Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 848

13. maí 2024, kl. 08:30 til 00:00, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Ragnar Sigurðsson, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 377 liður 3

    Fundargerðir bæjarráðs nr. 846, 847 og 848 teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman. Þórdís Mjöll Benediktsdóttir vakti athygli á vanhæfi sínu varðandi lið 1 í fundargerð 847 og lið 23 í fundargerð 848 og voru þeir liðir því bornir upp sérstaklega.

    Til máls tóku: Ragnar Sigurðsson og Stefán Þór Eysteinsson.

    Fundargerðir bæjarráðs nr.846, 847 og 848 utan liðar 1 í fundargerð 847 og liðar 23 í fundargerð 848, eru samþykktar með 9 atkvæðum

Dagskrá

  1. 1. Málefni framkvæmdasviðs

    Mál 2306013 Allur ferill málsins

    Farið yfir málefni og verkefni skipulags- og framkvæmdasviðs og þjónustu- og framkvæmdamiðstöðvar fyrir sumarið 2024.

  2. 2. Rekstur málaflokka 2024

    Mál 2403158 Allur ferill málsins

    Lagt fram yfirlit fjármálastjóra um rekstur og fjárfestingar fyrir janúar - mars, launakostnað og skattekjur fyrir janúar - apríl 2024 auk rekstraryfirlits samstæðu og A hluta fyrir janúar - mars 2024

  3. 3. Fjárhagsáætlun 2024 - viðauki 1

    Mál 2404165 Allur ferill málsins

    Lagður fram viðauki við fjárhagsáætlun 2024 vegna samningns um almenningssamgöngur, breytinga á fyrirkomulagi reksturs um málefni fatlaðs fólks vegna slita byggðasamlags Skólaskrifstofu Austurlands, afborgana lána, endurbóta á skólahúsnæði Grunnskóla Eskifjarðar auk áhrifa vegna framlaga frá Fiskeldissjóði. Viðaukinn hefur þau áhrif að áætlað er að sjóðsstaða samstæðu Fjarðabyggðar batnar um 115 m.kr. Rekstrarniðurstaða A-hluta batnar um 58,9 m.kr. og er því jákvæð um 198,2 m.kr. og rekstrarniðurstaða B-hluta batnar um 56,7 m.kr. og er því áætluð jákvæð um 609 m.kr. Áætlað er að handbært fé í árslok nemi 356 m.kr.

    Viðauka vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.

  4. 4. Starfs- og fjárhagsáætlun bæjarráðs 2025

    Mál 2404224 Allur ferill málsins

    Umfjöllun um fjárhagsáætlun sameiginlegs kostnaðar, atvinnu- og þróunarmála og slökkviliðs.

    Vísað til áframhaldandi vinnu við gerð fjárhagsáætlunargerðar.

  5. 5. Fyrirspurn v/ kjarasamninga

    Mál 2405023 Allur ferill málsins

    Framlagður tölvupóstur frá Afli starfsgreinafélagi þar sem óskað er upplýsinga um endurskoðun gjaldskráa sveitarfélagsins vegna kjarasamninga ásamt útfærslu á gjaldfrjálsum skólamáltíðum grunnskólabarna.

    Við gerð síðustu fjárhagsáætlunnar sveitarfélagsins var þess sérstaklega gætt að stilla gjaldskrárhækkunum í hóf sérstaklega með tilliti til barnafjölskyldna. Vinna við endurskoðun gjaldsskráa í tengslum við kjarasamningsgerð aðila vinnumarkaðarins stendur yfir af hálfu sveitarfélagsins. Þá hefur sveitarfélagið þegar innleitt gjaldfrjálsar skólamáltíðir.

  6. 6. Fyrirspurn um viðbrögð við ágangi búfjár 2024

    Mál 2306063 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi landeiganda að Óseyri í Stöðvarfirði vegna smölunar á ágangsfé sumarið 2024.

    Bæjarráð felur bæjarritara að svara erindi í samræmi við umræður á fundinum.

  7. 7. Reglur um viðbrögð við ágangi búfjár

    Mál 2404088 Allur ferill málsins

    Farið yfir fjallskilasamþykkt og kynnt umfjöllun á fundi aðildarsveitarfélaga Sambands sveitarfélaga á Austurlandi sem haldinn var 7. maí en niðurstöður stjórnar eru að ekki verði gerðar breytingar á fjallskilasamþykkt vegna ágangs búfjár.

    Unnið er á vettvangi sveitarfélganna að málinu.

