Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFjölskyldunefnd

Fjölskyldunefnd, fundur 6

13. maí 2024, kl. 16:15 til 18:00, í Búðareyri 2 fundarherbergi 2. Fundargerð ritaði Laufey Þórðardóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Ragnar Sigurðsson, formaður
  • Birgir Jónsson, varaformaður
  • Jóhanna Sigfúsdóttir, aðalmaður
  • Pálína Margeirsdóttir, aðalmaður
  • Salóme Rut Harðardóttir, varamaður

Starfsmenn

  • Laufey Þórðardóttir, embættismaður
  • Anna Marín Þórarinsdóttir

Dagskrá

  1. 1. Starfs- og fjárhagsáætlun fjölskyldunefndar 2025

    Mál 2404222 Allur ferill málsins

    Farið yfir vinnu við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2025. Verið er að vinna að drögum að starfsáætlun fræðslumála.

  2. 2. Ársfjórðungsyfirlit fræðslumála

    Mál 2405033 Allur ferill málsins

    Farið yfir ársfjórðungs rekstrarniðurstöðu fræðslumála. Stjórnandi fræðslumála og skólaþjónustu fór yfir rekstur fyrstu þriggja mánaða ársins. Áfram er þörf á að gæta aðhalds innan málaflokksins.

  3. 3. Kynning á starfamessu til ungmennaráðs

    Mál 2405025 Allur ferill málsins

    Kynnt starfamessa Austurlands sem er kynning á fjölbreyttum störfum á Austurlandi. Starfamessan er unnin í samstarfi við Austurbrú og sveitarfélög á Austurlandi. Starfamessan verður haldin í haust.

  4. 4. Reglur um skólaakstur í grunnskólum Fjarðabyggðar

    Mál 2405019 Allur ferill málsins

    Fjölskyldunefnd felur stjórnanda skólaþjónustu og fræðslumála að uppfæra 7. gr. í samræmi við umræður á fundinum. Fjölskyldunefnd samþykkir reglurnar fyrir sitt leiti og vísar áfram til bæjarráðs til fullnaðarafgreiðslu.