Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFjölskyldunefnd

Fjölskyldunefnd, fundur 4

22. apríl 2024, kl. 16:15 til 18:00, að Búðareyri 2, fundarherbergi 1. Fundargerð ritaði Laufey Þórðardóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (10)

Fundinn sátu

  • Ragnar Sigurðsson, formaður
  • Birgir Jónsson, varaformaður
  • Pálína Margeirsdóttir, aðalmaður
  • Sigurjón Rúnarsson, varamaður
  • Salóme Rut Harðardóttir, varamaður

Starfsmenn

  • Laufey Þórðardóttir, embættismaður
  • Snorri Styrkársson
  • Inga Rún Beck Sigfúsdóttir
  • Aðalheiður Björk Rúnarsdóttir
  • Magnús Árni Gunnarsson

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 845 liður 23

    Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð fjölskyldunefndar frá 22. apríl.

  • Bæjarstjórn, fundur 376 liður 7

    Fundargerðir fjölskyldunefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð fjölskyldunefndar frá 22. apríl staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Fjárhagsáætlunar vinna 2025

    Mál 2404149 Allur ferill málsins

    Fjármálastjóri kynnir fyrirhugaða vinnu við fjárhagsáætlunargerð fyrir árið 2025

  2. 2. Kennslutímamagn grunnskóla Fjarðabyggðar 2024-2025

    Mál 2403289 Allur ferill málsins

    Nefndin samþykkir fyrir sitt leyti breytingar á kennslutímaúthlutun grunnskóla Fjarðabyggðar. Breytingar fela í sér nýjan úthlutunarflokk sem felur í sér sértæka úthlutun (ílags úthlutun) til nemenda sem þarfnast viðbótarstuðnings. Með breytingunni verður kennslutímaúthlutun til handa nemendum með auknar stuðningsþarfir gagnsærri, bæði fyrir skólana og foreldra nemendanna. Vísað til endanlegrar afgreiðslu bæjarráðs.

  3. 3. Mönnun leikskóla 2024

    Mál 2404169 Allur ferill málsins

    Umræða um möguleika til að draga úr álagi í leikskólum, auðvelda mönnun og styrkja faglegt starf enn frekar. Kynntar voru leiðir sem önnur sveitarfélög hafa verið að fara til að draga úr álagi leikskóla. Fjölskyldunefnd mun taka frekari umræðu um útfærslur og reynslu annarra sveitarfélaga á næstu fundum nefndarinnar.

  4. 4. Vorráðstefnu Ráðgjafar- og greiningarstöðvar

    Mál 2403280 Allur ferill málsins

    Vakin athygli á vorráðstefnu Ráðgjafar og greiningarstöðvar

  5. 5. Vallavinnusamningur 2023-2025

    Mál 2303428 Allur ferill málsins

    Fjölskyldnefnd samþykkir samning við knattspyrnyfélag Austfjarða um rekstur Eskjuvallar á Eskifirði og leggur fyrir bæjarráðs til fullnaðarafgreiðslu.

  6. 6. Aðalfundur Landskerfis bókasafna 2024

    Mál 2404150 Allur ferill málsins

    Framlagt fundarboð aðalfundar Landskerfis bókasafna sem haldinn verður 7. maí nk.

  7. 7. Ungmennaráð - 13

    Fundargerðin í heild

    Fundagerð Ungmennaráðs tekin til afgreiðslu

    1. 7.1 Umræðupunktar til ungmennaráðs frá skólaþingi Grunnskóla Reyðarfjarðar2403228
  8. 8. Ungmennaráð - 12

    Fundargerðin í heild

    Fundagerð ungmennaráðs tekin til afgreiðslu

    1. 8.1 Erindi til ungmennaráðs vegna fræðslu og forvarna2403088