Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 849

21. maí 2024, kl. 08:30 til 10:30, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Ragnar Sigurðsson, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 378 liður 1

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tóku: Ragnar Sigurðsson, Stefán Þór Eysteinsson, Jón Björn Hákonarson, Arndís Bára Pétursdóttir.

    Fundargerð bæjarráðs frá 21. maí staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Reglur um skólaakstur í grunnskólum Fjarðabyggðar

    Mál 2405019 Allur ferill málsins

    Vísað frá fjölskyldunefnd til afgreiðslu bæjarráðs drögum að reglum um skólaakstur í Fjarðabyggð.

    Bæjarráð samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.

  2. 2. Hoppsabomm - Stefnumót um framtíð skíðasvæðanna á Austurlandi

    Mál 2405129 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar samantekt frá fundi um stefnumótun skíðasvæða á Austurlandi sem haldinn var á Egilsstöðum 29. apríl 2024.

    Bæjarráð lýsir yfir vilja sínum til að taka þátt í þróunarhóp um skíðasvæðin.

  3. 3. Samtök sjávarútvegssveitarfélaga - ársreikningur

    Mál 2405117 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar drög af ársreikningi Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga vegna ársins 2023.

  4. 4. Ársfundur Austurbrúar 2024

    Mál 2405088 Allur ferill málsins

    Framlagt boð ársfundar Austurbrúar 2024 sem haldinn er 23. maí í Breiðdal.

  5. 5. Fundargerðir Samtaka orkusveitarfélaga 2024

    Mál 2403087 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar fundargerð 72. fundar stjórnar samtaka orkusveitarfélaga.

  6. 6. Fundargerðir stjórnar Náttúrustofu Austurlands árið 2024

    Mál 2405071 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar fundargerð 1. fundar stjórnar Náttúrustofu Austurlands

  7. 7. Til umsagnar 1114 mál - frumvarp til laga um tekjustofna sveitarfélaga

    Mál 2405131 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi frá Nefndasviði Alþingis vegna 1114. máls, frumvarp til laga um tekjustofna sveitarfélaga vegna gjaldfrjálsra skólamáltíða sem er til umsagnar.

    Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að veita umsögn um frumvarpið.

  8. 8. Viðbótargreiðsla til B deildar Brúar líf. vLíf. Neskaupstaðar 2024

    Mál 2405083 Allur ferill málsins

    Framlögð tilkynning frá Brú lífeyrissjóði starfsmanna sveitarfélaga vegna Lífeyrissjóðs Neskaupstaðar vegna greiðslu til að uppfylla skilyrði 36.4 gr. samþykkta sjóðsins á árinu 2024. Nemur fjárhæðin um 141 m.kr.

    Bæjarstjóra falið að ræða við framkvæmdastjóra sjóðsins um þetta ákvæði samþykktanna.

  9. 9. Viðauki við samning um leigu á gámum samkv. útboði 2021

    Mál 2405101 Allur ferill málsins

    Lögð fram drög að viðauka við samning um leigu á gámum á gámastöð, flutning á úrgangi og gjald fyrir endurvinnslu málma við GS lausnir frá 2021.

    Bæjarráð samþykkir viðauka við samning og felur bæjarstjóra undirritun hans.

  10. 10. Ársreikningur Eignarhaldsfélagsins Hrauns ehf fyrir árið 2023

    Mál 2405082 Allur ferill málsins

    Framlagður ársreikningur Eignarhaldsfélagsins Hrauns ehf. fyrir árið 2023 til áritunar.

    Ársreikningur félagsins undirritaður og aðalfundur félagsins fer fram kl.11:00 þann 21. maí 2024.

  11. 11. Ársreikningur Hitaveitu Fjarðabyggðar 2023

    Mál 2405081 Allur ferill málsins

    Framlagður ársreikningur Hitaveitu Fjarðabyggðar fyrir árið 2023 til áritunar.

    Ársreikningur félagsins undirritaður.

  12. 12. Strandgata 39, Eskifirði - Sala eigna

    Mál 2405132 Allur ferill málsins

    Umræða um sölu á Strandgötu 39 á Eskfirði.

    Bæjarráð samþykkir að fasteignin að Strandgötu 39 verði auglýst til sölu og fjármálastjóra falið að setja eignina í sölumeðferð hjá fasteignasala.

  13. 13. Eignarsjóður 735 Grunnskólinn Eskifirði

    Mál 2301057 Allur ferill málsins

    Farið yfir framkvæmdir við Eskifjarðarskóla.

    Bæjarráð vísar til sviðsstjóra að vinna málið áfram og leggja fyrir að nýju endanlega tillögu um lokafrágang á endurbótum við skólahúsnæðið.

