Fjölskyldunefnd, fundur 5
6. maí 2024, kl. 16:15 til 21:00, í Búðareyri 2 fundarherbergi 2. Fundargerð ritaði Laufey Þórðardóttir.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)
Fundinn sátu
- Ragnar Sigurðsson, formaður
- Birgir Jónsson, varaformaður
- Jóhanna Sigfúsdóttir, aðalmaður
- Pálína Margeirsdóttir, aðalmaður
- Birta Sæmundsdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Laufey Þórðardóttir, embættismaður
- Magnús Árni Gunnarsson
- Anna Marín Þórarinsdóttir
Dagskrá
-
1. Mönnun leikskóla 2024
Mál 2404169 Allur ferill málsins
Bjarki Ármann Oddsson, fyrrverandi forstöðumaður fræðslu og lýðheilsusviðs Akureyrarbæjar, kynnti breytta tilhögun leikskólagjalda Akureyrarbæjar. Fjölskyldunefnd mun halda áfram yfirferð á kynningum á fyrirkomulagi annarra sveitarfélaga í leikskólamálum.
-
2. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2025
Mál 2404213 Allur ferill málsins
Farið yfir fyrirhugaða vinnu við gerð fjárhagsáætlunar 2025.Teknar verða fyrir starfsáætlanir málaflokka fjölskyldunefndar á næstu fundum nefndarinnar. Sviðstjóra og stjórnendum málaflokka falið að vinna drög að starfsáætlun.
-
3. Ársfjörðungs uppgjör íþrótta- og tómstundamál
Mál 2405012 Allur ferill málsins
Farið yfir ársfjórðungs rekstrarniðurstöðu íþrótta- og tómstundamála. Stjórnandi íþrótta- og frístundamála fór yfir rekstur fyrstu þrjá mánuði ársins. Áfram er þörf á að gæta aðhalds innan málaflokksins.
-
4. Starfs- og fjárhagsáætlun fjölskyldunefndar 2025
Mál 2404222 Allur ferill málsins
Sviðstjóri fjölskyldusviðs og stjórnandi íþrótta- og frístundamála fóru yfir drög að áætluðum breytingum í rekstri fyrir árið 2025. Sviðstjóri fjölskyldusviðs og stjórnandi íþrótta- og frístundamála falið að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.
-
5. Sumaropnun bókasafna 2024
Mál 2404233 Allur ferill málsins
Minnisblað sviðstjóra fjölskyldusviðs varðandi sumaropnun bókasafna Fjarðabyggðar lagt fram til afgreiðslu. Fjölskyldunefnd ákvað að opið yrði á sumrin frá 14:00-17:00 einu sinni í viku í hverju bókasafni.
-
6. Til umsagnar 934. mál
Mál 2405008 Allur ferill málsins
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um námstyrki kynnt fyrir fjölskyldunefnd.
-
7. Íþrótta- og tómstundastyrkir 2024
Mál 2404186 Allur ferill málsins
Fjölskyldunefnd frestar afgreiðslu úthlutunar og felur stjórnanda íþrótta- og frístundamála að afla frekari gagna.
-
8. Umsókn um íþróttastyrk
Mál 2404232 Allur ferill málsins
Fjölskyldunefnd felur stjórnanda íþrótta- og frístundamála að afla frekari gagna.
-
9. Umsókn um íþróttastyrk
Mál 2402215 Allur ferill málsins
Lögð fram drög að samningi við Golfklúbb Fjarðabyggðar um rekstrar- og uppbyggingarstyrk til þriggja ára. Fjölskyldunefnd samþykkir drögin fyrir sitt leyti og vísar til bæjarráðs til endanlegar afgreiðslu.
-
10. Umsókn um íþróttastyrk
Mál 2404183 Allur ferill málsins
Fjölskyldunefnd samþykkir styrkveitingu til Ungmennafélagsins Vals að upphæð 1.669.397kr. Af þeim styrk er jöfnunarstyrkur að upphæð 260.057kr.
