Stjórn menningarstofu, fundur 4
22. apríl 2024, kl. 15:30 til 17:00, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Jón Björn Hákonarson, formaður
- Guðbjörg Sandra Óðinsd. Hjelm, varaformaður
- Arndís Bára Pétursdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Jóhann Ágúst Jóhannsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 845 liður 22
Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð stjórnar menningarstofu frá 22. apríl.
Bæjarstjórn, fundur 376 liður 11
Fundargerðir stjórnar menningarstofu teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð stjórnar menningarstofu frá 22. apríl staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar menningarstofu- og safnastofnunar 2024
Mál 2305067 Allur ferill málsins
Farið yfir rekstur fyrstu þrjá mánuði ársins 2024.
Rekstur málaflokksins er innan marka utan kostnaðar sem tengist stjórnkerfisbreytingum og á eftir að leiðrétta.
-
2. Starfsemi og þjónusta safna Fjarðabyggðar sumarið 2024
Mál 2402237 Allur ferill málsins
Vísað frá síðasta fundi stjórnar. Farið yfir stöðu í skipulagningu á rekstri minjasafna 2024. Unnið er að undirbúningi opnunar sumarsýninga safnanna hjá sveitarfélaginu. Stjórn Menningarstofu mun ræða safnamál sveitarfélagsins áfram á næstu fundum sínum.
-
3. Framlag til reksturs 2024
Mál 2404154 Allur ferill málsins
Framlagt erindi frá Sköpunarmiðstöðinni um framkvæmdir 2023 og áætlanir fyrir árið 2024. Óskað er eftir framlagi til framkvæmda og verkefna líkt og síðasta ár.
Stjórnin samþykkir að veita styrk til samræmis við fjárhagsáætlun ársins 2024 til endurgerðar á húsnæði miðstöðvarinnar.
-
4. Sómastaðir, samningur um umsjón húss.
Mál 2404171 Allur ferill málsins
Framlagður tölvupóstur Þjóðminjasafns um umsjón með húsinu að Sómastöðum í Reyðarfirði.
Stjórnin þakkar gott boð en getur því miður ekki tekið að sér umsjón með húsnæðinu.