  8. 8. Forsetakosningar 1. júní 2024

    Mál 2401122 Allur ferill málsins

    Framlögð fundargerð yfirkjörstjórnar þar sem lögð er fram tillaga að kjörstöðum við forsetakosningar 1. júní 2024. Yfirkjörstjórn leggur til að kjörstaðir verði sjö og kjörstaðir verði opnir frá kl. 09:00 til 22:00 á öllum stöðum nema Mjóafirði en þar verði kjörstaður opinn frá kl. 09:00 og kjörfundi þar skuli ljúka strax og unnt er skv. 91. gr. kosningalaga en þó ekki fyrr en kl. 14:00 og ekki síðar en kl. 17:00.

    Sólbrekka á Mjóafirði

    Nesskóli á Norðfirði

    Eskifjarðarskirkja á Eskifirði

    Safnaðarheimili á Reyðarfirð

    Skólamiðstöð á Fáskrúðsfirði

    Grunnskóli á Stöðvarfirði

    Grunnskóli í Breiðdal

    Bæjarráð samþykkir tillögur yfirkjörstjórnar og vísar til bæjarstjórnar staðfestingu á kjörstöðum.

  9. 9. Umsókn um íþróttastyrk

    Mál 2403116 Allur ferill málsins

    Vísað frá fjölskyldunefnd til afgreiðslu bæjarráðs drögum að samningi við Golfklúbb Norðfjarðar um rekstrar- og uppbyggingarstyrk til þriggja ára.

    Bæjarráð samþykkir samning um rekstrar- og uppbyggingarstyrk og felur bæjarstjóra undirritun hans.

  10. 10. Umsókn um íþróttastyrk

    Mál 2403049 Allur ferill málsins

    Vísað frá fjölskyldunefnd til afgreiðslu bæjarráðs drögum að samningi við Golfklúbb Byggðarholts um rekstrar- og uppbyggingarstyrk til þriggja ára.

    Bæjarráð samþykkir samning um rekstrar- og uppbyggingarstyrk og felur bæjarstjóra undirritun hans.

  11. 11. Umsókn um íþróttastyrk

    Mál 2402215 Allur ferill málsins

    Vísað frá fjölskyldunefnd til afgreiðslu bæjarráðs drögum að samningi við Golfklúbb Fjarðabyggðar um rekstrar- og uppbyggingarstyrk til þriggja ára.

    Bæjarráð samþykkir samning um rekstrar- og uppbyggingarstyrk og felur bæjarstjóra undirritun hans.

  12. 12. Umsókn um íþróttastyrk

    Mál 2404236 Allur ferill málsins

    Vísað frá fjölskyldunefnd til afgreiðslu bæjarráðs drögum að samningi við Kajakklúbbsins Kaj um rekstrar- og uppbyggingarstyrk til eins árs.

    Bæjarráð samþykkir samning um rekstrar- og uppbyggingarstyrk og felur bæjarstjóra undirritun hans.

  13. 13. Umsókn um íþróttastyrk

    Mál 2404231 Allur ferill málsins

    Vísað frá fjölskyldunefnd til afgreiðslu bæjarráðs drögum að samningi við Skotveiðifélagsins Dreka um rekstrar- og uppbyggingarstyrk til eins árs.

    Bæjarráð samþykkir samning um rekstrar- og uppbyggingarstyrk og felur bæjarstjóra undirritun hans.

  14. 14. Bakkabakki 2b - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

    Mál 2404086 Allur ferill málsins

    Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarráðs stækkun lóðar að Bakkabakka 2b og breytt lóðamörk við Nesgötu 40 á Norðfirði.

    Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti breytt lóðamörk.

  15. 15. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Skólavegur 85a

    Mál 2405013 Allur ferill málsins

    Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd stækkun á lóðinni Skólavegurm 85a á Fáskrúðsfirði.

    Bæjarráð samþykkir stækkun lóðar.

  16. 16. Breyting á samþykkt um fiðurfé

    Mál 2404096 Allur ferill málsins

    Vísað að nýju frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarráðs drögum að breytingum á samþykkt um fiðurfé.

    Bæjarráð vísar reglum að nýju til skipulags- og framkvæmdanefndar til endurskoðunar á reglum um aðhald og ónæðismál.

  17. 17. Til umsagnar 900.mál

    Mál 2404161 Allur ferill málsins

    Lögð fram til staðfestingar umsögn bæjarstjóra vegna frumvarpa nr. 899 og 900 um vindorkumál.

    Bæjarráð staðfestir umsögn bæjarstjóra.

