjur við Bæjarbryggjuna á Norðfirði2404168
    11. 21.11 Ársreikningur Hafnasambands Íslands 20232404155
  22. 22. Stjórn menningarstofu - 4

    Fundargerðin í heild

    Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð stjórnar menningarstofu frá 22. apríl.

    1. 22.1 Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar menningarstofu- og safnastofnunar 20242305067
    2. 22.2 Starfsemi og þjónusta safna Fjarðabyggðar sumarið 20242402237
    3. 22.3 Framlag til reksturs 20242404154
    4. 22.4 Sómastaðir, samningur um umsjón húss.2404171
  23. 23. Fjölskyldunefnd - 4

    Fundargerðin í heild

    Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð fjölskyldunefndar frá 22. apríl.

    1. 23.1 Fjárhagsáætlunar vinna 20252404149
    2. 23.2 Kennslutímamagn grunnskóla Fjarðabyggðar 2024-20252403289
    3. 23.3 Mönnun leikskóla 20242404169
    4. 23.4 Vorráðstefnu Ráðgjafar- og greiningarstöðvar2403280
    5. 23.5 Vallavinnusamningur 2023-20252303428
    6. 23.6 Aðalfundur Landskerfis bókasafna 20242404150
    7. 23.7 Ungmennaráð - 132403020F
    8. 23.8 Ungmennaráð - 122403007F
  24. 24. Ungmennaráð - 12

    Fundargerðin í heild

    Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð ungmennaráðs frá 13. mars.

    1. 24.1 Erindi til ungmennaráðs vegna fræðslu og forvarna2403088
  25. 25. Ungmennaráð - 13

    Fundargerðin í heild

    Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð ungmennaráðs frá 3. apríl.

    1. 25.1 Umræðupunktar til ungmennaráðs frá skólaþingi Grunnskóla Reyðarfjarðar2403228
  26. 26. Hafnarstjórn - 311

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 26. apríl tekin til umfjöllunar og afgreiðslu.

    1. 26.1 Þjónustusamningur um Vött2404205
    2. 26.2 Bakvaktafyrirkomulag Fjarðabyggðarhafna2404206