Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 843

15. apríl 2024, kl. 08:30 til 12:00, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Ragnar Sigurðsson, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 376 liður 2

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tóku: Ragnar Sigurðsson, Stefán Þór Eysteinsson, Jón Björn Hákonarson, Þuríður Lillý Sigurðardóttir, Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir.

    Fundargerð bæjarráðs frá 15. apríl staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Rekstur málaflokka 2024

    Mál 2403158 Allur ferill málsins

    Lagt fram yfirlit fjármálastjóra um rekstur og fjárfestingar fyrir janúar - febrúar auk yfirlits yfir launakostnað og skattekjur fyrir janúar - mars 2024.

  2. 2. Tilboð í tjaldstæði Fjarðabyggðar

    Mál 2402279 Allur ferill málsins

    Lagðir fram samningar við Ferðaþjónustuna Fossárdal ehf. um kaup á 4 tjaldsvæðum og leigu á 2 tjaldsvæðum í Fjarðabyggð.

    Bæjarráð samþykkir samningana og felur bæjarstjóra undirritun þeirra.

  3. 3. Umsókn um stofnframlög á árinu 2024

    Mál 2403005 Allur ferill málsins

    Húsnæðis- og mannvirkjastofnun fer fram á staðfestingu Fjarðabyggðar á stofnframlagi sveitarfélagsins vegna tveggja umsókna um stofnframlög til íbúðaverkefna á Reyðarfirði og Eskifirði.

    Bæjarráð staðfestir úthlutun á stofnframlögum til verkefnanna. Vísað til gerðar viðauka þegar fjárhæðir liggja fyrir.

  4. 4. Ársfundur Lífeyrissjóðs Stapa 2.maí 2024

    Mál 2404065 Allur ferill málsins

    Framlagt boð á aðalfund Stapa lífeyrissjóðs sem haldinn verður 2. maí nk. á Akureyri. Tilnefna þarf fulltrúa Fjarðabyggðar í fulltrúaráð.

    Bæjarráð felur fjármálastjóra að mæta fyrir hönd Fjarðabyggðar og er jafnframt tilnefndur til setu í fulltrúaráði.

  5. 5. Beiðni um uppsetningu hraðhleðslustöðva

    Mál 2310034 Allur ferill málsins

    Framlögð drög að samningum um uppsetningu hraðhleðslustöðva í Fjarðabyggð.

    Bæjarráð samþykkir samninga um rafhleðslustöðvar og felur bæjarstjóra undirritun þeirra.

  6. 6. Málefni Auturbrúar - Eyglóarverkefni

    Mál 2404059 Allur ferill málsins

    Kynning á starfsemi Austurbrúar og Eyglóarverkefninu sem er samstarfsverkefni sveitarfélaganna á Austurlandi, Umhverfis-, orku- og loftlagsráðuneytis, Landsvirkjunar og Austurbrúar.

  7. 7. Samtal um nátturustofu

    Mál 2404060 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis sem boðar til fundar um málefni náttúrustofa 22. maí.

    Bæjarráð samþykkir að bæjarráð ásamt bæjarstjóra mæti á fundinn.

  8. 8. Aðstoðuleysi í Oddskarði

    Mál 2403229 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf frá stjórn Brettafélags Fjarðabyggðar um aðstöðu til íþróttaiðkunar fyrir börn í Oddskarði.

    Bæjarráð felur formanni bæjarráðs að ræða við forsvarsmenn félagsins og stjórnanda íþrótta- og frístundamála.

  9. 9. Skólafrístund

    Mál 2404044 Allur ferill málsins

    Minnisblað um tilhögun yfirfærslu frístundar grunnskólabarna lagt fram til samþykktar.

    Bæjarráð samþykkir tillögur í minnisblaði og vísar erindi til fjölskyldunefndar til frekari úrvinnslu.

  10. 10. Verkefnið Sterkur Stöðvarfjörður

    Mál 2211108 Allur ferill málsins

    Skipun fulltrúa frá Fjarðabyggð í verkefnastjórn Sterks Stöðvarfjarðar, Brothættar byggðir.

    Bæjarráð samþykkir að fela Haraldi L. Haraldssyni upplýsingafulltrúa að taka sæti í verkefnastjórninni.

  11. 11. Þjóðlendumál kröfur óbyggðanefndar eyjar og sker

    Mál 2402163 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi Óbyggðanefndar vegna endurskoðunar fjármála- og efnahagsráðherra á kröfum um þjóðlendur.

    Framlagt og kynnt.

  12. 12. Fjölskyldunefnd - 2

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð fjölskyldunefndar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

    1. 12.1 Skólafrístund2404044
    2. 12.2 Fjölþætt heilsuefling fyrir eldri aldurshópa2004159
    3. 12.3 Gott að eldast-samþætting þjónustu Fjarðabyggð og HSA2306119
    4. 12.4 Erindisbréf fjölskyldunefndar2312054
    5. 12.5 Búsetukjarni og skammtímavistun2301106
  13. 13. Stjórn menningarstofu - 3

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð stjórnar menningarstofu frá 8. apríl lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

    1. 13.1 Umsókn um leigu ( Skrúður )
    2. 13.2 Styrktarsjóður EBÍ 2024
    3. 13.3 80 ára afmæli lýðveldisins
    4. 13.4 Framtíð Íslenska Stríðsárasafnsins
    5. 13.5 Starfsemi og þjónusta safna Fjarðabyggðar sumarið 2024
    6. 13.6 Verkefni menningarstofu 2024
    7. 13.7 17. júní 2024