Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirSkipulags- og framkvæmdanefnd

Skipulags- og framkvæmdanefnd, fundur 9

8. maí 2024, kl. 16:00 til 18:15, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Svanur Freyr Árnason.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, formaður
  • Kristinn Þór Jónasson, varaformaður
  • Elís Pétur Elísson, aðalmaður
  • Benedikt Jónsson, varamaður
  • Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Svanur Freyr Árnason, embættismaður
  • Aron Leví Beck Rúnarsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 848 liður 22

    Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 8. maí sl.

  • Bæjarstjórn, fundur 377 liður 6

    Fundargerð 9. fundar skipulags- og framkvæmdanefndar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

    Til máls tóku: Þuríður Lillý Sigurðardóttir.

    Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar nr. 9 er samþykkt með 9 atkvæðum

Dagskrá

  1. 1. Skipulag úrgangsmála 2024 í Fjarðabyggð

    Mál 2404177 Allur ferill málsins

    Lagðar fram tillögur og minnisblað frá sprettfundi um úrgangsmál 24.4. 2024 auk minnisblaðs um viðræður við forsvarsmenn Kubbs. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar kynninguna.

  2. 2. Æðavarp í landi Fjarðabyggðar

    Mál 2402161 Allur ferill málsins

    Vísað frá bæjarráði til skipulags- og framkvæmdanefndar áframhaldandi vinnslu á útfærslu á æðavarpi í landi Kollaleiru. Bæjarráð samþykkti á fundi sínum 15. maí 2023 að landsvæðið fyrir æðavarp í Kollaleirulandi verði ekki boðið út heldur verði landsvæðið sem almennt land í eigu Fjarðabyggðar án heimilda til nota af neinu tagi og sé opið almenningi. Skipulags- og framkvæmdanefnd stendur við fyrri ákvörðun um að friðlýsa æðavarpi í landi Kollaleiru og bjóða nytjar þess út í kjölfar friðlýsingar.

  3. 3. Breyting á samþykkt um fiðurfé

    Mál 2404096 Allur ferill málsins

    Vísað frá bæjarráði til skipulags- og framkvæmdanefndar að nýju til áframhaldandi vinnu og útfærslu. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir drög að breytingum á samþykkt um fiðurfé og vísar erindinu í bæjarráð.

  4. 4. Hlíðargata 7-9 - 750 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

    Mál 2403177 Allur ferill málsins

    Hlíðargata 7-9 - Niðurstaða grenndarkynningar kynnt. Engar athugasemdir bárust. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrir sitt leyti byggingaráformin og felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað. Málinu er vísað til afgreiðslu í bæjarstjórn.

  5. 5. Austurvegur 4 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

    Mál 2404075 Allur ferill málsins

    Austurvegur 4 - Niðurstaða grenndarkynningar kynnt. Grenndarkynning samþykkt með undirskriftum. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað. Erindinu er vísað til afgreiðslu í bæjarstjórn.

  6. 6. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Skólavegur 85a

    Mál 2405013 Allur ferill málsins

    Óskað eftir stækkun á lóð að Skólavegi 85a. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrir sitt leiti stækkun lóðarinnar í samræmi við lóðarblað og vísar erindinu til bæjarráðs.

  7. 7. Bakkabakki 2b - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

    Mál 2404086 Allur ferill málsins

    Óskað eftir stækkun á lóð að Bakkabakka 2b. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrir sitt leiti breytingar á lóðamörkum Bakkabakka 2b og Nesgötu 40 í samræmi við tillögu frá umsækjanda. Nefndin vísar erindinu í bæjarráð.

  8. 8. Egilsbraut 22 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

    Mál 2404156 Allur ferill málsins

    Egilsbraut 22 - Niðurstaða grenndarkynningar kynnt. Grenndarkynning samþykkt með undirskriftum. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað. Erindinu er vísað til afgreiðslu í bæjarstjórn.

