Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFjölskyldunefnd

Fjölskyldunefnd, fundur 2

8. apríl 2024, kl. 16:15 til 18:00, í Búðareyri 2 fundarherbergi 2. Fundargerð ritaði Laufey Þórðardóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)

Fundinn sátu

  • Ragnar Sigurðsson, formaður
  • Birgir Jónsson, varaformaður
  • Jóhanna Sigfúsdóttir, aðalmaður
  • Pálína Margeirsdóttir, aðalmaður
  • Birta Sæmundsdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Laufey Þórðardóttir, embættismaður
  • Aðalheiður Björk Rúnarsdóttir
  • Magnús Árni Gunnarsson

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 843 liður 12

    Fundargerð fjölskyldunefndar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 376 liður 5

    Fundargerðir fjölskyldunefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð fjölskyldunefndar frá 5. apríl staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Skólafrístund

    Mál 2404044 Allur ferill málsins

    Sviðstjóra falið að uppfæra minnisblað í samræmi við ákvörðun nefndarinnar. Samþykkt að halda áfram yfirfærslu skólafrístundar barna til íþrótta- og tómstundarmála. Haldið verður áfram í næsta áfanga í Neskaupstað í haust.

  2. 2. Fjölþætt heilsuefling fyrir eldri aldurshópa

    Mál 2004159 Allur ferill málsins

    Verkefnið heilsuefling eldri borgara kynnt fyrir fjölskyldunefnd.

  3. 3. Gott að eldast-samþætting þjónustu Fjarðabyggð og HSA

    Mál 2306119 Allur ferill málsins

    Verkefnið Gott að eldast kynnt fyrir fjölskyldunefnd. Farið yfir stöðu verkefnisins og viðræður við HSA um samþættingu þjónustu við eldri borgara.

  4. 4. Erindisbréf fjölskyldunefndar

    Mál 2312054 Allur ferill málsins

    Farið var yfir erindisbréf Fjölskyldunefndar. Samþykkt að uppfæra erindisbréfið með tilliti til athugasemda sem gerðar voru á fundinum. Málið tekið fyrir að nýju.

  5. 5. Búsetukjarni og skammtímavistun

    Mál 2301106 Allur ferill málsins

    Byggingu nýs búsetukjarna kynnt fyrir fjölskyldunefnd.

  6. 6. Sískráningar til Barnarverndarstofu og árleg skýrsla

    Mál 2003044 Allur ferill málsins

    Sískráning barnaverndar kynnt fyrir fjölskyldunefnd.