-
11. Umsókn um íþróttastyrk
Mál 2404055 Allur ferill málsins
Fjölskyldunefnd samþykkir styrkveitingu til UMF Leiknis að upphæð 1.531.226kr. Af þeim styrk er jöfnunarstyrkur að upphæð 260.057kr.
-
12. Umsókn um íþróttastyrk
Mál 2404184 Allur ferill málsins
Fjölskyldunefnd samþykkir styrkveitingu til UMF Súlunnar að upphæð 307.430kr. Af þeim styrk er jöfnunarstyrkur að upphæð 260.057kr.
-
13. Umsókn um íþróttastyrk
Mál 2403094 Allur ferill málsins
Fjölskyldunefnd felur stjórnanda íþrótta- og frístundamála að afla frekari gagna.
-
14. Umsókn um íþróttastyrk
Mál 2404231 Allur ferill málsins
Fjölskyldunefnd samþykkir að veita skotveiðifélaginu Dreka rekstrar- og uppbyggingarstyrk að sömu upphæð og 2023 til eins árs vegna uppbyggingar á aðstöðu.
-
15. Umsókn um íþróttastyrk
Mál 2403116 Allur ferill málsins
Lögð fram drög að samningi við Golfklúbb Fjarðabyggðar um rekstrar- og uppbyggingarstyrk til þriggja ára. Fjölskyldunefnd samþykkir drögin fyrir sitt leyti og vísar til bæjarráðs til endanlegar afgreiðslu.
-
16. Umsókn um íþróttastyrk
Mál 2404204 Allur ferill málsins
Fjölskyldunefnd felur stjórnanda íþrótta- og frístundamála að afla frekari gagna.
-
17. Umsókn um íþróttastyrk
Mál 2403128 Allur ferill málsins
Fjölskyldunefnd samþykkir styrkveitingu til UMF Þróttar að upphæð 2.683.964kr. Af þeim styrk er jöfnunarstyrkur að upphæð 260.057kr.
-
18. Umsókn um íþróttastyrk
Mál 2404235 Allur ferill málsins
Fjölskyldunefnd felur stjórnanda íþrótta- og frístundamála að afla frekari gagna.
-
19. Umsókn um íþróttastyrk
Mál 2404179 Allur ferill málsins
Fjölskyldunefnd samþykkir styrkveitingu til UMF Austra að upphæð 1.077.237kr. Af þeim styrk er jöfnunarstyrkur að upphæð 260.057kr.
-
20. Umsókn um íþróttastyrk
Mál 2404227 Allur ferill málsins
Fjölskyldunefnd felur stjórnanda íþrótta- og frístundamála að afla frekari gagna.
-
21. Umsókn um íþróttastyrk
Mál 2403049 Allur ferill málsins
Lögð fram drög að samningi við Golfklúbbs Byggðarholts um rekstrar- og uppbyggingarstyrk til þriggja ára. Fjölskyldunefnd samþykkir drögin fyrir sitt leyti og vísar til bæjarráðs til endanlegar afgreiðslu.
-
22. Umsókn um íþróttastyrk
Mál 2404236 Allur ferill málsins
Fjölskyldunefnd samþykkir að veita Kajakklúbbnum Kaj rekstrar- og uppbygginarstyrk til eins árs að upphæð 650.000kr.
-
23. Umsókn um íþróttastyrk
Mál 2404237 Allur ferill málsins
Fjölskyldunefnd felur stjórnanda íþrótta- og frístundamála að afla frekari gagna.
-
24. Umsókn um íþróttastyrk
Mál 2405002 Allur ferill málsins
Fjölskyldunefnd samþykkir styrkveitingu til UMF Hrafnkel Freysgoða að upphæð 532.450kr. Af þeim styrk er jöfnunarstyrkur að upphæð 260.057kr.
-
25. Umsókn unglingadeildar Gerpis að frístundastyrkjum Fjarðabyggðar
Mál 2405001 Allur ferill málsins
Fjölskyldunefnd samþykkir að unglingadeild Gerpis geti nýtt sér frístundastyrki Fjarðabyggðar.