Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 311

26. apríl 2024, kl. 12:00 til 12:50, í fjarfundi. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Heimir Snær Gylfason, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Bryngeir Ágúst Margeirsson, aðalmaður
  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, aðalmaður
  • Einar Hafþór Heiðarsson, varamaður

Starfsmenn

  • Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður
  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 845 liður 26

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 26. apríl tekin til umfjöllunar og afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 376 liður 13

    Fundargerðir hafnarstjórnar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 26. apríl staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Þjónustusamningur um Vött

    Mál 2404205 Allur ferill málsins

    Lögð fram drög að þjónustusamningi um Vött. Hafnarstjórn samþykkir samninginn með breytingum í samræmi við umræður á fundinum og felur hafnarstjóra frágang og undirritun hans ásamt frágangi í tengslum við breytingar á starfsemi innan hafnanna sem af honum leiðir. Um er að ræða tilraunaverkefni til tveggja ára og metinn verður árangur að þeim liðnum. Er það von hafnarstjórnar að þetta muni efla starfsemi hafnanna til lengri tíma litið.

  2. 2. Bakvaktafyrirkomulag Fjarðabyggðarhafna

    Mál 2404206 Allur ferill málsins

    Lagðar fram tillögur að breyttu bakvaktafyrirkomulagi fyrir Fjarðabyggðarhafnir. Hafnarstjórn samþykkir framlagðar tillögur að bakvaktafyrirkomulagi og felur hafnarstjóra að eiga samráð við starfsmenn um breytingar á bakvaktafyrirkomulagi.