  14. 14. Breytingar í fræðslumálum

    Mál 2309181 Allur ferill málsins

    Framlögð tillaga bæjarstjóra og starfsmanna stjórnsýslu um verklag, samráð og tímasetningar við innleiðingu á samþykkt bæjarstjórnar á breytingum í fræðslumálum Fjarðabyggðar.

    Þann 13. maí sl. fundaði bæjarráð með skólastjórum grunn-, leik- og tónlistarskóla í Fjarðabyggð.

    Í kjölfar þeirra funda sem og innsendinga á umsögnum skóla- og foreldraráða var mótuð tillaga um verklag, samráð og tímasetningar á innleiðingu á samþykkt bæjarstjórnar á breytingum í fræðslumálum Fjarðabyggðar.

    Með framlagðri tillögu er komið til móts við þau sjónarmið sem fram komu á fundum skólastjórnenda með bæjarráði þann 13. maí sl. til verkefnanna og tímalínunnar framundan.

    Tónlistarskólar

    - Innleiddar verði við upphaf skólaárs 2024/2025 þær breytingar sem samþykktar voru í bæjarstjórn 27. febrúar sl.

    - Skipt verður 75% stöðu aðstoðarskólastjóra í tvennt þannig að tveir einstaklingar komi að því starfi samhliða kennslu.

    - Unnið verður með núverandi stjórnendum að mönnun í stjórnunarstöður Tónlistarskóla Fjarðabyggðar.

    Leikskólar

    - Haldið verður óbreyttu starfi leikskóla fram að áramótum. Á þeim tíma verður unnið að innleiðingu á breytingunum ásamt því sem samhliða verður unnið að endurskoðun leikskólakerfisins m.t.t. vistunartíma, skráningardaga, gjaldskrár, rýni á rekstri mötuneyta o.fl.

    - Stefnt er að auglýsingu á leikskólafulltrúa (í stað starfsheitisins fagstjóra leikskóla) sem hluta af innleiðingarferlinu á haustmánuðum.

    - Myndaður verður starfshópur sem vinna mun að innleiðingunni og endurskoðuninni. Starfshópinn skipa leikskólastjórar í Fjarðabyggð, fulltrúar fjölskyldusviðs og bæjarráðs.

    - Í samráði við leikskólastjóra og foreldraráð verður innleiðingunni lokið og breytingum komið á áramótin 2024-2025.

    Grunnskólar

    - Myndaður verði rýnihópur, með skólastjórum grunnskólanna í Fjarðabyggð, fulltrúum Fjölskyldusviðs og bæjarráðs, sem skilar af sér drögum að tillögum í nóvember 2024 með lokaskilum, eftir kynningar á þeim, í febrúar 2025.

    - Rýnihópurinn mun vinna að innleiðingu breytinga sem samþykktar voru í tillögu í bæjarstjórn og horfir m.a. til útfærslu á stjórnunarhlutfalli, hagræðinga í rekstri og aukinni samvinnu og samlegð milli grunnskólanna í Fjarðabyggð með eflingu þeirra í huga. Þá mun rýnihópurinn vinna með ætlaðan seinni áfanga vinnuhóps um fræðslumál í Fjarðabyggð sem snýr að innra umhverfi skólanna s.s. kennslu og öðrum innri þáttum.

    - Meðan á vinnu þessari stendur verður starfsemi grunnskólanna óbreytt næsta skólaár m.t.t. þeirra breytinga sem ákvarðaðar voru í bæjarstjórn 27. febrúar sl.

    - Stefnt er að auglýsingu á grunnskólafulltrúa (í stað starfsheitisins fagstjóra grunnskóla) eftir áramótin.

    - Unnið verður að útfærslum á hlutverki tengiliða fyrir komandi skólaár í samráði við skólastjóra.

    - Boðið verður upp á aukna þjálfun á fjárhags- og áætlanakerfi þannig að skólastjórar geti unnið drög að starfs- og fjárhagsáætlun fyrir árið 2025.

    Skólaþjónustan

    Haldið verður áfram að byggja upp skólaþjónustuna í takt við fjárhagsheimildir og aukna þjónustuþörf í samstarfi við grunn- og leikskóla þannig að hún nýtist skólunum í Fjarðabyggð sem best.

    Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu og skipað verður í rýni- og starfshóp á næsta fundi bæjarráðs.

  15. 15. Fjölskyldunefnd - 6.

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð fjölskyldunefndar frá 13. maí lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

    1. 15.1 Starfs- og fjárhagsáætlun fjölskyldunefndar 2025
    2. 15.2 Ársfjórðungsyfirlit fræðslumála
    3. 15.3 Kynning á starfamessu til ungmennaráðs
    4. 15.4 Reglur um skólaakstur í grunnskólum Fjarðabyggðar