  9. 9. Viðhald og nýframkvæmdir gatna Fjarðabyggð 2024

    Mál 2404016 Allur ferill málsins

    Lögð fram að nýju áætlun vegna viðhalds og framkvæmda gatna Fjarðabyggðar 2024. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir drög að áætlun um viðhald og framkvæmdir gatna fyrir árið 2024.

  10. 10. Framkvæmdaleyfi Efnistaka við Breiðdalsá

    Mál 2404203 Allur ferill málsins

    Umsókn Vegagerðarinar um framkvæmdaleyfi fyrir efnistöku við Breiðdalsá. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.

  11. 11. Starfs- og fjárhagsáætlun skipulags - og framkvæmdanefndar 2025

    Mál 2404221 Allur ferill málsins

    Farið yfir fyrirhugaða vinnu við gerð fjárhagsáætlunar 2025.Teknar verða fyrir starfsáætlanir málaflokka skipulags- og framkvæmdanefndar á næstu fundum nefndarinnar. Sviðstjóra og stjórnendum málaflokka falið að vinna drög að starfsáætlun.

  12. 12. Uppbygging hleðsluinnviða í Fjarðabyggð

    Mál 2404123 Allur ferill málsins

    Vísað frá bæjarráði til umfjöllunar í skipulags- og framkvæmdanefnd bréfi frá Orku náttúrunnar um uppbyggingu hleðsluinnviða. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur sviðsstjóra að ræða við forsvarsmenn Orku náttúrunnar.

  13. 13. Fiskeldissjóður - umsóknir 2024

    Mál 2308085 Allur ferill málsins

    Framlögð niðurstaða Fiskeldissjóðs um úthlutun framlaga til verkefna sem Fjarðabyggð sótti um á árinu 2024. Stjórn fiskeldisjóðs hefur úthlutað 437,2 milljónum kr til sextán verkefna í sjö sveitarfélögum. Af því var úthlutað til Fjarðabyggðar 151.840.000 kr. til fjögurra verkefna. Fráveita á Breiðdalsvík, seinni hluti, hreinsivirki, samtals úthlutað 26.494.000 kr. Kaup á slökkvibifreið, Fjarðabyggð, samtals úthlutað 44.452.000 kr. Leikskólinn Dalborg, Eskifirði, innanhúsfrágangur, samtals úthlutað 40.447.000 kr. Lenging Strandabryggju, Fáskrúðsfirði samtals úthlutað 40.447.000 kr. Skiulags- og framkvæmdanefnd þakkar kynninguna og samþykkir tillögu að afgreiðslu á fjárhæðum samkvæmt minnisblaði.

  14. 14. Umsóknir í Framkvæmdasjóð Ferðamannastaða 2024

    Mál 2308105 Allur ferill málsins

    Vísað frá bæjarráði til skipulags- og framkvmdanefndar niðurstöðu í úthlutun úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða en Fjarðabyggð fékk úthlutað í verkefnin Bleiksársfoss, hönnun kr. 2.460.080 og Streitishvarf, göngustígar kr. 25.000.000. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar kynninguna og felur sviðsstjóra að vinna málið áfram.

  15. 15. Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Austurlands 2024

    Mál 2404185 Allur ferill málsins

    Fundargerð 178. fundar Heilbrigðisnefnd Austurlands. Skipulags- og framkvæmdarnefnd þakkar kynninguna.

  16. 16. Fundaáætlun skipulags- og framkvæmdanefndar vor 2024

    Mál 2401189 Allur ferill málsins

    Fundaáætlun skipulags- og framkvæmdanefnd 2024 lögð fram. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir framlagða fundaráætlun.

  17. 17. Uppsetning á póstboxi á Stöðvarfirði

    Mál 2404082 Allur ferill málsins

    Tillaga að staðsetningu fyrir póstbox á Stöðvarfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir tillögu að staðsetningu fyrir sitt leyti.

  18. 18. Breiðimelur 1-3-5-7-9 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

    Mál 2405031 Allur ferill málsins

    Breiðimelur 1-3-5-7-9 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulagsfulltrúa að grenndarkynna byggingaráformin.