Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFjölskyldunefnd

Fjölskyldunefnd, fundur 1

4. apríl 2024, kl. 16:15 til 18:50, að Búðareyri 2, fundarherbergi 1. Fundargerð ritaði Laufey Þórðardóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Ragnar Sigurðsson, formaður
  • Jóhanna Sigfúsdóttir, aðalmaður
  • Pálína Margeirsdóttir, aðalmaður
  • Birta Sæmundsdóttir, aðalmaður
  • Helga Rakel Arnardóttir, varamaður

Starfsmenn

  • Laufey Þórðardóttir, embættismaður
  • Anna Marín Þórarinsdóttir

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 842 liður 8

    Fundargerð fjölskyldunefndar frá 4. apríl tekin til umfjöllunar og afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 375 liður 4

    Til máls tók Jóhanna Sigfúsdóttir.

    Fundargerð fjölskyldunefndar frá 4. apríl staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Reglur Fjarðabyggðar um þjónustuíbúðir fyrir eldra fólk

    Mál 2404011 Allur ferill málsins

    Lagðar eru fram tillögur að breyttum reglum Fjarðabyggðar um þjónustuíbúðir fyrir eldra fólk. Fjölskyldunefnd samþykkir framlagðar tillögur og vísar áfram til bæjarráðs.

  2. 2. Starfshópur fræðslumála 2023

    Mál 2309181 Allur ferill málsins

    Erindisbréf starfshóps í fræðslumálum og starf hópsins og ákvörðun um breytingar kynntar fyrir nýrri fjölskyldunefnd.

  3. 3. Kennslutímamagn grunnskóla Fjarðabyggðar 2024-2025

    Mál 2403289 Allur ferill málsins

    Kynntar voru hugmyndir um breytingar á reglum um kennslutímaúthlutun til grunnskóla. Nefndarfólk var sammála um að vanda til verka. Frekari umræðu frestað til næsta fundar.

  4. 4. Skólavogin_foreldrakönnun leik- og grunnskóla 2024

    Mál 2403211 Allur ferill málsins

    Farið var yfir niðurstöður úr foreldrakönnunum Skólavoginnar í leik- og grunnskólum. Niðurstöðurnar nýtast sem innra mat í grunnskólum Fjarðabyggðar og til úrbóta í skólastarfi. Helstu niðurstöður eru birtar á heimasíðum skólanna og/eða í innra matsskýrslum skólanna. Jafnframt verða þær kynntar foreldrum, starfsfólki skóla og skólaráði. Fjölskyldunefnd mun kalla eftir tillögum til úrbóta.

  5. 5. Skóladagatöl 2024-2025

    Mál 2403150 Allur ferill málsins

    Fjölskyldunefnd fór yfir verklagsreglur um staðfestingu skóladagatala. Fyrir liggja skóladagatöl leik-, grunn- og tónlistarskóla í Fjarðabyggð fyrir skólaárið 2024-2025. Stjórnandi fræðslumála og skólaþjónustu gerði grein fyrir verklagsreglum um staðfestingu skóladagatala en þar er kveðið á um sameiginlega skólabyrjun grunnskólanna, sumarlokun leikskólanna og einn sameiginlegan starfsdag skólanna. Þá eru flestir skipulagsdagar leikskóla settir á daga sem ekki eru nemendadagar í grunnskóla en gefið var leyfi fyrir að þeir tækju tvo samliggjandi starfsdaga í byrjun október vegna námskeið. Fjölskyldunefnd samþykkir fyrirliggjandi skóladagatöl.

  6. 6. Starfshópur um nýtingu mannvirkja

    Mál 2403217 Allur ferill málsins

    Vísað frá bæjarráði til afgreiðslu fjölskyldunefndar skipan einn fulltrúa í starfshóp um nýtingu mannvirkja í rekstri Fjarðabyggðar. Fjölskyldunefnd tilnefnir Jóhönnu Sigfúsdóttur í starfshópinn.

  7. 7. Til umsagnar 143. mál. Málefni aldraðra

    Mál 2403232 Allur ferill málsins

    Fjölskyldunefnd fagnar þessum tillögum að breytingum og telur þær til bóta.

  8. 7. Norrænnamót heyrnarlausra 2025-2026, ósk um styrk

    Mál 2403050 Allur ferill málsins

    Vísað frá bæjarráði til fjölskyldunefndar erindi Félags heyrnarlausra sem leitar bakhjarla/stuðnings fyrirtækja ofl. til að halda Norrænt mót fyrir döff eldri borgara árið 2025 og Norrænt menningarmót heyrnarlausra 2026. Óskað er eftir fjárhagsstuðning. Fjölskyldunefnd getur því miður ekki styrkt þetta verðuga málefni að þessu sinni.