Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 844

22. apríl 2024, kl. 08:30 til 11:00, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Ragnar Sigurðsson, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 376 liður 3

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð bæjarráðs frá 22. apríl staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Samningur Norðfjarðarflugvöll - árleg yfirferð

    Mál 2403184 Allur ferill málsins

    Fjallað um rekstur Norðfjarðarflugvallar og samstarf Isavia og Fjarðabyggðar um rekstur hans.

    Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að fylgja eftir samkomulagi við Isavia um rekstur Norðfjarðarflugvallar svo hann þjóni hlutverki sínu sem sjúkraflugvöllur áfram. Tæplega eitt hundrað sjúkraflug fóru um flugvöllin á síðasta ári.

  2. 2. Úrsögn úr undirkjörstjórn á Reyðarfirði

    Mál 2402258 Allur ferill málsins

    Skipan fulltrúa i undirkjörstjórn á Reyðarfirði í stað Aðalheiðar Vilbergsdóttur sem sagði sig úr stjórninni og sem formaður.

    Bæjarráð samþykkir að skipa Láru Björnsdóttur sem aðalmann og Andrea Borgþórsdóttir tekur við formennsku. Vísað til bæjarstjórnar.

  3. 3. Landsmót Harmonikkuunnenda sumar 2025

    Mál 2404142 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi Félags harmonikkuunnenda þar sem kynnt er áform um að Landsmót Harmonikkuunnenda sumar 2025 verði haldið í íþróttahúsinu á Reyðarfirði. Óskað er eftir styrk til mótshaldsins.

    Bæjarráð tekur vel í beiðni félagsins og leggur fram íþróttahúsið sem mótstað og felur upplýsingfulltrúa að vera í samskiptum við félagið um útfærslu þegar nær líður viðburði.

  4. 4. Uppbygging hleðsluinnviða í Fjarðabyggð

    Mál 2404123 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf frá Orku Náttúrunnar um uppbyggingu hleðsluinnviða.

    Bæjarráð felur bæjarstjóra ásamt sviðsstjóra skipulags- og framkvæmdasviðs að ræða við fulltrúa félagsins.

    Vísað til skipulags- og framkvæmdanefndar.

  5. 5. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Brekkugerði 18

    Mál 2404001 Allur ferill málsins

    Skipulags- og framkvæmdanefnd leggur til stækkun lóðarinnar Brekkugerði um 15 metra til austurs.

    Bæjarráð samþykkir stækkun lóðarinnar.

  6. 6. Breiðablik þjónustuíbúðir aldraðra - ástand húsnæðis

    Mál 2207125 Allur ferill málsins

    Framlögð tillaga að svari til HAUST vegna Breiðabliks.

    Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti drög að svari og felur sviðsstjóra skipulags- og framkvæmdasviðs að svara heilbrigðiseftirliti á grundvelli umræðna á fundinum ásamt því að funda með íbúum í Breiðabliki. Svarinu jafnframt vísað til starfshóps um nýtingu fasteigna í eigu Fjarðabyggðar.

  7. 7. Slökkvilið Fjarðabyggðar - málefni

    Mál 2305266 Allur ferill málsins

    Farið yfir málefni slökkviliðs.

  8. 8. Aðalfundur Sparisjóðs Austurlands hf. 2024

    Mál 2404122 Allur ferill málsins

    Framlagt aðalfundarboð Sparisjóðs Austurlands hf. fyrir árið 2024 en fundurinn verður haldinn 30. apríl nk. kl. 14:00.

    Bæjarráð samþykkir að fela Jónu Árnýju Þórðardóttur bæjarstjóra að fara með umboð Fjarðabyggðar á aðalfundinn.

  9. 9. Umsóknir í Framkvæmdasjóð Ferðamannastaða 2024

    Mál 2308105 Allur ferill málsins

    Framlagt yfirlit yfir stöðu verkefna vegna áfangastaða ferðamanna.

  10. 10. Ofanflóðavarnir Nes- og Bakkagil Norðfjörður

    Mál 2009034 Allur ferill málsins

    Kynntar niðurstöður útboðs ofanflóðavarna í Nes- og Bakkagiljum.

    Bæjarráð lýsir ánægju sinni með niðurstöður útboðsins og að framkvæmdir geti hafist og leggur áherslu á að þær hefjist með vorinu.

  11. 11. Hringferð Neytandasamtakanna

    Mál 2404109 Allur ferill málsins

    Neytendasamtökin er á hringferð um landið og óska fundar með bæjarfulltrúm miðvikudag 8. maí.