  18. 18. Styrkir til fráveituframkvæmda 2024

    Mál 2405059 Allur ferill málsins

    Framlögð auglýsingu um styrkveitingar til fráveituframkvæmda.

    Vísað til sviðsstjóra skipulags- og framkvæmdasviðs og skipulags- og framkvæmdanefndar.

  19. 19. Ársskýrsla Brothættra byggða 2023

    Mál 2405030 Allur ferill málsins

    Ársskýrsla Brothættra byggða 2023 framlögð til kynningar.

  20. 20. Æðavarp í landi Fjarðabyggðar

    Mál 2402161 Allur ferill málsins

    Á fundi skipulags- og framkvæmdanefndar samþykkti nefndin að friðlýsa æðavarpi í landi Kollaleiru og bjóða nytjar þess út í kjölfar friðlýsingar.

    Bæjarráð vísar til fyrri afgreiðslu sinnar frá 15. maí 2023 að æðavarp í Kollaleirulandi verði ekki boðið út heldur verði landsvæðið skilgreint sem almennt land í eigu Fjarðabyggðar án heimilda til nota af neinu tagi og sé opið almenningi.

  21. 21. Fjölskyldunefnd - 5.

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð fjölskyldunefndar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

    1. 21.1 Mönnun leikskóla 2024
    2. 21.2 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2025
    3. 21.3 Ársfjörðungs uppgjör íþrótta- og tómstundamál
    4. 21.4 Starfs- og fjárhagsáætlun fjölskyldunefndar 2025
    5. 21.5 Sumaropnun bókasafna 2024
    6. 21.6 Til umsagnar 934. mál
    7. 21.7 Íþrótta- og tómstundastyrkir 2024
    8. 21.8 Umsókn um íþróttastyrk
    9. 21.9 Umsókn um íþróttastyrk
    10. 21.10 Umsókn um íþróttastyrk
    11. 21.11 Umsókn um íþróttastyrk
    12. 21.12 Umsókn um íþróttastyrk
    13. 21.13 Umsókn um íþróttastyrk
    14. 21.14 Umsókn um íþróttastyrk
    15. 21.15 Umsókn um íþróttastyrk
    16. 21.16 Umsókn um íþróttastyrk
    17. 21.17 Umsókn um íþróttastyrk
    18. 21.18 Umsókn um íþróttastyrk
    19. 21.19 Umsókn um íþróttastyrk
    20. 21.20 Umsókn um íþróttastyrk
    21. 21.21 Umsókn um íþróttastyrk
    22. 21.22 Umsókn um íþróttastyrk
    23. 21.23 Umsókn um íþróttastyrk
    24. 21.24 Umsókn um íþróttastyrk
    25. 21.25 Umsókn unglingadeildar Gerpis að frístundastyrkjum Fjarðabyggðar
  22. 22. Skipulags- og framkvæmdanefnd - 9

    Fundargerðin í heild

    Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 8. maí sl.

    1. 22.1 Skipulag úrgangsmála 2024 í Fjarðabyggð2404177
    2. 22.2 Æðavarp í landi Fjarðabyggðar2402161
    3. 22.3 Breyting á samþykkt um fiðurfé2404096
    4. 22.4 Hlíðargata 7-9 - 750 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2403177
    5. 22.5 Austurvegur 4 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2404075
    6. 22.6 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Skólavegur 85a2405013
    7. 22.7 Bakkabakki 2b - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2404086
    8. 22.8 Egilsbraut 22 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2404156
    9. 22.9 Viðhald og nýframkvæmdir gatna Fjarðabyggð 20242404016
    10. 22.10 Framkvæmdaleyfi Efnistaka við Breiðdalsá2404203
    11. 22.11 Starfs- og fjárhagsáætlun skipulags - og framkvæmdanefndar 20252404221
    12. 22.12 Uppbygging hleðsluinnviða í Fjarðabyggð2404123
    13. 22.13 Fiskeldissjóður - umsóknir 20242308085
    14. 22.14 Umsóknir í Framkvæmdasjóð Ferðamannastaða 20242308105
    15. 22.15 Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Austurlands 20242404185
    16. 22.16 Fundaáætlun skipulags- og framkvæmdanefndar vor 20242401189
    17. 22.17 Uppsetning á póstboxi á Stöðvarfirði2404082
    18. 22.18 Breiðimelur 1-3-5-7-9 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2405031
  23. 23. Starfshópur fræðslumála 2023

    Mál 2309181 Allur ferill málsins

    Umræður með skólastjórum grunn-, leik- og tónlistarskóla um fyrirhugaðar breytingar á fræðslumálum og umsagnir vegna þeirra.