Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 846

6. maí 2024, kl. 08:30 til 11:30, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Ragnar Sigurðsson, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 377 liður 1

    Fundargerðir bæjarráðs nr. 846, 847 og 848 teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman. Þórdís Mjöll Benediktsdóttir vakti athygli á vanhæfi sínu varðandi lið 1 í fundargerð 847 og lið 23 í fundargerð 848 og voru þeir liðir því bornir upp sérstaklega.

    Til máls tóku: Ragnar Sigurðsson og Stefán Þór Eysteinsson.

    Fundargerðir bæjarráðs nr.846, 847 og 848 utan liðar 1 í fundargerð 847 og liðar 23 í fundargerð 848, eru samþykktar með 9 atkvæðum

Dagskrá

  1. 1. Breiðablik

    Mál 2212006 Allur ferill málsins

    Farið yfir málefni Breiðabliks á Norðfirði og skilgreiningu þjónustu.

    Bæjarráð ítrekar að ekki er verið að draga úr þjónustu og áfram verður veitt helgarþjónusta í Breiðabliki eftir þjónustuþörf. Sú þjónustuþörf getur verið meiri eða minni eftir atvikum.

  2. 2. Starfshópur fræðslumála 2023

    Mál 2309181 Allur ferill málsins

    Farið yfir vinnu í fræðslumálum.

  3. 3. Starfs- og fjárhagsáætlun bæjarráðs 2025

    Mál 2404224 Allur ferill málsins

    Farið yfir vinnu við fjárhagsáætlun ársins 2025.

  4. 4. Ofanflóðavarnir Nes- og Bakkagil Norðfjörður

    Mál 2009034 Allur ferill málsins

    Framlögð tvö tilboð í gerð ofanflóðamannvirkja við Nes- og Bakkagil á Norðfirði. Lagt er til að tekið verði tilboði Reinforced Earth Company í grindur í styrkingakerfi og Héraðsverks í gerð 20 keilna og þvergarðs.

    Bæjarráð samþykkir töku tilboðanna og felur bæjarstjóra undirritun verksamninga. Bæjarráð fagnar því að framkvæmdirnar séu að fara að hefjast.

  5. 5. Málefni Sköpunarmiðstöðvar

    Mál 2404200 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi Sköpunarmiðstöðvarinnar vegna skipulagsskrár félagsins og skipan stjórnar.

    Bæjarráð felur bæjarstjóra og bæjarritara að ræða við forsvarsmenn Sköpunarmiðstöðvarinnar. Tekið fyrir að nýju í bæjarráði.

  6. 6. Kvörtun vegna stjórnsýslu sveitarfélags

    Mál 2405006 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi innviðaráðuneytisins vegna erindis um stjórnsýslu sveitarfélagsins Fjarðabyggðar. Ráðuneytið óskar eftir gögnum og umsögnum um stjórnsýslu sveitarfélagsins á grundvelli 112. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 128/2011 varðandi aðdraganda og meðferð málsins.

    Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara erindi ráðuneytisins.

  7. 7. Ársfundur Náttúruhamfaratryggingar Íslands 16.maí

    Mál 2405009 Allur ferill málsins

    Framlagt boð á ársfund Náttúruhamfaratrygginga sem haldinn verður 16. maí nk. Fundurinn er í boði á streymi.

  8. 8. Auglýsingasamningur við KFA 2024 - 2026

    Mál 2404225 Allur ferill málsins

    Framlögð drög að endurnýjuðum auglýsingasamning við Knattspyrnufélag Austfjarða (KFA) fyrir árin 2024 - 2026.

    Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra undirritun hans.

  9. 9. Ársskýrsla Náttúrustofu Austurlands 2024

    Mál 2405007 Allur ferill málsins

    Framlagður ársreikningur 2023 fyrir Náttúrustofu Austurlands til kynningar.

  10. 10. Umsögn stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga mál nr. 899 og 900

    Mál 2405014 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar umsögn Samtaka orkusveitarfélaga um þingmál 899 og 900.

  11. 11. Fundargerðir stjórnar Sambands Íslenskra sveitarfélaga 2024

    Mál 2401142 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar fundargerð 947. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga

  12. 12. Evrópuverkefnið NATALIE

    Mál 2405011 Allur ferill málsins

    Kynning á verkefningu NATALIE þar sem er unnið að nýrri nálgun á náttúrumiðuðum aðferðum, NBS (e. Nature-based solutions) til að sporna við áhrifum verðurröskunar af völdum loftlagsbreytinga.

    Bæjarráð samþykkir að tekið verði þátt í vinnustofum tengdum verkefninu.