    Bæjarráð samþykkir að funda með samtökunum.

  12. 12. Umsögn stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga um vindorkuskýrsluna

    Mál 2305139 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar umsögn Samtaka orkusveitarfélaga um áform um breytingar á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun.

  13. 13. Stjórnsýslukæra

    Mál 2307081 Allur ferill málsins

    Framlagður til kynningar úrskurður innviðaráðuneytisins vegna kæru landeiganda Óseyrar í Stöðvarfirði vegna ágangs sauðfjár.

  14. 14. Til umsagnar 900.mál

    Mál 2404161 Allur ferill málsins

    Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um verndar- og orkunýtingaráætlun (virkjunarkostir í vindorku), 900. mál.

    Bæjarstjóra falið að útbúa drög að umsögn og leggja fyrir bæjarráð að nýju.

  15. 15. Til umsagnar 899.mál

    Mál 2404162 Allur ferill málsins

    Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar tillögu til þingsályktunar um stefnu stjórnvalda um uppbyggingu vindorku á Íslandi, 899. mál.

    Bæjarstjóra falið að útbúa drög að umsögn og leggja fyrir bæjarráð að nýju.

  16. 16. Fundargerðir Austurbrúar og SSA

    Mál 2311224 Allur ferill málsins

    Fundargerð 148. og 149. fundar stjórnar Austurbrúar lögð fram til kynningar

  17. 17. Fundargerðir Austurbrúar og SSA

    Mál 2311224 Allur ferill málsins

    Fundargerð 19. og 20. fundar stjórnar SSA lögð fram til kynningar

  18. 18. Fjölskyldunefnd - 3

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð fjölskyldunefndar frá 15. apríl tekin til umfjöllunar og afgreiðslu.

    1. 18.1 Aðstoðuleysi í Oddskarði2403229
    2. 18.2 Beiðni um styrk til reksturs Bjarmahlíðar2404038
    3. 18.3 Landshlutafundur2404090
    4. 18.4 Einangrun og kynding í Fjarðabyggðarhöllina2403230
    5. 18.5 Reglur Fjarðabyggðar um þjónustuíbúðir fyrir eldra fólk2404011
    6. 18.6 Kuldaboli 20242404072
    7. 18.7 Fundaáætlun fjölskyldunefnd vor 20242404071
  19. 19. Skipulags- og framkvæmdanefnd - 7

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 17. apríl tekin til umfjöllunar og afgreiðslu.

    1. 19.1 Lóðarmál við Hjallaleiru 13 til 192303218
    2. 19.2 Mógerði 1 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2404135
    3. 19.3 Bakkabakki 2b - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2404086
    4. 19.4 Brekkugata 4 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2403188
    5. 19.5 Bakkavegur 5 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2402155
    6. 19.6 Austurvegur 4 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2404075
    7. 19.7 Svarthamrar - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2404002
    8. 19.8 Sæbakki 17 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2402175
    9. 19.9 Breyting á deiliskipulagi Miðbæjar Reyðarfirði2402273
    10. 19.10 Aðalskipulag óverulegbreyting á aðalskipulagi Stöðvarfjörður tjaldsvæði2403082
    11. 19.11 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Brekkugerði 182404001
    12. 19.12 Samningur við Skógræktarfélag Reyðarfjarðar2302213
    13. 19.13 Breyting á samþykkt um fiðurfé2404096
    14. 19.14 Drög að breytingum á reglum um stöðuleyfi lausafjármuna2402159
    15. 19.15 Óskum eftir að fá að setja bekk við Barkinn á Reyðarfirði2404108
    16. 19.16 IMaR 2024 ráðstefnan2404097
    17. 19.17 Umsagnarbeiðni um stækkun á athafna- og hafnasvæði Djúpavogs2403204
    18. 19.18 Saman gegn sóun - tækifæri til að hafa áhrif á nýja stefnu um úrgangsforvarnir2403283
    19. 19.19 Vor í Fjarðabyggð - bæklingur2404083
  20. 20. Starfshópur um nýtingu mannvirkja í rekstri Fjarðabyggðar - 1

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð starfshóps um nýtingu mannvirkja í eigu Fjarðabyggðar frá 16. apríl lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

    Bæjarráð staðfestir fundargerðina og vísar henni til kynningar í fjölskyldunefnd og skipulags- og framkvæmdanefnd.